Langagerði 122, Sogavegur 152, Reitur 1.115.3 - Ellingsen reitur, Reitur 1.230, Bílanaustreitur, Reitur 1.134.6 - Holtsgötureitur, Borgartúnsreitir, Reitir 1.151.4, Þjóðleikhússreitur, Reitur 1.151.5, Pósthússtræti 2, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Langagerði 48, Sóleyjarimi 83-95, Krókháls 16, Öldugata 17, Afgreiðslufundir Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Jaðarsel, Klapparstígur 14, Laugarásvegur 24, Pósthússtræti 2, Rafstöðvarvegur 31, Súðarvogur 6, Samgöngur, Tillaga byggingarfulltrúa,

Skipulags- og byggingarnefnd

181. fundur 2004

Ár 2004, miðvikudaginn 17. nóvember kl. 09:05, var haldinn 181. fundur skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Anna Kristinsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Óskar Dýrmundur Ólafsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Guðmundsson og áheyrnarfulltrúinn Sveinn Aðalsteinsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Salvör Jónsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Helga Bragadóttir, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, Jón Árni Halldórsson, Ólafur Bjarnson og Sigríður Kristín Þórisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar og Ívar Pálsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 40621 (01.83.31)
1.
Langagerði 122,
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi á lóð nr. 122 við Langagerði, dags. 15.11.04.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 106, 108, 110, 116, 118, 20, 124, 126 og 128.

Umsókn nr. 40533 (01.83.01)
2.
Sogavegur 152, gisting í heimahúsi
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa, dags. 11. október 2004, varðandi umsagnarbeiðni lögreglustjórans í Reykjavík vegna gistingar í heimahúsi að Sogavegi 152. Málið var í kynningu frá 19. október til 2. nóvember 2004. Athugasemdabréf barst frá Jökli Úlfarssyni, eiganda efri hæðar að Sogavegi 148, dags. 01.11.04. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4.11.04.
Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Umsókn nr. 40434 (01.11.53)
3.
Reitur 1.115.3 - Ellingsen reitur, deiliskipulag að reit 1.115.3
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga VA arkitekta að deiliskipulagi að reit 1.115.3 (Ellingsenreit), dags. 22.10.04. Athugasemdabréf bárust frá Glámu Kím arkitektum ehf, dags. 8. nóvember 2004 og Reykjaprent, dags. 10.11.04. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa, dags. 12.11.04.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til umsagnar hafnarstjórnar og borgarráðs að fenginni þeirri umsögn.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


Umsókn nr. 40611 (01.23.0)
660298-2319 Teiknistofan Tröð ehf
Hávallagötu 21 101 Reykjavík
681194-2749 Kanon arkitektar ehf
Laugavegi 28 101 Reykjavík
4.
Reitur 1.230, Bílanaustreitur, deiliskipulag
Lögð fram umsókn Kanon arkitekta og teiknistofunnar Traðar, dags. 10.11.2004 ásamt erindi ÍAV og Þyrpingar, dags. 10.11.04, að uppbyggingarhugmynd og breytingu á deiliskipulagi lóðanna Borgartún 26 og Sóltún 3 skv. uppdr., dags. 10.11.04. Einnig lögð fram skýrsla Línuhönnunar um hljóðvist, dags. 11.11.04 og minnisblað dr. Haralds Ólafssonar veðurfræðings um veðurfar, dags. 11.11.04.

Áheyrnarfulltrúinn Sveinn Aðalsteinsson vék af fundi kl. 9:45, áður höfðu liðir nr. 1-3 og 10-13 verið afgreiddir. Áheyrnarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon tók sæti á fundinum í stað hans.

Ráðgjafar kynntu.

