Malarhöfði 2

Skjalnúmer : 7655

14. fundur 2000
Malarhöfði 2, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs dags. 13.06.00 um samþykkt borgarráðs sama dags á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 5.06.00 um lóðarstækkun að Malarhöfða 2.


12. fundur 2000
Malarhöfði 2, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Greiðabíla, dags. 15.05.00, varðandi stækkun á lóðinni nr. 2 við Malarhöfða til vesturs, samkv. teikningu Vinnustofunnar ARKO. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 25.05.00.
Lóðarstækkun um 12m synjað. Með vísan til umsagnar Borgarskipulags er samþykkt að veita 7m lóðarstækkun.

11. fundur 2000
Malarhöfði 2, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Greiðabíla, dags. 26.08.99, varðandi stækkun á lóðinni nr. 2 við Malarhöfða til vesturs, samkv. teikningu Vinnustofunnar ARKO. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 25.05.00.
Frestað.