Bergþórugata 20

Skjalnúmer : 7526

6. fundur 1998
Bergþórugata 20, skilti
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 24.02.1998 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 23. s.m. um takmarkanir á bílastæðum við Bergþórugötu 20. Lögreglustjóra hefur verið sent erindið til kynningar.


5. fundur 1998
Bergþórugata 20, skilti
Lagt fram bréf Elínar Sigurðardóttur, dags. 24.11.97, varðandi uppsetningu á skilti við Barnaheimilið Ós á horni Bergþórugötu og Vitastígs, sem takmarkar þann tíma sem leyfilegt er að leggja bílum fyrir framan leikskólann. Ennfremur lögð fram tillaga umferðardeildar Borgarverkfræðings dags. 18.02.98.
Samþykkt.