Bústaðavegur 69

Skjalnúmer : 5454

24. fundur 1998
Bústaðavegur 69, breyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 20.10.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 12.10.98 um breytingar vegna Bústaðavegar 69.


22. fundur 1998
Bústaðavegur 69, breyting
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 23.09.98, varðandi leyfi fyrir áður gerðri breytingu varðandi gerð forstofuviðbyggingar og breyttrar útfærslu svala á húsinu nr. 69 við Bústaðaveg, samkv. uppdr. Teiknist. Laugavegi 42, dags. 17.05.89, síðast br. 30.06.98. Samþykki meðeigenda, dags. 15.09.98, fylgir erindinu. Ennfremur lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 9.10.98.
Nefndin samþykkir inngang og bogadregnar svalir, en felur Borgarskipulagi með vísan í framlagða umsögn að endurskoða gildandi skilmála fyrir svæðið varðandi forstofuviðbyggingar, svalir, garðskúra og staðsetningar bíla á lóðum og kynna þá hagsmunaaðilum.