Aðalstræti 6, Austurstræti 9, Bjargarstígur 16, Borgartún 26, Borgartún 33, Borgartún 8-16, Fífusel 25-41, Fossaleynir 14, Geirsgata 9, Haukdælabraut 70, Hátún 10-12, Hringbraut 12, Hörgshlíð 2, Í Úlfarsárlandi 173282, Kirkjustétt 2-6, Kirkjustétt 36-40, Kringlan 5, Kringlan 7, Krummahólar 2, Laugavegur 105, Laugavegur 176, Látrasel 9, Mýrargata 26, Nauthólsvegur 50, Njálsgata 33B, Reynimelur 61, Sigtún 37, Skeifan 19, Skildinganes 24, Skólavörðustígur 40, Smáragata 7, Sogavegur 162, Sóleyjarimi 19-23, Suðurlandsbraut 66, Súðarvogur 6, Sörlaskjól 80, Tjarnargata 30, Víðines hjúkrunarh. 125773, Barónsstígur 28, Bauganes 37A, Fellsmúli 28, Fljótasel 1-17, Háagerði 12, Hringbraut 106, Hverfisgata 50, Langagerði 32, Laugarnesvegur 77, Laugavegur 30, Lofnarbrunnur 40-42, Sundlaugavegur 30,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

702. fundur 2012

Árið 2012, þriðjudaginn 2. október kl. 09:45 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 702. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherbergi 2. hæð austur Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn:
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 45021 (01.13.650.2)
510907-0940 Reitir I ehf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
1.
Aðalstræti 6, Breytingar á gluggum o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum og útliti austurhliðar jarðhæðar, þeir verða settir í gólfhæð og rennihurð sett í gluggaflöt, skyggni yfir jarðhæð verður að einni heild í stað þriggja, í anddyri verður opnuð aftur hurð inn í rými hótelsins i húsi nr. 6 við Aðalstræti.
Jákvæð fyrirspurn BN044498 um skiptingu gluggafleta á jarðhæð og 2 hæð fylgir.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 45030 (01.14.021.0)
520995-2779 Austurstræti 9 ehf
Pósthólf 8011 128 Reykjavík
2.
Austurstræti 9, Breytingar 2. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í veitingasal og innrétta "almenningsþvottahús" og "setustofu" í flokki III fyrir 120 gesti á 2. hæð í húsi á lóð nr. 9 við Austurstræti.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44177 (01.18.442.0)
170263-5459 Svava Kristín Ingólfsdóttir
Bjargarstígur 16 101 Reykjavík
3.
Bjargarstígur 16, Áður gerðar svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum svölum úr áli og timbri á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 16 við Bjargarstíg.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 2. mars og Minjasafns Reykjavíkur dags. 9. mars bæði 2012 þar sem hvorugur gerir athugasemd við erindið.
Erindi var grenndarkynnt frá 20. apríl til og með 22. maí 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Einar Guðjónsson dags. 22. maí 2012 og Tinna Jóhannsdóttir dags. 22. maí 2012. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 29. maí 2012.
Áður gerð geymsla 3,9 ferm., 10,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 884

Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.


Umsókn nr. 44963 (01.23.000.2)
640809-0510 LF6 ehf
Álfheimum 74 104 Reykjavík
4.
Borgartún 26, Loftnet
Sótt er um leyfi til að setja 2 ný loftnet frá símanum á þak hússins á lóð nr. 26 við Borgartún.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44978 (01.21.910.1)
521009-1010 Reginn A1 ehf.
Hagasmára 1 201 Kópavogur
5.
Borgartún 33, Hækkun húss - breyting úti
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN044277, hætt er við að rífa hringstiga og hann framlengdur ofan í kjallara, þakvirki er breytt sem og innra skipulagi á öllum hæðum í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 33 við Borgartún.
Stækkun: 274,7 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 23.350