Helga Bragadóttir, skipulagsfulltrúi vék sæti við afgreiðslu málsins.
Samþykkt að Salvör Jónsdóttir taki sæti skipulagsfulltrúa í málinu.
Þeim þætti málsins vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 40438 (01.13.46)
100567-3779 Harpa Stefánsdóttir
Bauganes 16 101 Reykjavík
5.
Reitur 1.134.6 - Holtsgötureitur, deiliskipulag
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga Hörpu Stefánsdóttur arkitekts, dags. 20.08.04, að deiliskipulagi reits 1.134.6, Holtsgötureits, sem markast af Holtsgötu, Bræðaborgarstíg, Sólvallagötu og Vesturvallagötu. Einnig lögð fram forsögn dags. í apríl 2004. Þessir sendu inn athugasemdir: Herborg Friðjónsdóttir, Holtsgötu 5, mótt. 01.09.04 og 13.09.04, Kristinn H. M. Schram og Katla Kjartansdóttir, Holtsgötu 18, dags. 20.09.04, Haraldur Ólafsson, Hávallagötu 48, dags. 17.09.04, ásamt ályktun fundar íbúa í Vesturbæ, norðan Hringbrautar og vestan Hofsvallagötu og Ægisgötu, haldinn 6. september 2004, Páll Kr. Svansson, Holtsgötu 12, dags. 20.09.04, Lilja E. Kolbeins, Vesturvallagötu 1, dags. 20.09.04, Ólafur Björnsson f.h lóðarhafa á lóðunum Bræðraborgarstígur 32a og b og Holtsgötu 1, dags. 20.09.04, Sævar Guðbjörnsson, Hávallagötu 41, dags. 20.09.04, Gísli Þór Sigurþórsson, Öldugötu 53, dags. 20.09.04, Edda Einarsdóttir, Hávallagötu 48, dags. 20.09.04, Sigurður Böðvarsson, Sólvallagötu 53, dags. 20.09.04, Áshildur Haraldsdóttir, Túngötu 44, dags. 18.09.04, Margrét Sveinsdóttir Holtsgötu 7, dags. 28.09.04. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa um athugasemdir, dags. 12.10.04, breytt 17.11.04 og fundargerð frá fundi með íbúum frá 12. október 2004. Lagt fram bréf eigenda Holtsgötu 1, 1a og 3 og Bræðraborgarstíg 32a og 32b, dags. 20.10.04.
Samþykkt að auglýsa tillöguna með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa auk þess að lóðarhöfum á Holtsgötu 1-3 / Bræðraborgarstíg 32A og B verði gert skylt að fullnægja bílastæðaþörf fyrirhugaðra nýbygginga innan lóðarinnar.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


Umsókn nr. 10077
711293-2139 Vinnustofan Þverá ehf
Laufásvegi 36 101 Reykjavík
6.
Borgartúnsreitir, deiliskipulag reits 1.220.2
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Vinnustofunnar Þverá, dags. í janúar 2002, endurskoðuð í apríl 2004 og skipulagsforsögn skipulagsfulltrúa, að deiliskipulagi á Borgartúnsreit 1.220.0, sem afmarkast af Skúlagötu, Skúlatúni, Borgartúni og Snorrabraut. Málið var í auglýsingu frá 14. júlí til 25. ágúst 2004. Athugasemdabréf bárust frá Páli Björgvinssyni arkitekt ásamt uppdr. v/Skúlatún 4, dags. 18.08.04, Snorra Hjaltasyni f.h. TSH ehf, dags. 24.08.04, Frímúrarareglunni á Íslandi, dags. 25.08.04, Þormóði Sveinssyni arkitekt, dags. 25.08.04, vegna Skúlagötu 51. Athugasemdafrestur var framlengdur til 10. sept. 2004. Athugsemdabréf barst frá Snorra Hjaltasyni f.h. TSH ehf, dags, 30.09.04. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa um athugasemdir, dags. 9. nóvember 2004.
Auglýst tillaga samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 40055 (01.15.14)
7.
Reitir 1.151.4, Þjóðleikhússreitur, forsögn
Að lokinni forkynningu til hagsmunaaðila eru lögð fram að nýju drög að forsögn skipulagsfulltrúa, dags. í janúar 2004, að deiliskipulagi reita 1.151.4 og 1.151.5. Einnig lögð fram tillaga Studio Granda að deiliskipulagi, dags. 11.11.04. Lagt fram bréf þjóðleikhússtjóra, dags. 20.05.04.
Samþykkt að kynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

Umsókn nr. 40612 (01.15.15)
8.
Reitur 1.151.5, forsögn
Að lokinni forkynningu til hagsmunaaðila eru lögð fram að nýju drög að forsögn skipulagsfulltrúa, dags. í janúar 2004, að deiliskipulagi reita 1.151.4 og 1.151.5. Einnig lögð fram tillaga Studio Granda að deiliskipulagi, dags. 11.11.04.
Samþykkt að kynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

Umsókn nr. 40571 (01.14.01)
9.
Pósthússtræti 2, Tryggvagata 28, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, varðandi lóðirnar nr. 2 við Pósthússtræti og nr. 28 við Tryggvagötu. Málið var í kynningu frá 29. september til 27. október 2004. Athugasemdabréf barst frá Landwell, f.h. eigenda fasteignanna Hafnarstrætis 9 (utan jarðhæðar) og Hafnarstrætis 11, dags. 26.10.04. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 9.11.04.
Kynnt deiliskipulagstillaga samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd, með þeim breytingum sem fram koma í framlagðri umsögn.
Skipulags- og byggingarnefnd áréttar og leggur sérstaka áherslu á að með breytingunni er ekki verið að auka heimildir lóðarhafa til notkunar á kvöðinni sem liggur um Hafnarstræti 7, til handa lóðinni nr. 28 við Tryggvagötu. Lóðarhöfum hinnar sameinuðu lóðar sé því ekki heimilt að stöðva bifreiðar í kvöðinni til affermingar enda myndu slík not takmarka rétt athugasemdaaðila til umferðar um kvöðina. Ljóst sé þó að slík not séu þeim heimil í undantekningartilvikum að höfðu samráði við athugasemdaaðila.


