Bústaðavegur 71

Skjalnúmer : 5259

22. fundur 1998
Bústaðavegur 71, breyting
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags.23.09.98, varðandi leyfi fyrir áður gerðri breytingu m.a. varðandi gerð forstofuviðbyggingar, breyttrar útfærslu svala og garðhúss á húsinu nr. 71 við Bústaðaveg, samkv. uppdr. Teiknist. Laugavegi 42, dags. 17.05.98, síðast br. 30.06.98. Samþykki meðeigenda, dags. 15.09.98, fylgir erindinu. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 9.10.98.
Nefndin samþykkir erindið með vísan í umsögn Borgarskipulags og felur Borgarskipulagi með vísan í sömu umsögn að endurskoða gildandi skilmála fyrir hverfið varðandi forstofuviðbyggingar, svalir, garðskúra og staðsetningar bíla á lóðum og kynna þá hagsmunaaðilum.