Suðurgata 41, Þjóðminjasafn

Skjalnúmer : 6564

26. fundur 1998
Suðurgata 41, Þjóðminjasafn, stækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 24.11.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 23. s.m. um viðbyggingu við Þjóðminjasafnið að Suðurgötu 41.


25. fundur 1998
Suðurgata 41, Þjóðminjasafn, stækkun
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 13.11.98, varðandi viðbyggingu við Þjóðminjasafn Íslands á lóðinni nr. 41 við Suðurgötu, samkv. uppdr. Hornsteina arkitekta, dags. 21.10.98 ásamt bréfi og greinargerð sama, dags. 03.11.98 og samkomulagi, dags. 19.11.98. Einnig lögð fram umsögn Árbæjarsafns, dags. 12.11.98 og Borgarskipulags, dags. 20.11.98.
Vísað til athugunar umferðardeildar að því er varðar aðkomu og umferðarmál, en samþykkt að öðru leyti.