Vatnagarðar 38

Skjalnúmer : 10001

15. fundur 1998
Vatnagarðar 38, breytt notkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykki borgarráðs 22.06.98 varðandi bréf borgarverkfræðings, dags. 22.06.98, um heimild til Þyrpingar hf, til að reka bíla- og fellihýsasölu á lóð nr. 38 við Vatnagarða.


12. fundur 1998
Vatnagarðar 38, breytt notkun
Lagt fram bréf borgarverkfræðings dags. 3.06.98 ásamt bréfi Þyrpingar hf. sama dags varðandi breytt afnot af lóðinni.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

12. fundur 1995
Vatnagarðar 38, staðsetning bensínsölu
Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 03.05.95, varðandi erindi Orkunnar hf. um lóð við Vatnagarða 38 undir bensínsölu. Ennfremur lagt fram bréf Olíufélagsins h.f., dags. 29.05.95.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um aðkomu að lóðinni. Nefndin fellst hins vegar ekki á, að á lóðinni verði jafnframt söluturn.

11. fundur 1995
Vatnagarðar 38, staðsetning bensínsölu
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 3.5.95 varðandi erindi Orkunnar hf. um lóð við Vatnagarða 38 undir bensínsölu. Einnig lagt fram minnisblað borgarverkfræðings um bensínstöðvarlóðir og/eða bensínsölulóðir, dags. 17.5.95.

Frestað.