Suðurgata, Bjarg

Skjalnúmer : 9315

22. fundur 1997
Suðurgata, Bjarg, stækkun lóðar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 28.10.97 á bókun skipulags- og umferðarnefndar 27. þ.m. um stækkun lóðar Bjargs við Suðurgötu


21. fundur 1997
Suðurgata, Bjarg, stækkun lóðar
Lagt fram bréf Edvards Skúlasonar, dags. 03.09.97, varðandi stækkun á lóð norðan við húsið Bjarg við Suðurgötu. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 24.09.97 og minnisblað SVR, dags. 07.10.97.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir erindið, enda verði grindverk við lóðamörk ekki hærra en 0,9 m og ekki fylgi lóðarstækkuninni aukinn byggingarréttur.