Efstasund 69

Skjalnúmer : 6169

1. fundur 2000
Efstasund 69, bílskúr og geymsla
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 21. desember 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 20. s.m. um Efstasund 69, byggingu bílageymslu.


3487. fundur 1999
Efstasund 69, bílskúr og geymsla
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta bílgeymslu á norðausturhorni lóðarinnar nr. 69 við Efstasund.
Stærð: Bílgeymsla 36 ferm., 102,6 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 2.565
Samþykki nágranna dags. 20. mars 1998 fylgir erindinu.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndar frá 20. desember 1999.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


26. fundur 1999
Efstasund 69, bílskúr og geymsla
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 13.09.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta bílgeymslu á norðausturhorni lóðarinnar nr. 69 við Efstasund, samkv. uppdr. Tækniþjónustunnar sf, dags. 01.07.99, br. 12.10.99. Þinglýst yfirlýsing nágranna dags. 20. mars 1998 fylgir erindinu. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 04.10.99. Málið var í kynningu til 9. des. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi í samræmi við umsókn.

23. fundur 1999
Efstasund 69, bílskúr og geymsla
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 13.09.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta bílgeymslu á norðausturhorni lóðarinnar nr. 69 við Efstasund, samkv. uppdr. Tækniþjónustunnar sf, dags. 01.07.99, br. 12.10.99. Þinglýst yfirlýsing nágranna dags. 20. mars 1998 fylgir erindinu. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 04.11.99.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum við Efstasund 67, 68, 70, 71 og Skipasund 60, 62 og 64 á grundvelli 2. mgr. 23. gr. laga nr 73/1997 sbr. 7. mgr. 43. gr. sömu laga.

3480. fundur 1999
Efstasund 69, bílskúr og geymsla
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta bílgeymslu á norðausturhorni lóðarinnar nr. 69 við Efstasund.
Stærð: Bílgeymsla 36 ferm., 102,6 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 2.565
Samþykki nágranna dags. 20. mars 1998 fylgir erindinu.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til ákvörðunar um grenndarkynningu.