Sogavegur 218-224

Skjalnúmer : 9658

26. fundur 1995
Sogavegur 218-224, breytt lóðarmörk
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, um samþykkt borgarráðs 07.11.95 á bókun skipulagsnefndar frá 06.11.95 um breytt lóðarmörk að Sogavegi 218-224.



25. fundur 1995
Sogavegur 218-224, breytt lóðarmörk
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 30.10.95, varðandi erindi Einars S. Gottskálkssonar um leyfi til að breyta lóðarmörkum Sogavegar 222 til samræmis við lóðarmörk Sogavegar 218 og 220.

Samþykkt.

7. fundur 1994
Sogavegur 218-224, opið svæði, breytt lóðamörk
Lagt fram bréf gatnamálastjóra, dags. 17.3.94, varðandi erindi íbúa við Sogaveg um frágang á opnu svæði milli Sogavegar og Skógargerðis.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu nr. II með bréfi gatnamálastjóra. Ennfremur samþykkt breyting á mörkum lóðanna nr. 1 og 3 við Skógargerði og nr. 218 og 220 við Sogaveg.
Vísað til umhverfismálaráðs.