Gljúfrasel 11

Skjalnúmer : 9875

25. fundur 1994
Gljúfrasel 11, aukaíbúð
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.11.1994 á bókun skipulagsnefndar frá 07.11.94 um aukaíbúð að Gljúfraseli 11.



23. fundur 1994
Gljúfrasel 11, aukaíbúð
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 28.10.94, varðandi ósk um aukaíbúð að Gljúfraseli 11, samkv. uppdr. teiknist. Staðalhús, dags. í sept. 1994.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið með 4 samhlj. atkvæðum. (Guðrún Ágústsdóttir sat hjá).
Guðrún Ágústsdóttir óskaði bókað:
"Ég hefði kosið að skilmálar fyrir reitinn hefðu verið endurskoðaðir í heild m.t.t. fjölgunar íbúða".