Básbryggja 51

Skjalnúmer : 5855

16. fundur 1999
Básbryggja 51, lóðarstækkun
Að lokinni auglýsingu eru lögð fram að nýju bréf Þormóðs Sveinssonar arkitekts, dags. 16.03.99 og 03.05.99, varðandi lóðarstækkun vegna bílskúrslóðar Básbryggju 51, samkv. uppdr. Gunnlaugs Stefáns Baldurssonar arkitekts, dags. 02.05.99. Einnig lagt fram samþykki lóðarhafa að Básbryggju 23-49 og meðlóðarhafa að aðkomulóð fyrir Básbryggju 23-51 og Básbryggju 51, dags. 03.05.99. Ennfremur lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 06.05.99. Málið var í auglýsingu frá 26.05.-23.06.99, athugasemdafrestur var til 7. júlí ´99. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt.

13. fundur 1999
Básbryggja 51, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 11.5.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 10. s.m. um auglýsingu lóðarstækkunar að Básbryggju 51.


12. fundur 1999
Básbryggja 51, lóðarstækkun
Lögð fram bréf Þormóðs Sveinssonar arkitekts, dags. 16.03.99 og 03.05.99, varðandi lóðarstækkun vegna bílskúrslóðar Básbryggju 51, samkv. uppdr. Gunnlaugs Stefáns Baldurssonar arkitekts, dags. 02.05.99. Einnig lagt fram samþykki lóðarhafa að Básbryggju 23-49 og meðlóðarhafa að aðkomulóð fyrir Básbryggju 23-51 og Básbryggju 51, dags. 03.05.99. Ennfremur lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 06.05.99.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi.

2. fundur 1999
Básbryggja 51, breytingar, reiðhjólageymsla
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 12.01.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 11. s.m. um Básbryggju 51, breytingar á húsinu og staðsetningu á reiðhjólageymslu.


1. fundur 1999
Básbryggja 51, breytingar, reiðhjólageymsla
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 09.12.98, varðandi staðsetningu reiðhjólageymslu og breytingar á húsinu á lóðinni nr. 51 við Básbryggju, samkv. uppdr. Gunnlaugs Stefáns Baldurssonar arkitekts, dags. 01.12.98 og 07.01.99.
Samþykkt

26. fundur 1998
Básbryggja 51, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 24.11.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 23. s.m. um lóðarstækkun við Básbryggju 51.


25. fundur 1998
Básbryggja 51, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Þormóðs Sveinssonar arkitekts, dags. 03.11.98, varðandi lóðarstækkun á lóðinni nr. 51 við Básbryggju, samkv. uppdr. Gunnlaugs Stefáns Baldurssonar arkitekts, dags. 19.10.98, br. 18.11.98. Einnig lagt fram bréf Björns Ólafs arkitekts, mótt. 18.11.98 og umsögn Borgarskipulags, dags. 19.11.98.
Samþykkt