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 45009 (01.22.010.7)
681205-3220 Höfðatorg ehf.
Stórhöfða 34-40 110 Reykjavík
6.
Borgartún 8-16, Breyting - rými 1201
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í skrifstofurými 1201 á 12. hæð í Höfðatúni 2 á lóðinni 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44983 (04.97.040.3)
531205-0810 Nova ehf.
Lágmúla 9 108 Reykjavík
7.
Fífusel 25-41, 35-37 - Tækjaskápur og loftnet
Sótt er um leyfi til að setja upp farsímaloftnet á þak og tækjaskáp í kjallara á fjölbýlishússins nr. 35-37 á lóð nr. 25-41 við Fífusel.
Samþykki húsfélags dags. 13 júlí 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44989 (02.46.730.3)
471103-2090 Íslenska Kristsk fast.félag ehf
Fossaleyni 14 112 Reykjavík
8.
Fossaleynir 14, Breyting inni - útbygging
Sótt er um leyfi til að flytja til hurð og stækka á vesturgafli , gluggum á útbyggingu breytt og innra skipulagi og brunatáknum breytt í húsinu á lóð nr. 14 við Fossaleyni.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 44975 (01.11.730.9)
590588-1219 Kaldidalur ehf
Stangarhyl 5 110 Reykjavík
9.
Geirsgata 9, Breyta útliti
Sótt er um leyfi til að innrétta verslun í sal í s-v hluta og breyta útliti glugga þar og bæta við hurð, breyta aðkomu/aðgengi, stækka stigapall og steypa skjólvegg og setja stærri hurð inn í veitingasal að austanverðu á húsi á lóð nr. 9 við Geirsgötu.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44937 (05.11.480.4)
231063-4049 Grétar Már Bárðarson
Krókamýri 58 210 Garðabær
10.
Haukdælabraut 70, Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr forsteyptum einingum með innbyggðum bílskúr og að hækka gólfkóta húss um 40 cm og flytja bílastæði á lóð miðað við skipulag á lóð nr. 70 við Haukdælabraut.
Vottun eininga dags. 4. maí 2012 fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 fylgir erindinu og umsögn skipulagsstjóra dags. 20. september 2012.
Stærð húss: 322,9 ferm., 1077,9 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 91.621

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Ef gera þarf breytingar á borgarlandi vegna færslu bílastæða greiðist sá kostnaður af lóðarhafa.


Umsókn nr. 45020 (01.23.400.1)
570269-2169 Sjálfsbjörg landssamb fatlaðra
Hátúni 12 105 Reykjavík
11.
Hátún 10-12, 12 - Breyting 1. hæð
Sótt eru um leyfi til að breyta tveimur skrifstofurýmum í meðferðarrými með því að koma fyrir handlaugum í rýmum á 1. hæð í húsinu nr. 12 á lóð nr. 10-12 við Hátún.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44791 (01.62.210.1)
540206-2010 N1 hf.
Dalvegi 10-14 201 Kópavogur
12.
Hringbraut 12, Innri br. - lagerhurð
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi og koma fyrir dyrum að lager á austurhlið bensínstöðvar á lóðinni nr. 12 við Hringbraut.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 45028 (01.73.010.1)
300477-5939 Jón Ingi Árnason
Hörgshlíð 2 105 Reykjavík
13.
Hörgshlíð 2, Svalaskýli
Sótt er um leyfi til að setja svalaskýli á íbúð ? úr opnanlegum glerflekum úr hertu öryggisgleri með 95% opnun í braut og að grafa út óútgrafið rými í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 2 við Hörgshlíð.
Samþykki sumra meðeigenda ódags. fylgir.
Stækkun húss : XX ferm. XX rúmm. Svalalokun: XX rúmm.
Gjald kr. 8.500 + XX

