Rauðagerði 25-27, Sigtún 38, Hestháls 2-4, Staðarsel 6, Hagamelur 1, Hringbraut við Landspítala, Hringbraut við Njarðargötu, Njarðargata, Reykjanesbraut við Stekkjarbakka, Klettagarðar 21, Móvað 1, Móvað 11, Móvað 37, Móvað 41, Móvað 5, Móvað 7, Móvað 9, Ólafsgeisli 20-28, Bensínstöðvar og bensínsölur, Bensínstöðvar, Bleikjukvísl 10, Súðarvogur 6, Viðarás 85, Útilistaverk,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 558/2003

172. fundur 2004

Ár 2004, þriðjudaginn 31. ágúst kl. 09:05, var haldinn 172. fundur skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson, Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Benedikt Geirsson og áheyrnarfulltrúinn Sveinn Aðalsteinsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Salvör Jónsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Helga Bragadóttir, Ólafur Bjarnason, Jón Árni Halldórsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Leifsdóttir. Fundarritari var Ívar Pálsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 30387 (01.82.12)
700176-0109 Teiknistofa Ingimund Sveins ehf
Ingólfsstræti 3 101 Reykjavík
1.
Rauðagerði 25-27, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar, dags. í ágúst 2004, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum nr. 25-27 við Rauðagerði. Einnig lagt fram samþykki lóðarhafa, dags. 19.08.04.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Skipulags- og byggingarnefnd leggur áherslu á að framkvæmdir sem ráðist verður í vegna breytinga á deiliskipulaginu hafi ekki neikvæð áhrif á hljóðvist á svæðinu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


Umsókn nr. 40445 (01.36.60)
250456-4339 Guðjón Magnússon
Fornaströnd 17 170 Seltjarnarnes
2.
Sigtún 38, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Teiknistofunnar Arkform, dags. í apríl 2004, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 38 við Sigtún.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


Umsókn nr. 40377 (04.32.30)
701265-0339 Teiknistofan Óðinstorgi sf
Óðinsgötu 7 101 Reykjavík
3.
Hestháls 2-4, breytt deiliskipulag
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf Nóa Síríus, dags. 8.07.04, ásamt tillögu teiknistofunnar Óðinstorgi, dags. 15. júlí 2004, að breyttu deilsikipulagi vegna lóðar nr. 2-4 við Hestháls. Málið var í kynningu frá 27. júlí til 23. ágúst 2004. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

Umsókn nr. 40362 (04.92.40)
310551-3259 Jón Guðmundsson
Látraströnd 12 170 Seltjarnarnes
4.
Staðarsel 6, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Jóns Guðmundssonar arkitekts, dags. 01.07.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 6 við Staðarsel. Málið var í kynningu frá 28. júlí til 25. ágúst 2004. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

Umsókn nr. 29654 (01.54.210.1)
480190-1069 Fasteignastofa Reykjavíkurborg
Skúlatúni 2 105 Reykjavík
5.
Hagamelur 1, færanleg kennslustofa
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 22.06.2004. Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir færanlegri kennslustofu austan Melaskóla á lóðinni nr. 1 við Hagamel. Uppdr. OK arkitekta, dags. 10.06.2004 dregnir til baka en nýir uppdr. sömu aðila dags. 23.07.04 lagðir fram. Málið var í kynningu frá 21. júlí til 18. ágúst 2004. Athugasemdabréf bárust frá Sverri Hreiðarssyni og Margréti Ragnarsdóttur, Hagamel 6, dags. 18.08.04, Erni Orrasyni, Hagamel 8, dags. 15.08.04. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25.08.04.
Stærð: Færanl. kennslust.64,8 ferm. og 218,0 rúmm.
Gjald kr. 4.800 + 11.772
Frestað.

