Austurstræti - skilti

Skjalnúmer : 6126

8. fundur 1996
Austurstræti, endurbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 2.4.96 á bókun skipulagsnefndar frá 11.3.96 um fegrun Austurstrætis, en vísaði jafnframt málinu til frekari meðferðar Borgarskipulags og borgarverkfræðings.



5. fundur 1996
Austurstræti, endurbygging
Lögð fram tillaga Guðna Pálssonar, arkitekts, dags. 6.3.96 að nýju útliti Austurstrætis.

Samþykkt. Vísað til menningarmálanefndar með tilliti til hugsanlegrar staðsetningar listaverka. Vísað til umferðarnefndar og umhverfismálaráðs.

3. fundur 1996
Austurstræti, endurbygging
Lagt fram bréf borgarverkfræðings, dags. 5.2.96, varðandi forsendur fyrir hönnun endurbyggingar Austurstrætis.

Samþykkt með fyrirvara um bílastæði og hlið.