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 45023 (00.07.400.1)
470905-1740 Fjarskipti hf.
Skútuvogi 2 104 Reykjavík
14.
Í Úlfarsárlandi 173282, Fjarskiptaskýli og tréstaurar
Sótt er um leyfi til að byggja tækjaskýli, 15,1 ferm. og 46,8 rúmm. að stærð og reisa tvo 10 metra tréstaura vegna fjarskiptaþjónustu á lóð nr. 173282 á toppi Úlfarsfells.
Gjald kr. 8.500 + 3.978
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 45010 (04.13.220.1)
560996-2339 BS-eignir ehf.
Kirkjustétt 2-6 110 Reykjavík
15.
Kirkjustétt 2-6, Breyting inni - hús B - mhl.02
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í sal og eldhúsi og fjölga gestum úr 110 í 200 gesti í mhl 02 rými 0102 í húsi B lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44954 (04.13.510.4)
040264-4269 Agnes Björk Jóhannsdóttir
Kirkjustétt 38 113 Reykjavík
16.
Kirkjustétt 36-40, 38 - Stofa stækkuð + útigeymsla
Sótt er um leyfi til að stækka stofu til samræmis við mhl.01 og mhl.03 og til að koma fyrir útigeymslu á baklóð raðhúss nr. 38 á lóð nr. 36-40 við Kirkjustétt.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Kirkjustéttar 14 og Kirkjustéttar 36 dags. 12. september og Kirkjustéttar 40 ódagsett.
Stækkun húss: 4,3 ferm., 11,7 rúmm.
Útigeymsla: 10 ferm., 18,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 2.567

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44563 (01.72.330.2)
681204-2290 Reitir V ehf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
17.
Kringlan 5, Neyðarstigi að norðanverðu
Sótt er um leyfi til að byggja neyðarstiga úr stáli, við norðurhlið að lóðamörkum við nr. 7, við skrifstofuhús á lóð nr. 5 við Kringluna.
Erindi fylgir brunahönnun frá VSI dags. 15. maí 2012 og greinargerð um breytingar ódagsett ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. júní 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 21. júní 2012.
Gjald kr. 8.500 + 8.500

Frestað.
Deiliskipulagsferli ólokið.


Umsókn nr. 44828 (01.72.310.1)
481075-0419 Hús verslunarinnar sf
Kringlunni 7 103 Reykjavík
18.
Kringlan 7, kj. og 1.h. sameign, flóttaleiðir
Sótt er um leyfi til þess að breyta eignarhaldi á hluta sameignar á fyrstu hæð og breyta flóttaleið í kjallara í Húsi verslunarinnar á lóðinni nr. 7 við Kringluna.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44890 (04.64.520.1)
450380-0329 Krummahólar 2,húsfélag
Suðurlandsbraut 30 108 Reykjavík
19.
Krummahólar 2, Flóttaleiðir kj. og 1.h.
Sótt er um leyfi til þess að breyta flóttaleiðum í kjallara og á fyrstu hæð fjölbýlishúss á lóðinni nr. 2 við Krummahóla.
Afrit af fundargerð húsfundar dags. 16. september 2012 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun, kjallaragangur 6,7 ferm. og 18.0 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 1530

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45029 (01.24.000.5)
661007-1760 Laugavegur 105 ehf.
Bíldshöfða 14 110 Reykjavík
20.
Laugavegur 105, Gistirými - 3-5. hæð
Sótt er um leyfi til að innrétta gistirými fyrir 314 gesti í flokki ? á 3. 4. og 5. hæð, koma fyrir flóttastiga á bakhlið og gera nýjar dyr á sorpgeymslu í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 105 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44930 (01.25.110.1)
510907-0940 Reitir I ehf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
590578-0109 Saga Film ehf
Pósthólf 5490 125 Reykjavík
21.
Laugavegur 176, Breyta geymslu í kaffieldhús
Sótt er um leyfi til að breyta tækjalager á 2. hæð í mhl 02 í kaffieldhús í húsinu á lóð nr. 176 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44998 (04.92.841.0)
170469-5349 Einar Erlingsson
Látrasel 9 109 Reykjavík
22.
Látrasel 9, Breyting á BN043387 / BN039910
Sótt er um leyfi til að breyta klæðningu utanhúss, þar sem klætt er með flísum í stað álklæðningar og yfir timburklæðningu er klætt með sams konar flísum á einbýlishúsinu á lóð nr. 9 við Látrasel.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45042 (01.11.530.3)
530511-1540 Byggakur ehf
Lyngási 11 210 Garðabær
23.
Mýrargata 26, takmarkað byggingarleyfi
Ofanritaður sendir hér með inn umsókn um takmarkað byggingarleyfi vegna niðurrifs á 2. og 3. hæð og styrkingar núverandi burðarvirkja í kjallara og á 1. hæð að Mýrargötu 26.
Niðurrifin á 2. og 3. hæð ásamt einni súlu á 1. hæð eru til samræmis við þær teikningar sem samþykktar voru á fundum byggingarnefndar 17. júlí 2012 (BN035993) og 11. september 2012 (BN044699 minniháttar breyting).



Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45025 (01.61.960.1)
510907-0940 Reitir I ehf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
24.
Nauthólsvegur 50, 52 - breytingar 1.hæð og kjallara S-hluta
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi á 1. hæð og í kjallara og til að byggja nýja sorpgeymslu og gasgeymslu við skábraut ofan í kjallara á norðurhlið hótels nr. 52 á lóð nr. 50 við Nauthólsveg.
Sorpgeymsla B-rými: 48,3 ferm., 152,1 rúmm.
Gasgeymsla B-rými: 7,6 ferm.
Gjald kr. 8.500 + 12.929
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44153 (01.19.003.0)
100840-2009 Unnur Guðjónsdóttir
Svíþjóð
25.
Njálsgata 33B, Niðurrif
Sótt er um leyfi til að rífa vegna veggjatítlufaraldurs timburhluta, eignarhluta 0101 og 0201, tvíbýlishúss á lóð nr. 33B við Njálsgötu.
Ósk um frekari uppbyggingu á lóðinni kemur síðar, en til viðmiðunar eru samþ. teikningar dags. 14.2. 2012.
Meðfylgjandi er bréf umboðsmanns eiganda dags. 15. febrúar 2012 (A), umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 12. júní 2012 (B), umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 30. maí 2012 (C), bréf umboðsmanns eiganda dags. 27. júní 2012 (D), greinargerð vegna ástands burðarvirkis dags. 26. júní 2012 (E), bréf Erlings Ólafssonar 31. nóvember 2011 (F), samþykki meðeiganda, eignarhluta 0102 dags. 31. ágúst 2012 (G), samþykki þetta á ekki lengur við þar sem einn eigandi er að báðum eignarhlutunum, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 13.8. 2012 (H), umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 13.8. 2012 (I), bréf umboðsmanns eiganda dags. 24.9. 2012 (J), og annað dags 27.9. 2012 (K) í því koma fram stærðir þess sem rífa á og frágangi á sameign eignahluta 0101, 0201 og 0102 við niðurrifið.
Stærðir niðurrif: Eignahluti 0101 55 ferm., 129,49 rúmm.
Kjallari niðurrif, sameign beggja eignahluta 37 ferm., 64,75 rúmm.
Samtals niðurrif: 92 ferm., 194,24 rúmm.
Húshluti 0102 og rými fyrir inntök verður lokað á vatnsheldan hátt og einangrað til bráðabyrgða eftir niðurrif.
Gjald kr. 8.500 + 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Þinglýsa skal nýrri eignaskiptayfirlýsingu eigi síðar en við fokheldi nýbyggingar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 44604 (01.52.430.3)
230234-2999 Frank M Halldórsson
Reynimelur 61 107 Reykjavík
041036-2659 Betsy R Halldórsson
Reynimelur 61 107 Reykjavík
26.
Reynimelur 61, Áður gerð íb.í kjallara
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð í kjallara húss og áður gerðu garðskýli við bílskúr á lóðinni nr. 61 við Reynimel.
Virðingargjörð dags. 08.01.1968 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. júlí 2012 fylgir erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Íbúðarskoðun byggingafulltrúa dags. 18. janúar 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun áður gert garðskýli við bílskúr 15,6 ferm. og 38,0 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 3.230