Umsókn nr. 30002
680269-2899 Vegagerðin
Borgartúni 5-7 105 Reykjavík
6.
Hringbraut við Landspítala, göngubrú
Sótt er um leyfi til þess að reisa göngubrú yfir Hringbraut við Landspítala.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 30005
680269-2899 Vegagerðin
Borgartúni 5-7 105 Reykjavík
7.
Hringbraut við Njarðargötu, göngubrú
Sótt er um leyfi til þess að reisa göngubrú yfir Hringbraut við Njarðargötu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 30003
580302-3780 Eignasjóður-Gatnamálastofa
Skúlatúni 2 150 Reykjavík
8.
Njarðargata, göngubrú
Sótt er um leyfi til þess að reisa göngubrú yfir Njarðargötu norðan Hringbrautar.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 30004
680269-2899 Vegagerðin
Borgartúni 5-7 105 Reykjavík
9.
Reykjanesbraut við Stekkjarbakka, göngubrú
Sótt er um leyfi til þess að reisa göngubrú yfir Reykjanesbraut við Stekkjabakka.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 30024 (01.32.430.1)
680380-0319 Sjónvarpsmiðstöðin ehf
Síðumúla 2 108 Reykjavík
530269-7529 Reykjavíkurhöfn
Tryggvag Hafnarhúsi 101 Reykjavík
10.
Klettagarðar 21, vörugeymsluhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja einnar hæða vörugeymsluhús úr stálgrind, klætt ljósu trapissustáli á lóð nr. 21 við Klettagarða.
Stærð: Vörugeymsla 5474 ferm., milliloft 174,8 ferm., samtals 5648,8 ferm., 60378,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 3.260.423
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30025 (04.77.120.1)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
11.
Móvað 1, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 1 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30029 (04.77.120.6)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
12.
9">Móvað 11, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 11 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30030 (04.77.350.1)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
13.
Móvað 37, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 37 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30031 (04.77.350.3)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
14.
Móvað 41, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri , klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 41 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsl 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30026 (04.77.120.4)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
15.
Móvað 5, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 5 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30027 (04.77.120.4)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
16.
Móvað 7, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 7 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 30028 (04.77.120.5)
691282-0829 Frjálsi fjárfestingarbankinn hf
Ármúla 13a 108 Reykjavík
17.
Móvað 9, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús að hluta á tveimur hæðum ásamt tvöfaldri bílgeymslu allt úr einingum úr timbri, klætt með bárujárni og steinuðum sementsplötum (Viroc) á lóð nr. 9 við Móvað.
Stærð: Íbúð 1. hæð 157,8 ferm., 2. hæð 49,3 ferm., bílgeymsla 41,8 ferm., samtals 248,9 ferm., 845,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 45.657
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40386 (04.12.66)
471184-0209 Lögmenn við Austurvöll sf
Pósthússtræti 13 101 Reykjavík
18.
Ólafsgeisli 20-28, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Lögmanna við Austurvöll f.h. Skúla Ágústssonar, dags. 14.07.04, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar nr. 24 við Ólafsgeisla. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa og lögfræði og stjórnsýslu, dags. 20.08.04.
Frestað.

Umsókn nr. 40461
20.
Bensínstöðvar og bensínsölur, skýrsla
Lögð fram álitsgerð skipulags- og byggingarsviðs um fjölda og staðsetningu bensínstöðva í Reykjavík, dags. í október 2003. Einnig lagt fram minnisblað sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs, dags. 27.08.04.


Umsókn nr. 29951
21.
Bensínstöðvar, tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks sem lögð var fram á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 11. ágúst 2004:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til að tekin verði afstaða til niðurstöðu vinnuhóps skipulags- og byggingarsviðs um fjölda og staðsetningu bensínafgreiðslna í borginni. Fullkomið stefnuleysi ríkir í þessum málaflokki og ef marka má yfirlýsingar leiðtoga Reykjavíkurlistans Alfreðs Þorsteinssonar þá er það stefna Reykjavíkurlistans að fjölga bensínstöðvum sem mest í Reykjavík. Þess má geta að Reykjavík á heimsmet í fjölda bensínstöðva miðað við fólksfjölda.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar lagði fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks frá 11. ágúst s.l. verði vísað frá og álitsgerð um fjölda og staðsetningu bensínstöðva í Reykjavík verði vísað til endurskoðunar aðalskipulags.

