Ártúnshöfði, vesturhluti

Skjalnúmer : 8471

2. fundur 1998
Ártúnshöfði, vesturhluti, lóðir Reykjavíkurborgar
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir samhljóða svofellda bókun:
"Vegna endurskoðunar skipulags á Ártúnshöfða óskar skipulags- og umferðarnefnd eftir því að Borgarskipulag í samvinnu við embætti borgarverkfræðings láti gera úttekt á lóðum borgarinnar á Ártúnshöfða. Í framhaldi úttektar verði unnin þarfagreining og forsögn að deiliskipulagi. Gert er ráð fyrir að kynna þessa vinnu í lok mars."