Hlaðbær 17

Skjalnúmer : 10105

8. fundur 1996
Hlaðbær 17, viðbygging og afmörkun lóðar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 19.3.96 á bókun skipulagsnefndar frá 18.3.96 um Hlaðbæ 17, viðbyggingu og afmörkun lóðar. Jafnfram var lagt fram bréf skrifstofustjóra byggingarfulltrúa, dags. s.d., varðandi málið.



6. fundur 1996
Hlaðbær 17, viðbygging og afmörkun lóðar
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 18.12.95, varðandi viðbyggingu við leikskóla að Hlaðbæ 17, samkv. uppdr. vinnustofunnar KÍM sf., dags. 6.12.95. Einnig lagðar fram athugasemdir sem fram komu vegna kynningar. Ennfremur lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa um athugasemdir nágranna, dags. 18.3.'96. Jafnframt lögð fram tillaga KÍM sf., vinnustofu arkitekta, dags. 26.1.'96, að breyttum lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur um viðbyggingu og breytt lóðarmörk.

1. fundur 1996
Hlaðbær 17, viðbygging
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 18.12.95, varðandi viðbyggingu við leikskóla að Hlaðbæ 17, samkv. uppdr. vinnustofunnar KÍM sf., dags. 6.12.95.