Lyngháls 1

Skjalnúmer : 8110

20. fundur 1999
Lyngháls 1, viðbygging
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts, dags. 27.05.99, varðandi viðbyggingu við Lyngháls 1, samkv. uppdr. Form + Rými, dags. 10.05.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 15.07.99. Málið var í auglýsingu frá 6. ágúst til 3. sept. ´99, athugasemdafrestur var til 17. sept. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Lagt fram bréf Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts,dags. 21.09.99, varðandi stækkun á fyrirhugaðri viðbyggingu, samkv. uppdr. sama, dags. 10.05.99, br. 21.09.99.
Samþykkt að grendarkynna stækkunina fyrir hagsmunaaðilum að Krókhálsi 4, Lynghálsi 2 og 3 og Réttarhálsi 2.

17. fundur 1999
Lyngháls 1, viðbygging
Lagt fram bréf Helgu Jónsdóttur f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 23.7. á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 19. s.m. um breytingu á deiliskipulagi á lóð nr. 1 við Lyngháls.


16. fundur 1999
Lyngháls 1, viðbygging
Lagt fram bréf Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts, dags. 27.05.99, varðandi viðbyggingu við Lyngháls 1, samkv. uppdr. Form + Rými, dags. 10.05.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 15.07.99.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að tillagan verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi.