Skólabær, leikskóli

Skjalnúmer : 8656

22. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 14.10.97 á bréfi skipulagsstjóra frá 13. s.m. um breytingu á landnotkun á lóð við leikskóla við Skólabæ á grundvelli 19. gr. skipulagslaga.


19. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16.9.97 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. um leikskóla víð Skólabæ, lóðarafmörkun og breytta landnotkun ásamt heimild til auglýsingar.


17. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 01.09.97, að nýjum lóðarmörkum við leikskóla við Skólabæ og breytta landnotkun. Einnig lagt fram bréf umhverfismálaráðs, dags. 05.09.97.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að leggja til við borgarráð að óskað verði heimildar til að auglýsa breytta landnotkun skv. skipulagslögum.

16. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 08.07.97 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 07.07.97 um nýbyggingu og lóðarstækkun vegna leikskólans Skólabæjar.


16. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram að nýju bréf byggingardeildar, dags. 02.07.97, varðandi staðsetningu nýs leikskóla við Skólabæ og lóðarstækkun, samkv. tillögu Manfreðs Vilhjálmssonar arkitekts, dags. 02.07.97 að aflokinni fjögurra vikna kynningu. Einnig lagt fram bréf íbúa, dags. 15.08.97. Ennfremur lagðar fram umsagnir Dagvistar barna, dags. 22.08.97, Borgarskipulags, dags. 20.08.97 og umferðardeildar, dags 21.08.97. Einnig lagt fram bréf umhverfismálaráðs, dags. 22.08.97.
Samþykkt en endanlegri lóðarafmörkun frestað. Samþykkt að gera ráð fyrir "30-km öldu" samkvæmt tillögu umferðardeildar.

15. fundur 1997
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf byggingardeildar, dags. 02.07.97, varðandi staðsetningu nýs leikskóla við Skólabæ og lóðarstækkun, samkv. tillögu Manfreðs Vilhjálmssonar arkitekts, dags. 02.07.97.

Samþykkt að kynna málið fyrir nágrönnum og vísað til umsagnar umhverfismálaráðs

24. fundur 1995
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 10.10.95 á bókun skipulagsnefndar frá 09.10.95 um sameiningu lóða við Rofabæ fyrir leikskóla.



23. fundur 1995
Skólabær, leikskóli, lóðarafmörkun, breytt landnotkun
Lagt fram bréf Bergs Felixsonar f.h. Dagvistar barna, dags. 27.9.95, varðandi heimild til að sameina leikskólalóðirnar Selásborg og Rofaborg skv. uppdr. Reynis Vilhjálmssonar landslagsarkitekts dags. 26.9.95.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið samhljóða, en bendir á að æskilegt sé að göngustígur á lóðinni verði opinn utan starfstíma leikskólans. Ennfremur að hugað verði að litlum skikum, sem verða utan lóðar.