Naustabryggja 21-29

Skjalnúmer : 5812

16. fundur 1999
Naustabryggja 21-29, fjölgun íbúða
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 29.06.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 28. s.m. um fjölgun íbúða að Naustabryggju 21-29.


15. fundur 1999
Naustabryggja 21-29, fjölgun íbúða
Lögð fram bréf Björgunar ehf, dags. 15.06.99, varðandi færslu á 6 íbúðum frá Naustabryggju 55-57 til húsanna Naustabryggju 21-29. Kvöð um 12 bílastæði færðist þá einnig á milli húsanna. Einnig lagt fram samþykki skipulagshöfundar dags. 21.06.99, ásamt umsögn Borgarskipulags dags. 16.06.99.
Samþykkt með vísan í umsögn Borgarskipulags