Kleppsvegur 62

Skjalnúmer : 7629

22. fundur 1997
Kleppsvegur 62, umferð
Lagt fram bréf stjórnar húsfélagsins Kleppsvegi 62, dags. 26.05.97, varðandi umferð um Kleppsveginn. Einnig lagt fram bréf umferðardeildar, dags. 04.11.97.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkti svofellda bókun: "Því miður eru ekki fyrirhugaðar úrbætur í umferðarmálum á Sæbraut í nánustu framtíð samkvæmt núverandi vegaáætlun ríkisins. Borgaryfirvöld munu óska eftir því að þessi endurbót á Sæbraut komist inn á framkvæmdaáætlun næstu ára. Þegar sú breyting kemur til framkvæmda verður aðkoma betri heldur en er í dag um húsagötu meðfram Sæbraut. Samkvæmt reglum um styrki vegna hljóðvistar samþykktum í borgarráði 22. júlí 1997, geta íbúar að Kleppsvegi 62 sótt um styrk til borgarinnar til aðgerða gegn umferðarhávaða."