Lækjahverfi

Skjalnúmer : 10023

1. fundur 1996
Lækjahverfi, umferð
Lagt fram bréf yfirverkfræðings umferðardeildar f.h. umferðanefndar, dags. 8.12.95, varðandi lækkun hámarkshraða í Lækjahverfi norðan Sundlaugavegar og vestan Dalbrautar.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tilraunaverkefni með lækkun hámarkshraða í Lækjahverfi og óskar eftir að nefndinni verði gerð grein fyrir framkvæmdinni.

13. fundur 1995
Lækjahverfi, umferð
Lagt fram bréf yfirverkfræðings umferðardeildar f.h. umferðarnefndar, dags. 23.5.95, varðandi afmörkun svæðis norðan Sundlaugavegar, vestan Dalbrautar og austan Sæbrautar með 30 km/klst. hámarkshraða.

Samþykkt.