Háaleitisbraut 41-43

Skjalnúmer : 6196

7. fundur 2002
Háaleitisbraut 41-43, deiliskipulag
Lögð fram tillaga VST, dags. í águst 2001 að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 41-43 við Háaleitsbraut. Einnig lagður fram uppdráttur dags. í nóv. 2000, með samþykki lóðarhafa og Sölva Sveinssonar rektors Fjölbrautarskólans við Ármúla, dags. 27.03.01.
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Síðumúla 2 og 4, og Fjölbrautarskólann við Ármúla.

3. fundur 1996
Háaleitisbraut 41-43, stækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 26.1.96 á bókun skipulagsnefndar frá 22.1.96 um Háaleitisbraut 41-43, stækkun lóðar.



2. fundur 1996
Háaleitisbraut 41-43, stækkun
Lagt fram bréf fulltrúa íbúa við Háaleitisbraut 41-43, dags. 27.11.95, varðandi stækkun lóðarinnar. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 18.1.96.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu Borgarskipulags.