Jafnasel 2-4 og 6

Skjalnúmer : 8933

20. fundur 1999
Jafnasel 2-4, br. á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 31.05.99, varðandi byggingu atvinnuhúsnæðis á lóðinni nr. 2-4 við Jafnasel, samkv. uppdr. Óla Jóhanns Ásmundssonar arkitekts, dags. í maí 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 8. júní 1999 ásamt breyttum teikningum, dags. í júlí ´99. Málið var í auglýsingu frá 6. ágúst til 3. sept. ´99, athugasemdafrestur var til 17. sept. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Breyting á deiliskipulagi samþykkt.

17. fundur 1999
Jafnasel 2-4, br. á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 20. júlí 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 19. s.m. um breytingu á deiliskipulagi að Jafnaseli 2-4.


16. fundur 1999
Jafnasel 2-4, br. á deiliskipulagi
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 31.05.99, varðandi byggingu atvinnuhúsnæðis á lóðinni nr. 2-4 við Jafnasel, samkv. uppdr. Óla Jóhanns Ásmundssonar arkitekts, dags. í maí 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 8. júní 1999 ásamt breyttum teikningum, dags. í júlí ´99.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að tillagan verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi.

8. fundur 1996
Jafnasel 2-4, sameining og uppbygging lóða, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 26.3.96 á bókun skipulagsnefndar frá 25.3.96 um stækkun lóða að Jafnaseli 2 - 4.



7. fundur 1996
Jafnasel 2-4, sameining og uppbygging lóða, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Kristins Ragnarssonar f.h. Jafnasels hf., dags. 20.3.96 varðandi sameiningu lóðanna Jafnasel 2-4 og 6, lóðarstækkun og uppbyggingu á lóðinni samkv. uppdr., dags. 20.3.96.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið enda verði við suðvestur- og suðausturmörk lóðarinnar kvöð um trjágróðurbelti.

1. fundur 1996
Jafnasel 2-4,
Lagt fram bréf Kristins Ragnarssonar f.h. Jafnasels hf., dags. 5.1.96, varðandi nýbyggingu á lóð nr. 2-4 við Jafnasel samkv. uppdr., dags. 5.1.96.

Skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að halda sig við skipulagsskilmála.

28. fundur 1995
Jafnasel 2-4, uppbygging lóðar
Lagt fram bréf B. Heiðdal f.h. Jafnasels hf., dags. 6.12.95, varðandi nýbyggingu á lóð nr. 2-4 við Jafnasel samkv. uppdr. Kristins Ragnarssonar, dags. 6.12.95.

Hús of stórt.