Steinagerði 14

Skjalnúmer : 5241

22. fundur 1999
Steinagerði 14, stækkun á risi, bygging bílskúrs
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 12. okt. 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 11. s.m. um stækkun á risi og byggingu bílskúrs að Steinagerði 14.


3482. fundur 1999
Steinagerði 14 , stækka ris og nýr bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvist í suður og norður og byggja steinsteyptan bílskúr á norðurlóðamörkum á lóðinni nr. 14 við Steinagerði.
Stærð: Íbúðarhús 2. hæð 25,4 ferm., 131,5 rúmm., bílskúr 35,9 ferm., 105,5 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 5.925
Útskrift úr gerðabók skipulags- og umferðarnefndar frá 11. október 1999 og umsögn Borgarskipulags dags. 27. ágúst 1999 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


21. fundur 1999
Steinagerði 14 , stækka ris og nýr bílskúr
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 30.07.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvist í suður og norður og byggja steinsteyptan bílskúr á norður lóðamörkum á lóðinni nr. 14 við Steinagerði, samkv. uppdr. Verkfræðistofunnar Hamraborg, dags. í júní 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 27. ágúst 1999. Málið var í kynningu til 5. okt. 1999. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt

18. fundur 1999
Steinagerði 14 , stækka ris og nýr bílskúr
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 30.07.99, þar sem sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvist í suður og norður og byggja steinsteyptan bílskúr á norður lóðamörkum á lóðinni nr. 14 við Steinagerði, samkv. uppdr. Verkfræðistofunnar Hamraborg, dags. í júní 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 27. ágúst 1999.

Fallist er á umsögn Borgarskipulags. Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum við Steinagerði 12, 13 og 16 og Teigagerði 11 og 13.

Sjá umsögn BS í minnispunktum.


3477. fundur 1999
Steinagerði 14 , stækka ris og nýr bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvist í suður og norður og byggja steinsteyptan bílskúr á norður lóðamörkum á lóðinni nr. 14 við Steinagerði.
Stærð: Íbúðarhús 2. hæð 25,4 ferm., 131,5 rúmm., bílskúr 35,9 ferm., 105,5 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 5.925
Frestað.
Minnka skal glugga í kvisti á suðurhlið.
Málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til ákvörðunar um grenndarkynningu.