Umsókn nr. 30514
10.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 324 frá 16. nóvember 2004, án liðar nr. 5.
Jafnframt lagður fram liður nr. 5 frá 26. október 2004.


Umsókn nr. 30221 (01.83.210.5)
200975-2199 Magdalena Redlicka
Langagerði 48 108 Reykjavík
11.
Langagerði 48, Viðbyggingar
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 5. október 2004, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta viðbyggingu við suður- og austurhlið 1. hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 48 við Langagerði, samkv. uppdr. Gunnars S. Óskarssonar arkitekts, dags. 27.09.04. Samþykki meðeiganda dags. 20. ágúst 2004 (á teikningu) fylgir erindinu. Málið var í kynningu frá 12. október til 9. nóvember 2004. Engar athugsemdir bárust.
Stærð: Stækkun 1. hæðar samtals 35,8 ferm., 111,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 6.021
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30411 (02.53.670.1)
490996-2499 ÁF-hús ehf
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
12.
Sóleyjarimi 83-95, Raðhús m. 7 íb.
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvílyft steinsteypt raðhús með sjö íbúðum og jafnmörgum innbyggðum bílgeymslum að mestu einangrað að innan og útveggir með steindri áferð á lóð nr. 83-95 við Sóleyjarima.
Hús nr. 83 (matshl. 01) íbúð 1. hæð 79 ferm., 2. hæð 104,3 ferm., bílgeymsla 28,9 ferm., samtals 212,2 ferm., 629,6 rúmm. Hús nr. 85 (matshl. 02) íbúð 1. hæð 78,5 ferm., 2. hæð 102,8 ferm., bílgeymsla 27,9 ferm., samtals 209,2 ferm., 663,9 rúmm. Hús nr. 87 (matshl. 03) og hús nr. 89 (matshl 04) eru sömu stærðar og hús nr. 85 eða samtals 209,2 ferm., 663,9 rúmm. Hús nr. 91 (matshl. 05) íbúð 1. hæð 78,4 ferm., 2. hæð 102,7 ferm., bílgeymsla 27,9 ferm., samtals 209 ferm., 663,3 rúmm. Hús nr. 93 (matshl. 06) er sömu stærðar og hús nr. 91 eða samtals 209 ferm., 663,3 rúmm. Hús nr. 95 (matshl. 07) íbúð 1. hæð 79,8 ferm., 2. hæð 104,1 ferm., bílgeymsla 27,9 ferm., samtals 211,8 ferm., 672 rúmm.
Raðhús eru samtals 1469,6 ferm., 4619,9 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 249.475
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30298 (04.14.310.1)
491294-2489 Vélaver hf
Lágmúla 7 108 Reykjavík
13.
Krókháls 16, verkstæði, lager, skrifstofur
Sótt er um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði úr stáleiningum og að mestu á einni hæð á lóðinni nr. 16 við Krókháls. Í húsnæðinu verði vinnuvélaverkstæði með geymslu fyrir olíu og bensín, lager og skrifstofur á tveimur hæðum við norðvestur hlið. Norðan við aðalhúsið (götumegin) verði byggður 11,4 m hár veggur úr stágrind með timburklæðningu og nálægt vesturlóðarmörkum verði komið fyrir bílaþvottastöð. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir um 220 cm hárri girðingu umhverfis meginhluta lóðarinnar. Á teikningum eru sýnd sjö stór veggskilti með auglýsingum.
Erindinu fylgir bréf hönnuða dags. 27. sept. 2004 (óundirritað) og bréf Hans Unnþórs Þ. Ólasonar dags. 9. nóvember 2004 fylgja erindinu.
Stærðir: 2358 ferm. og 16918,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 913.604
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30070 (01.13.720.6)
640504-3580 Doma ehf
Stafnaseli 2 109 Reykjavík
14.
Öldugata 17, br. í 5 íb. íbúðarhús
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 7. september 2004, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja tvo kvisti á norðurþekju, útbúa svalir á þakfleti rishæðar, byggja svalir að suðurhlið 1. og 2. hæðar og innrétta tvær íbúðir á 1. hæð, tvær á 2. hæð og eina á rishæð í núverandi atvinnuhúss á lóð nr. 17 við Öldugötu, samkv. uppdr. Arkitekta Ólöf & Jon ehf, dags. 31.08.04. Málið var í kynningu frá 22. september til 20. október 2004. Þessir sendu inn athugasemdir: Kesara Jónsson og Friðrik R. Jónsson, Öldugötu 16, dags. 19.10.04, Erla Árnadóttir og Sveinn Andri Sveinsson, Öldugötu 18, Leikskólinn Öldukot, Öldugötu 19, dags. 19.10.04. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. október 2004.
Lagt fram bréf arkitektanna Ólafar Flygering og Jon Nordsteien, dags. 01.11.04, ásamt tölvubréfum dags. 8. og 10.11.04 og bréfi Doma ehf, dags. 01.11.04.
Stærð: Stærðaraukning samtals 3,9 ferm., 1,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 81
Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Reykjavíkurlista m.t.t. jafnræðissjónarmiða og fordæma á svæðinu, sbr. ný gögn frá umsækjanda þ.e. bréf arkitektanna Ólafar Flygering og Jon Nordsteien, dags. 01.11.04, tölvubréfa þeirra, dags. 8 og 10.11.04, og bréfs Doma ehf, dags. 01.11.04.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10070
15.
Afgreiðslufundir Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 12. nóvember 2004.


