Dalhús

Skjalnúmer : 5438

23. fundur 1998
Dalhús, hraðahindranir - umferðaröryggisnefnd
Lagt fram bréf Elísabetar Jónsdóttur og Sigurgeirs Ólafssonar, dags. 12.08.98, varðandi hraðahindranir í Dalhúsum í Grafarvogi. Einnig lagt fram bréf umferðardeildar, dags. 15.10.98.
Tillaga umferðardeildar um þrengingu við Dalhús 60 og 62, til að draga úr umferðarhraða, samþykkt. Umferðardeild falið að kynna erindið fyrir íbúum á áðurgreindum lóðum við Dalhús.
Skipulags- og umferðarnefnd staðfestir afgreiðslu umferðaröryggisnefndar.