Selvogsgrunn/Dalbraut

Skjalnúmer : 6190

22. fundur 1997
Selvogsgrunn/Dalbraut, gatnamót
Lagt fram bréf Maríu Gunnarsdóttur og Harðar Kristjánssonar, dags. 24.08.97, varðandi gatnamót Selvogsgrunns og Dalbrautar. Einnig lagt fram bréf umferðardeildar, dags. 05.11.97.
Svofelld bókun var samþykkt samhljóða. "Hverfið sem Selvogsgrunn tilheyrir er eitt af þeim hverfum sem til álita koma að gera að 30 km hverfum á næstu árum. Gatnamótin við Dalbraut verða skoðuð í því samhengi."