Borgartún 5 og Sætún 6

Skjalnúmer : 6193

25. fundur 1996
Borgartún 5 og Sætún 6, ofanábygging
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, f.h. byggingarnefndar, dags. 13.09.96, vegna fyrirspurnar Vegagerðarinnar um að byggja tvær hæðir ofan á hús nr. 5 við Borgartún, samkv. uppdr. Tækniþjónustunnar s.f., dags. í júlí 1996. Einnig lagt fram bréf Vegagerðarinnar, dags. 31.10.96.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir stækkunina fyrir sitt leyti, en bendir á að samræma þarf útlit götuhliðar betur að húsi nr. 7 við Borgartún áður en málið verður lagt fyrir byggingarnefnd.

22. fundur 1996
Borgartún 5 og Sætún 6, ofanábygging og sameining lóða
Lagt fram bréf borgarsjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 8.10.96 á bókun skipulagsnefndar frá 7.10.96 um ofanábyggingu og sameiningu lóða að Borgartúni 5 og Sætúni 6,



21. fundur 1996
Borgartún 5 og Sætún 6, ofanábygging og sameining lóða
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, f.h. byggingarnefndar, dags. 13.09.96, vegna fyrirspurnar Vegagerðarinnar um leyfi til að sameina lóðirnar Borgartún 5 og Sætún 6 og byggja tvær hæðir ofan á hús nr. 5 við Borgartún, samkv. uppdr. Tækniþjónustunnar s.f., dags. í júlí 1996.
Skipulagsnefnd samþykkir sameiningu lóðanna Borgartún 5 og Sætún 6, en frestar málinu að öðru leyti.