Fossaleynir 2

Skjalnúmer : 9959

27. fundur 1996
Fossaleynir 2, afmörkun lóðar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 26.11.1996 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 22.11.1996 um afmörkun lóðar við Fossaleyni 2C.



12. fundur 1996
Fossaleynir 2, breyting á skilmálum
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 7.5.96 að á lóðum við Fossaleyni skuli framvegis setja eftirfarandi skilmála í lóðarleigusamninga:
Óheimilt er að starfrækja á lóðinni hvers konar verslanir með matvöru, s.s. stórmarkaði, matvöruverslanir og söluturna. Hvorki verða veitt starfsleyfi né önnur tilskilin leyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit nr. 81/1988, lögum um matvæli nr. 93/1995 eða sambærilegum ákvæðum í lögum sem síðar kunna að verða sett, eða reglum settum samkvæmt slíkum lögum, til reksturs ofangreindra verslana.


9. fundur 1996
Fossaleynir 2, breyting á skilmálum
Lögð fram að nýju tillaga Borgarskipulags um viðbót við skilmála fyrir Fossaleynismýri. Ennfremur lagt fram minnisblað skrifstofustjóra borgarverkfræðings, dags. 18.4.'96.

Tillaga Borgarskipulags var samþykkt samhljóða.

8. fundur 1996
Fossaleynir 2, breyting á skilmálum
Lögð fram tillaga Borgarskipulags um viðbót við skilmála fyrir Fossaleynismýri. Ennfremur lagt fram minnisblað skrifstofustjóra borgarverkfræðings, dags. 12.4.'96.

Gunnari Jóh. Birgissyni falið að vinna frekar að málinu ásamt forstöðumanni Borgarskipulags og skrifstofustjóra borgarverkfræðings.

07">7. fundur 1996
Fossaleynir 2, breyting á skilmálum
Lögð fram tillaga Borgarskipulags um viðbót við skilmála fyrir Fossaleynismýri: Allar tegundir smásölu- og heildverslana eru leyfðar, nema matvöruverslanir (þ.e. verslanir sem falla undir flokkana 52.1 og 52.2 í Ísat 95) eru ekki leyfðar á athafnasvæðinu.
Frestað.

25. fundur 1996
Fossaleynir 2, afmörkun lóðar
Lagt fram bréf Ágústs Jónssonar, skrifst.stj. borgarverkfræðings, dags. 20.09.96, varðandi umsókn Heimilisvara ehf um lóð við Fossaleyni undir verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags að skiptingu lóðar við Fossaleyni 2, dags. 21.11.96.
Samþykkt.

5. fundur 1995
Fossaleynir 2, afmörkun lóðar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 7.2.95 á bókun skipulagsnefndar frá 6.2.95 um deiliskipulag lóðar fyrir meðferðarstöð barna og unglinga í Fossaleynismýri.



4. fundur 1995
Fossaleynir 2, afmörkun lóðar
Lagt fram að nýju bréf Björns Arnars Magnússonar f.h. félagsmálaráðuneytisins, dags. 14.9.94, þar sem óskað er eftir um 3000 m2 lóð fyrir móttöku- og meðferðarstöð fyrir börn og unglinga. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags að deiliskipulagi ásamt skilmálum, dags. 1.2.95.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu Borgarskipulags með athugasemd varðandi fjarlægð lóða frá Hallsvegi.
Vísað til umferðarnefndar og umhverfismálaráðs. Skipulagsskilmálum jafnframt vísað til byggingarnefndar.


22. fundur 1994
Fossaleynir 2, staðsetning meðferðarstöðvar fyrir börn og unglinga
Lagt fram bréf Björns Arnars Magnússonar f.h. fjármálaráðuneytisins, dags. 14.9.94, þar sem óskað er eftir um 3000 m2 lóð fyrir móttöku og meðferðarstöð fyrir börn og unglinga.

Frestað.