Bragagata 34

Skjalnúmer : 7132

21. fundur 1999
Bragagata 34, hækkun á hæð og risi
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 28. sept. 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 27. s.m. um hækkun á hæð og risi að Bragagötu 34.


3481. fundur 1999
Bragagata 34 , hækkun um hæð og risi
Sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og þakhæð með kvistum í norður og suður ofan á núverandi einnar hæðar hús á lóðinni nr. 34 við Bragagötu.
Útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndar frá 27. september 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


20. fundur 1999
Bragagata 34 , hækkun um hæð og risi
Lagt framað nýju eftir grenndarkynningu bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 12.08.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og þakhæð með kvistum í norður og suður ofan á einnar hæðar hús á lóðinni nr. 34 við Bragagötu, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Torgsins, dags. 4. ágúst 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags dags. 18.08.99. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu.
Samþykkt.

17. fundur 1999
Bragagata 34 , hækkun um hæð og risi
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 12.08.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og þakhæð með kvistum í norður og suður ofan á einnar hæðar hús á lóðinni nr. 34 við Bragagötu, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Torgsins, dags. 4. ágúst 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags dags. 18.08.99.
Samþykkt að kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Bragagötu 29, 31, 32, 33, 33a, 34a og 34b.

3478. fundur 1999
Bragagata 34 , hækkun um hæð og risi
Sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og þakhæð með kvistum í norður og suður ofan á einnar hæðar hús á lóðinni nr. 34 við Bragagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar Borgarskipulags.