Bakkasel 29

Skjalnúmer : 5645

23. fundur 1999
Bakkasel 29, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 26. okt. 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 25. s.m. um lóðarstækkun að Bakkaseli 29.


22. fundur 1999
Bakkasel 29, lóðarstækkun
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf Egils Gunnsteinssonar, dags. 11.08.99, varðandi lóðarstækkun við vesturenda Bakkasels 29. Einnig lagt fram samþykki eigenda Bakkasels 25 og 27 og umsögn Borgarskipulags, dags. 16.09.99. Málið var í kynningu til 20. okt. 1999. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt

19. fundur 1999
Bakkasel 29, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Egils Gunnsteinssonar, dags. 11.08.99, varðandi lóðarstækkun við vesturenda Bakkasels 29. Einnig lagt fram samþykki eigenda Bakkasels 25 og 27 og umsögn Borgarskipulags, dags. 16.09.99.
Fallist er á umsögn Borgarskipulags. Kynna skal erindið fyrir hagsmunaaðilum að Brekkuseli 14, 16, 18, 20, 22, 24 og Bakkaseli 31, 33 og 35.