Greinargerð með tillögu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur formanns skipulags- og byggingarnefndar:
Eins og fram kemur í minnisblaði sviðsstjóra til formanns skipulags- og byggingarnefndar er álitsgerðinni ætlað að vera leiðbeinandi við skipulagsvinnu í framtíðinni. Því er lagt til að tillögu Sjálfstæðismanna verði vísað frá og álitsgerðinni vísað til endurskoðunar aðalskipulags.

Tillaga formanns skipulags- og byggingarnefndar samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Reykjavíkurlista gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks.

Fultrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa yfir vonbrigðum með afstöðu Reykjavíkurlistans til málsins. Staðfest er að stefna Reykjavíkurlistans er að fjölga bensínstöðvum sem mest í byggðum hverfum borgarinnar.

Áheyrnarfulltrúi Frjálslyndra- og óháðra, Sveinn Aðalsteinsson, óskaði bókað:
Fulltrúi F-listans í skipulags- og byggingarnefnd átelur skipulagslausa fjölgun bensínstöðva í Reykjavík, sem þó hefur ekki skilað þeim árangri til neytenda að lækka bensínsverð í borginni til samræmis við það sem gerist í nágrannasveitafélögunum.

Fulltrúar Reykjavíkurlista óskuðu bókað:
Við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur verður álitsgerð embættis skipulags- og byggingarsviðs lögð til grundvallar. Á undanförnum misserum hafa komið fram vísbendingar um að með aukinni samkeppni geti bensínsverð lækkað m.a. með tilkomu Atlantsolíu. Borgaryfirvöld vilja leggja sitt af mörkum m.a. með því að útvega lóðir undir bensíndælur þeirra aðila sem hafa það að markmiði að bjóða Reykvíkingum lægra bensínverð.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Svarbókun Reykjavíkurlista staðfestir enn frekar vandræðagang þeirra í málinu. Öll olíufélögin hafa það að markmiði að bjóða Reykvíkingum lægra bensínsverð. Þannig að stefna borgaryfirvalda er skýr, fjölga á bensínstöðvum sem mest. Ef marka má álitsgerð skipulagssviðs á Reykjavíkurborg heimsmet í fjölda bensínstöðva.



Umsókn nr. 40134 (04.23.54)
670201-2010 Lagaval ehf
Skeifunni 11a 108 Reykjavík
22.
Bleikjukvísl 10, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 24. ágúst 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 18. s.m. um breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 10 við Bleikjukvísl.


Umsókn nr. 27040 (01.45.210.1)
480103-3510 Skálatún ehf
Lækjarbergi 32 221 Hafnarfjörður
23.
Súðarvogur 6, Niðurfelling á kvöð
Lögð fram að nýju tillaga byggingarfulltrúa, dags. 10.05.04, sem kynnt hefur verið hagsmunaaðilum ásamt bréfum Stefáns H. Stefánssonar, hdl., dags. 31.03.03 og 16.10.03 og umsögn lögfræði- og stjórnsýslu, dags. 3.03.04. Einnig lögð fram bréf lögfræðistofunnar Sóleyjargötu 17, dags. 24.05.04 og bréf Stefáns H. Stefánssonar, hdl., dags. 10.05.04, 17.05.04.
Frestað.

Umsókn nr. 30284 (04.38.75)
040160-4939 Gyða Jónsdóttir
Viðarás 85 110 Reykjavík
24.
Viðarás 85, lóð í fóstur
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 24. ágúst 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 18. s.m. um breytingu á afmörkun þess lands er komið var í fóstur eiganda hússins að Viðarási 85.


Umsókn nr. 40468
521280-0269 Listasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
25.
Útilistaverk, Gufunesi
Lagt fram bréf forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur dags. 30. ágúst 2004 um staðsetningu listaverks í Gufunesi.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við staðsetningu verksins.