Tunguháls 5

Skjalnúmer : 9699

13. fundur 1994
Tunguháls 5, breytt fyrirkomulag húss á lóð
Lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs á bókun skipulagsnefndar frá 09.05.1994 um Tunguháls 5, breytt fyrirkomulag húss á lóðinni.



11. fundur 1994
Tunguháls 5, breytt fyrirkomulag húss á lóð
Lagt fram bréf Skúla H. Norðdahls, arkitekts, f.h. Tunguháls sf., dags. 28.4.94, varðandi hækkun húss, niðurfellingu á byggingarrétti tveggja álma og byggingu annarrar álmu á lóð nr. 5 við Tunguháls, samkv. uppdr. Skúla H. Norðdahls, dags. 27.4.94.

Skipulagsnefnd samþykkir hækkun húss um eina hæð og niðurfellingu á byggingarrétti tveggja álma, en synjar um byggingu annarrar álmu á lóðinni.