Hörpugata 4

Skjalnúmer : 9638

20. fundur 1994
Hörpugata 4, nýbygging
Lagt fram að nýju bréf Jens Guðmundssonar, dags. 21.2.94, varðandi ósk um að reisa einnar hæðar íbúðarhús til viðbótar að Hörpugötu 4, en á lóðinni er í dag portbyggt timburhús. Einnig lögð fram eftir kynningu tillaga Borgarskipulags, dags. 20.4.94.

Frestað.

9. fundur 1994
Hörpugata 4, nýbygging
Lagt fram bréf Jens Guðmundssonar, dags. 21.2.94, varðandi ósk um að reisa einnar hæðar íbúðarhús til viðbótar að Hörpugötu 4, en á lóðinni er í dag portbyggt timburhús. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 20.4.94.

Skipulagsnefnd samþykkir að fela Borgarskipulagi að kynna tillögu Borgarskipulags fyrir íbúum nærliggjandi húsa.