Kristnibraut 26

Verknúmer : SN040334

8. fundur 2005
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf Fasteignastofu, dags. 19.01.05 ásamt uppdrætti, dags. 19.01.05, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar leikskólans að Kristnibraut 26. Málið var í kynningu frá 26. janúar til 23. febrúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

57. fundur 2005
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf Fasteignastofu, dags. 19.01.05 ásamt uppdrætti, dags. 19.01.05, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar leikskólans að Kristnibraut 26. Málið var í kynningu frá 26. janúar til 23. febrúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Vísað til skipulagsráðs.

52. fundur 2005
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Fasteignastofu, dags. 19.01.05 ásamt uppdrætti, dags. 19.01.05, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar leikskólans að Kristnibraut 26.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Þorláksgeisla 6 - 10, Gvendargeisla 2 - 12, Þórðarsveig 1 - 9 auk Kristnibrautar 99 - 101.

42. fundur 2004
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Fasteignastofu, dags. 20. október 2004, varðandi ósk um stækkun lóðar leikskólans að Kristnibraut 26, samkv. meðfylgjandi uppdrætti Fasteignastofu, dags. 20.10.04.
Jákvætt, enda verði unnin breyting á deiliskipulagi í samræmi við umsókn.

41. fundur 2004
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Fasteignastofu, dags. 20. október 2004, varðandi ósk um stækkun lóðar leikskólans að Kristnibraut 26, samkv. meðfylgjandi uppdrætti Fasteignastofu, dags. 20.10.04.
Frestað. Kynna formanni.

171. fundur 2004
Kristnibraut 26, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Fasteignastofu, dags. 9.06.04 varðandi ósk um stækkun lóðar leikskóla að Kristnibraut 26.
Nefndin tekur jákvætt í að stækka lóðina. Fasteignastofu falið að afmarka lóðina og annast breytingu á deiliskipulagi.

23. fundur 2004