Umsókn nr. 20290 (04.9)
610102-2980 Hús og skipulag ehf
Bolholti 8 105 Reykjavík
16.
Jaðarsel, Klyfjasel, Lækjarsel
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 4. nóvember 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar 27. f.m. varðandi auglýsingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Jaðarsel, milli Klyfjasels og Lækjarsels.


Umsókn nr. 40368 (01.15.15)
660702-2530 GP-arkitektar ehf
Litlabæjarvör 4 225 Bessastaðir
17.
Klapparstígur 14, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 4. nóvember 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar 27. f.m. varðandi breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 14 við Klapparstíg.


Umsókn nr. 40601 (01.38.20)
18.
Laugarásvegur 24, dómur
Lagt fram endurrit úr dómabók Héraðsdóms Reykjavíkur frá 5. nóvember 2004, varðandi Laugarásveg 24.
Dómsorð:
Felldur er úr gildi úrskurður skipulags- og byggingarmála í máli nr. 41/2003, sem kveðinn var upp 18. september 2003. Staðfest er, að ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. apríl 2003, sem staðfest var af borgarstjórn Reykjavíkur 30. apríl 2003, um að veita leyfi til byggingar bílgeymslu að Laugarásvegi 24 í Reykjavík, sé í gildi. Stefndu greiði stefnanda 400.000 krónur í málskostnað.


Umsókn nr. 40617 (01.14.01)
19.
Pósthússtræti 2, Tryggvagata 28, úrskurðir úrskurðarnefndar
Lagðir fram tveir úrskurðir úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 11.11.2004:
- vegna kæru eigenda fasteignanna að Hafnarstræti 9 (utan jarðhæðar) og Hafnarstræti 11, Reykjavík á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 28. september 2004 um að veita takmarkað byggingarleyfi til að rífa og undirbúa framkvæmdir í húsunum að Pósthússtræti 2 og Tryggvagötu 28, Reykjavík vegna fyrirhugaðra breytinga.
Úrskurðarorð: Máli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
-vegna kæru eigenda fasteignanna að Hafnarstræti 9 (utan jarðhæðar) og Hafnarstræti 11, Reykjavík á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. október 2004 um að veita takmarkað byggingarleyfi til að rífa, undirbúa framkvæmdir og endurnýja létta innveggi í húsunum að Pósthússtræti 2 og Tryggvagötu 28, Reykjavík vegna fyrirhugaðra breytinga.
Úrskurðarorð: Ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. október 2004 um útgáfu takmarkaðs byggingarleyfis vegna breytinga að Pósthússtræti 2 og Tryggvagötu 28, Reykjavík er felld úr gildi.


Umsókn nr. 40602 (04.25.72)
20.
Rafstöðvarvegur 31, kæra
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 8. nóvember 2004, ásamt afriti af kæru, dags. 11. október 2004, þar sem kærð er samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 6. september 2004 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Rafstöðvarveg 31, Reykjavík.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

Umsókn nr. 40603 (01.45.21)
21.
Súðarvogur 6, kæra
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 8. nóvember 2004, ásamt afriti af kæru, dags. 28. október 2004, þar sem kærð er samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 13. október 2004, um að synja erindi eiganda bakhúss Súðarvogi 6, Reykjavík, um að aflétta niðurrifskvöð sem á húsinu hvílir.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

Umsókn nr. 40581
22.
Samgöngur, landþörf
Lögð fram greinargerð skipulags- og byggingarsviðs um landþörf samgangna, dags. í október 2004.
Haraldur Sigurðsson kynnti.

Umsókn nr. 40012
23.
Tillaga byggingarfulltrúa,
Byggingarfulltrúi leggur til að forstm. lögfræði og stjórnsýslu verði falið að gera tillögu að breytingu á reglugerð nr. 558 um embættisafgreiðslu byggingarfulltrúa varðandi útgáfu takmarkaðra byggingarleyfa.
Tillaga byggingarfulltrúa samþykkt.