Gufuneskirkjugarður

Skjalnúmer : 7490

11. fundur 2000
Gufuneskirkjugarður, þjónustumiðstöð
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf borgarstjóra, dags. 18.05.99, varðandi staðsetningu þjónustumiðstöðvar í Gufuneskirkjugarði, samkv. uppdr. Landmótunar ehf, dags. 07.07.99. Einnig lagt fram bréf Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, dags. 03.05.99. Einnig uppdr. Y.Þ.L. mótt. 14.7.99. Málið var í auglýsingu frá 12. apríl til 10. maí, athugasemdafrestur var til 24. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Auglýst tillaga samþykkt sem deiliskipulag fyrir svæðið.

6. fundur 2000
Gufuneskirkjugarður, þjónustumiðstöð
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 29. febrúar 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 21. s.m. um þjónustumiðstöð í Gufuneskirkjugarði og auglýsingu á breyttu aðalskipulagi í samræmi við deiliskipulagstillögu.


4. fundur 2000
Gufuneskirkjugarður, þjónustumiðstöð
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18.05.99, varðandi staðsetningu þjónustumiðstöðvar í Gufuneskirkjugarði, samkv. uppdr. Landmótunar ehf, dags. 07.07.99. Einnig lagt fram bréf Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, dags. 03.05.99. Einnig uppdr. Y.Þ.L. mótt. 14.7.99.
Samþykkt að óska eftir því við Borgarráð að tillagan verði auglýst sem deiliskipulag fyrir svæðið ásamt breytingu á AR. 1996-2016 í samræmi við deiliskipulagstillöguna.