Sundahöfn

Skjalnúmer : 9634

15. fundur 1994
Sundahöfn/Eimskip, frystigeymslur
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar varðandi beiðni Eimskipafélags Íslands um að reisa frystigeymslur á lóð sinni við Sundahöfn, samkv. uppdr. Garðars Halldórssonar, arkitekts, dags. í maí 1994.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið samhljóða enda verði vegur færður frá klettanefinu eins og unnt er.
Vísað til umhverfismálaráðs.


6. fundur 1994
Sundahöfn/Eimskip, lóðabreytingar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs22.2.94 á bókun skipulagsnefndar frá 21.02.1994 um breytt lóðarmörk lóðar Eimskips við Sundahöfn.



4. fundur 1994
Sundahöfn/Eimskip, lóðabreytingar
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 14.2.94, varðandi erindi Reykjavíkurhafnar um breytingar á lóðum Eimskipafélags Íslands við Sundabakka í Sundahöfnum. Einnig lögð fram tillaga Reykjavíkurhafnar, dags. í febr. 1994.

Samþykkt.