Kjalarnes, Esjugrund 14

Skjalnúmer : 10169

19. fundur 1999
Kjalarnes, Esjugrund 14, bílgeymslur
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 31. ágúst 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 30. s.m. um byggingu tveggja bílgeymslna að Esjugrund 14.


18. fundur 1999
Kjalarnes, Esjugrund 14, bílgeymslur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 26.06.99, varðandi byggingu tveggja stakstæðra bílgeymslna, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Kvarða, dags. í júní ´95. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 15.07.99. Málið var í kynningu frá 29. júlí til 26. ágúst 1999. Lagt fram samþykki íbúa í Esjugrund 12, 16, 16a og 20, dags. 6. ágúst 1999. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt.

16. fundur 1999
Kjalarnes, Esjugrund 14, bílgeymslur
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 26.06.99, varðandi byggingu tveggja stakstæðra bílgeymslna, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Kvarða, dags. í júní ´95. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 15.07.99.
Samþykkt að kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Esjugrund 12A, 16, 16A og 20.