Sóltún 5-9

Skjalnúmer : 8413

25. fundur 1999
Sóltún 5-9, lóðarmörk, breyttur byggingarreitur
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 23. nóvember 99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 22. s.m. um lóðamörk og breyttan byggingarreit að Sóltúni 5-9.


24. fundur 1999
Sóltún 5-9, lóðarmörk, breyttur byggingarreitur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf Ingimundar Sveinssonar ark. dags. 6.10.99 varðandi lóðarafmörkun vegna húsanna nr. 5, 7 og 9 við Sóltún, ásamt breyttum byggingarreit lóðar nr. 9 skv. uppdr. sama dags. 6.10.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 7. okt. 1999. Málið var í kynningu til 18. nóv. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt að óska eftir því við borgarráð að það fallist á kynnta breytingu.

21. fundur 1999
Sóltún 5-9, lóðarmörk, breyttur byggingarreitur
Lagt fram bréf Ingimundar Sveinssonar ark. dags. 6.10.99 varðandi lóðarafmörkun vegna húsanna nr. 5, 7 og 9 við Sóltún, ásamt breyttum byggingarreit lóðar nr. 9 skv. uppdr. sama dags. 6.10.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 7. okt. 1999.
Samþykkt að kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Sóltúni 11 og 13.