Vesturberg 195

Verknúmer : SN030526

65. fundur 2006
Vesturberg 195, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður skipulags- og byggingarmála vegna kæru Harðar Harðarsonar hrl. f.h. Gunnars Gunnarssonar, dags. 20. nóvember 2003.
Úrskurðarorð: Samþykkt borgarráðs Reykjavíkur frá 21. október 2003 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Vesturbergi 195 er felld úr gildi.


13. fundur 2005
Vesturberg 195, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram greinargerð lögfræði og stjórnsýslu, dags. 17. apríl 2005, um kæru Harðar Harðarsonar hrl. f.h. Gunnars Gunnarssonar, dags. 20. nóvember 2003, vegna samþykktar borgarráðs Reykjavíkur frá 21. október 2003 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 195 við Vesturberg.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

141. fundur 2003
Vesturberg 195, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 28. nóvember 2003, ásamt afriti af kæru, dags. 20. nóvember 2003, þar sem kærð er samþykkt borgarráðs frá 21. október 2003 um breytingar á deiliskipulagi fyrir Vesturberg 195.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.