Birtingakvísl 62-68

Skjalnúmer : 10111

14. fundur 1996
Birtingakvísl 62-68, bílastæði
Lagt fram bréf gatnamálastjóra, dags. 26.3.96, varðandi erindi Björns Níelssonar um gerð bílastæða á leiksvæði vestan Birtingakvíslar 62. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 21.6.96.

Skipulagsnefnd samþykkir að lóð raðhúsanna nr. 62-68 við Birtingakvísl verði stækkuð út í leiksvæðið og að gerð verði 3 bílastæði, sbr. tillögu Borgarskipulags, dags. 21.6.96. Framkvæmdir verði á kostnað lóðarhafa. Vísað til umhverfismálaráðs.