Sólvallagata 80-84

Skjalnúmer : 5433

6. fundur 2000
Sólvallagata 80, fjölbýlishús
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 29. febrúar 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 21. s.m. um fjölbýlishús að Sólvallagötu 80.


4. fundur 2000
Sólvallagata 80, fjölbýlishús
Lögð fram bréf Jóns Guðmundssonar arkitekts, dags. 27.10.99 og 15.12.99, ásamt greinargerð, dags. 15.12.99, varðandi byggingu fjölbýlishúss á lóðinni nr. 80 við Sólvallagötu, samkv. uppdr. sama, dags. 21.10.99, br. 07.12.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 30.11.99 og bréf ritara borgarstjóra, dags. 28.12.99.
Synjað að svo stöddu. Samþykkt að óska heimildar borgarráðs til að vinna deiliskipulag af reitnum. Fyrirliggjandi erindi verði haft til hliðsjónar við þá vinnu.