Leirtjörn vestur

Skjalnúmer : 9352

11. fundur 1994
Leirtjörn,
Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 12.5.93 varðandi erindi Vélhjólaíþróttaklúbbsins um að fá til afnota landsvæði við Leirtjörn til vélhjólaíþróttaiðkunar.

Skipulagsnefnd samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun:
"Skipulagsnefnd mælir með því við borgarráð, að ekki verði gerðar athugasemdir við umbeðna notkun til bráðabirgða á landsvæði við Leirtjörn, enda liggi fyrir samþykki bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ".