Grófartorg

Skjalnúmer : 9802

18. fundur 1999
Grófartorg, tillögur
Lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 17. ágúst 1999 á bréfi skipulagsstjóra s.d. um auglýsingu deiliskipulags Grófartorgs.


13. fundur 1999
Grófartorg, tillögur
Lagt fram bréf borgastjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 11.5.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 10. s.m. um tillögur til úrbóta ástands Grófartorgs og auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar.


12. fundur 1999
Grófartorg, tillögur
Lagðar fram til kynningar tillögur til úrbóta og könnun á núverandi ástandi Grófartorgs skv. uppdr. og greinargerð Verkstæðis 3 arkitekta, dags. í júlí 1994 og maí og júní 1995. Einnig lagt fram bréf Þróunarfél. Reykjavíkur, dags. 5.9.95 og Hlaðvarpans, dags. 8.12.1994.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að tillaga nr. 1 verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar.

4. fundur 1996
Grófartorg, skipulag
Lagðar fram til kynningar tillögur Verkstæðis 3 að skipulagi Grófartorgs, dags. í maí 1995.



21. fundur 1995
Grófartorg, skipulag.
Lagt fram bréf Þróunarfélags Reykjavíkur, dags. 05.09.95, vegna kynningar á tillögum um skipulag Grófartorgs.



14. fundur 1995
Grófartorg, skipulag
Lagðar fram til kynningar tillögur Verkstæðis 3 að skipulagi Grófartorgs, dags. 16. júní 1995.

Kynna tillögurnar fyrir nágrönnum og hagsmunaaðilum.

21. fundur 1994
Grófartorg, ástand og horfur
Lögð fram að nýju tillaga arkitektastofunnar Verkstæði 3, Fjölnisvegi 3, dags. í júlí 1994, varðandi ástand á svæðinu og tillögur til úrbóta.

Skipulagsnefnd samþykkir að unnið skuli áfram með tillögu nr. 1. Borgarskipulagi falið að kynna tillöguna fyrir nágrönnum.

19. fundur 1994
Grófartorg, ástand og horfur
Lögð fram tillaga arkitektastofunnar Verkstæði 3, Fjölnisvegi 3, dags. í júlí 1994, varðandi ástand á svæðinu og tillögur til úrbóta.

Þorvaldur S. Þorvaldsson kynnti málið.