Reitur 1.191.1

Skjalnúmer : 10052

17. fundur 1995
Reitur 1.191.1, lokun gangvegar með hliði
Lagt fram bréf Bolla R. Valssonar f.h. íbúa fjölbýlishúsa við Barónsstíg, Njálsgötu, Snorrabraut og Bergþórugötu, dags. 12.7.95, varðandi ósk um að setja opnanlegt hlið sitt hvoru meginn á gangveg, sem liggur um lóðir húsanna, þ.e. við Snorrabraut og Barónsstíg.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar því til byggingarnefndar.