Hörpugata 12

Skjalnúmer : 9092

22. fundur 1999
Hörpugata 12, bílskúr
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 12. okt. 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 11. s.m. um byggingu bílskúrs að Hörpugötu 12.


3482. fundur 1999
Hörpugata 12 , bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á norðurlóðamörkum á lóðinni nr. 12 við Hörpugötu.
Stærð: Bílskúr 35,6 ferm., 101,5 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 2.538
Samþykki nágranna dags. 13. ágúst 1999 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndar frá 11. október 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


21. fundur 1999
Hörpugata 12 , bílskúr
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 27.08.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á norðurlóðamörkum á lóðinni nr. 12 við Hörpugötu, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Ármúla 6, dags. 27.07.84, br. 12.08.99. Samþykki nágranna dags. 13. ágúst 1999 fylgir erindinu. Málið var í kynningu til 5. okt. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt

18. fundur 1999
Hörpugata 12 , bílskúr
Lagt fram bréf frá byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 27.08.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á norðurlóðamörkum á lóðinni nr. 12 við Hörpugötu, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Ármúla 6, dags. 27.07.84, br. 12.08.99. Samþykki nágranna dags. 13. ágúst 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt að grenndarkynna umsóknina fyrir hagsmunaaðilum að Hörpugötu 9, 10, 11, 14 og Þorragötu 1.

3479. fundur 1999
Hörpugata 12 , bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á norðurlóðamörkum á lóðinni nr. 12 við Hörpugötu.
Stærð: Bílskúr 35,6 ferm., 101,5 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 2.538
Samþykki nágranna dags. 13. ágúst 1999 fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til ákvörðunar um grenndarkynningu.