Austurbakki 2

Skjalnúmer : 6624

60. fundur 2002
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Niðurstaða hugmyndasamkeppni um skipulag miðborgar og hafnarsvæðis við Austurhöfn.
Albína Thordarson og Sólveig Berg Björnsdóttir kynntu niðurstöðu samkeppninnar.

58. fundur 2002
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lagður fram samningur ríkis og borgar um tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel.
Kynnt.

7. fundur 2000
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 14. mars 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 6. s.m. um afmörkun lóðar tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels. Jafnframt var lagt fram minnisblað borgarverkfræðings, dags. 13. þ.m. Borgarráð samþykkti þær tillögur sem fram koma í erindi borgarverkfræðings.


6. fundur 2000
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lagt fram minnisblað borgarverkfræðings um TRH, dags. 06.03.00, ásamt TRH, stutt lýsing. Afmörkun lóðar og helstu forsendur varðandi nýtingu hennar. Einnig lögð fram lóðarafmörkun við Austurbakka, norðan og sunnan Geirsgötu, sbr. uppdr. í kvarða 1:2500, dags. 07.03.00.
Tillögur borgarverkfræðings samþykktar með þeim breytingum að sýnt verði á uppdráttum að mögulegt sé að byggja yfir Geirsgötu, skýrar verði kveðið á um það í lýsingu. Í lýsingu verði einnig kveðið skýrar á um löndunaraðstöðu á svæðinu.

5. fundur 2000
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lagt fram minnisblað borgarverkfræðings, dags. 25.02.00, ásamt minnisblaði VSÓ, dags. 28.02.00.
Borgarverkfræðingur kynnti.

1. fundur 2000
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Kynnt að nýju gögn varðandi tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð.
Steve Christer kynnti.

26. fundur 1999
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lögð fram til kynningar ný gögn varðandi lóð tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í miðborg Reykjavíkur. Einnig lagt fram bréf Íbúasamtaka Grjótaþorps, dags. 01.06.99.
Stefán Hermannsson kynnti.

7. fundur 1999
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lögð fram til kynningar ný gögn varðandi lóð tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í miðborg Reykjavíkur.
Borgarverkfræðingur kynnti.

1. fundur 1999
Austurhöfn Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lögð fram til kynningar gögn varðandi lóð tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í miðborg Reykjavíkur.


7. fundur 1998
Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðismanna, varðandi könnun á möguleika þess að byggja tónlistarhús á lóð Eimskipafélags Íslands við Skúlagötu.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkti eftirfarandi bókun með 4 atkv.
"Í samræmi við vinnu við stefnumótun fyrir miðborg Reykjavíkur, er verið að skoða staðsetningu fyrir tónlistarhús. Í stefnumótun fyrir miðborgina voru tilgreindar nokkrar lóðir sem taldar eru gegna lykilhlutverki í framgangi miðborgarinnar, lóð Eimskipafélagsins er þar á meðal og kemur því til álita.
Tillögu minnihlutans er vísað til þeirrar vinnu".


6. fundur 1998
Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel,
Lögð fram eftirfarandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðismanna:
Lögð fram eftirfarandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðismanna:
"Skipulags- og umferðarnefnd Reykjavíkur samþykkir að beina því til borgarráðs að kannaður verði sá möguleiki að byggt verði tónlistarhús á lóð Eimskipafélagsfélags Íslands hf. við Skúlagötu.
Könnunin feli það í sér að skoðað verði gaumgæfilega nýtingarmöguleikar lóðarinnar í þessum tilgangi og hvernig tónlistarhús á þessum stað fellur að umhverfi og annarri byggð á svæðinu. Í þeirri skoðun verði lögð áhersla á að kanna möguleika á því að byggja tónlistarhúsið í tengslum við fyrirhugaða hótelbyggingu á lóðinni.
Könnunin verði unnin í fullu samráði og samvinnu við menntamálaráðuneytið, lóðarhafa, áhugamenn um byggingu tónlistarhúss, aðila í ferðaþjónustu og hugsanlega fjárfestingaraðila. Skipaður verði sérstakur samráðshópur þessara aðila til þess að halda utan um verkefnið. Borgarskipulag Reykjavíkur verði slíkum samráðshópi til ráðgjafar.
Tillögunni fylgir greinargerð.
Frestað.