Skipholtsreitur vegna Skipholts 29

Skjalnúmer : 6213

9. fundur 1994
Skipholt 29, íbúð
Lagt fram bréf borgarritara f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 12.04.1994 á bókun skipulagsnefndar frá 11.04.1994 um Skipholt 29A, íbúð.



8. fundur 1994
Skipholt 29, íbúð
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 11.3.94, varðandi ósk Kirkjuhvols hf. um að byggja kvist og innrétta íbúð á 3ju hæð í verslunar- og skrifstofuhúsi við Skipholt 29A samkv. tillögum Teiknistofunnar hf. Ármúla 6, dags. 6.4.94.

Samþykkt. Guðrún Jónsdóttir sat hjá.