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 45024 (01.36.431.2)
060271-4299 Jón Valur Jónsson
Sigtún 37 105 Reykjavík
27.
Sigtún 37, Breytingar í kjallara
Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum á geymslum og þvottahúsi í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 37 við Sigtún.
Samþykki sumra ódags.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44960 (01.46.510.1)
630212-0650 Nammibarinn ehf.
Reykjavíkurvegi 60 220 Hafnarfjörður
590902-3730 Eik fasteignafélag hf.
Sóltúni 26 105 Reykjavík
28.
Skeifan 19, Nammibarinn - sælgætisverslun
Sótt er um leyfi til að breyta hluta 1. hæðar innanhúss og innrétta þar sælgætisverslun í verslunarhúsi á lóð nr. 19 við Skeifuna.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 45033 (01.67.130.3)
010574-4559 Nanna Björk Ásgrímsdóttir
Lúxemborg
29.
Skildinganes 24, Endurnýjun - BN035139
Sótt er um leyfi til að endurnýja samþykkt erindi BN035139 þar sem sótt var um leyfi til breytinga á innra skipulagi og til að koma fyrir nýjum glugga á norðurhlið kjallarans í einbýlishúsinu á lóðinni nr. 24 við Skildinganes.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45037 (01.18.140.4)
690612-0890 S40 ehf.
Pósthólf 8814 128 Reykjavík
30.
Skólavörðustígur 40, takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi vegna niðurrifs á núverandi húsnæði á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg og graftrarleyfi fyrir fyrirhugaðri byggingu á lóðinni nr. 40 við Skólavörðustíg sbr, erindi BN044819.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 44766 (01.19.721.3)
640371-0219 Marz sjávarafurðir ehf
Aðalgötu 5 340 Stykkishólmi
31.
Smáragata 7, Bílskúr + vinnustofa
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr og vinnustofu á baklóð, gera nýjan inngang í kjallara á bakhlið íbúðarhúss og breyta innra fyrirkomulagi í kjallara og á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 7 við Smáragötu.
Útskriftir úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11 maí 2012 og 20. júlí 2012 fylgja erindinu.
Kaupsamningur undirritaður 10. maí 2012 fylgir erindinu.
Stærð: Matshluti 70 - Bílskúr, vinnustofa og sorpgeymsla - Bílskúr 39,2 ferm. og 104,5 rúmm. Vinnustofa 36,6 ferm. og 101,6 rúmm. Sorpgeymsla 2,6 ferm. og 4,2 rúmm.
Sjá einnig erindi BN044855 "niðurrif - bílskúr" sem samþykkt var 21.08.2012. Gjald kr. 8.500 + 17.876

Frestað.
Deiliskipulagsferli ólokið.


Umsókn nr. 45036 (01.83.100.2)
070459-4859 Helga Vilhelmína Pálsdóttir
Kambasel 83 109 Reykjavík
150460-4849 Lúðvík Óskar Árnason
Kambasel 83 109 Reykjavík
32.
Sogavegur 162, takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og undirstöðum á lóðinni nr. 162 við Sogaveg sbr. erindi BN044591.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45034 (02.53.610.1)
581007-0510 Sóleyjarimi 19-23,húsfélag
Sóleyjarimi 19-23 112 Reykjavík
33.
Sóleyjarimi 19-23, Endurnýjun - BN043321
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN043321 sem samþykkt var 16.08.2011. Þar var sótt um "leyfi til að setja svalalokun á allar einkasvalir og undir svalir á jarðhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 19 -23 við Sóleyjarima".
Fundargerð húsfélags dags. 19. apríl 2010 fylgdi erindi BN043321 ásamt samþykki 39 íbúða af 45 dags. 31. maí 2011.
Stækkun: 685 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 58.225

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44984 (01.47.140.2)
531205-0810 Nova ehf.
Lágmúla 9 108 Reykjavík
34.
Suðurlandsbraut 66, Tækjaskápur og loftnet
Sótt er um leyfi til að setja upp farsímaloftnet á þak og tækjaskáp í kjallara á hjúkrunarheimilið Mörk á lóð nr. 66 við Suðurlandsbraut.
Samþykki eiganda húss dags. 26 júní 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45011 (01.45.210.1)
630109-1080 Reginn hf.
Hagasmára 1 201 Kópavogur
35.
Súðarvogur 6, Endurnýjun BN042928
Sótt er um endurnýjun á erindi BN044210 og BN042928 þar sem sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu sem sýnir breytt innra fyrirkomulag og ytra útlit, sem og endurbættar brunavarnir í atvinnuhúsi (mhl.01) á lóð nr. 6 við Súðarvog.
Gjald kr. 8.500


Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 44662 (01.53.101.8)
060563-7219 Ingibjörg Þóra Garðarsdóttir
Sörlaskjól 80 107 Reykjavík
160370-3279 Páll Óskar Hjálmtýsson
Sörlaskjól 80 107 Reykjavík
36.
Sörlaskjól 80, Innri breyting
Sótt er um leyfi til að síkka kjallaraglugga á norðurhlið, breyta innra skipulagi og fækka íbúðum úr þremur í tvær í fjölbýlishúsi á lóð nr. 80 við Sörlaskjól.
Erindi fylgir umboð frá Kristínu Þórarinsdóttur dags. 4. september 2012.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 45026 (01.14.200.1)
040865-2419 Nathaniel Berg
Bandaríkin
070772-3029 Melissa Ann Berg
Bandaríkin
210963-4059 Ragnar Ómarsson
Hraunbær 72 110 Reykjavík
37.
Tjarnargata 30, Breyta fjölbýli í einbýli
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir þakgluggum á vesturhlið og inngangi í kjallara, setja útihurð á sólstofu og hlið á innkeyrslu, byggja sólpall m/setlaug í garði, færa glugga og skrautlista til upprunalegs horfs og breyta í einbýlishús fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 45040 (00.08.200.1)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
38.
Víðines hjúkrunarh. 125773, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðarinnar Víðines, landnúmer 125773, eða þannig að til verði ný lóð úr henni, 16839 m² að stærð, með landnúmeri 221114 og staðgreini 36.375.101, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsinga-deildar dags. 1. 10. 2012.
Við breytinguna minnkar lóðin Víðines, landnúmer 125773, sem því nemur.
Samanber samþykkt skipulagsráðs 25. 1. 2012.


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.


Umsókn nr. 45031 (01.19.031.4)
010485-2319 Eyþór Ingi Kristinsson
Lækjarfit 11 210 Garðabær
39.
Barónsstígur 28, (fsp) - Niðurrif - nýbygging
Spurt er hvort leyft yrði að rífa bárujárnshús sem byggt var árið 1905 og byggja í þess stað sjö íbúða steinsteypt fjölbýlishús sem er kjallari, þrjár hæðir og rishæð, samtals u.þ.b. 445 fermetrar á lóðinni nr. 28 við Barónsstíg.
Bréf hönnuðar dags. 20.03.2012 og 21.09.2012 fylgja erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 44974 (01.67.310.8)
180971-5809 Ásdís Káradóttir
Bauganes 37a 101 Reykjavík
150871-3799 Arnar Þór Másson
Bauganes 37a 101 Reykjavík
40.
Bauganes 37A, (fsp) - Hjólageymsla, garðgeymsla og endurvinnsla sorp.
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja skýli sem er ca. 22 ferm. að stærð sem nýta á sem hjólageymslu, geymslu fyrir garðverkfæri og endurvinnslu sorps og á að vera staðsett fyrir innan bílastæði út við götu á lóð nr. 37A við Bauganes.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 fylgir erindinu.
Yfirlýsing nágranna og teikningar á A4 fylgir.

Jákvætt.
Ekki gerð athugasemd að fyrirspyrjandi láti gera breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem grenndarkynnt verður berist hún.


Umsókn nr. 45013 (01.29.710.1)
080885-3429 Berta Guðrún Þórhalladóttir
Rauðavað 11 110 Reykjavík
41.
Fellsmúli 28, (fsp) - Kaffisala
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta veitingaverslun (kaffisölu) í flokki l á fyrstu hæð hússins nr. 28 á lóðinni nr. 24-30 við Fellsmúla.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 44987 (04.97.200.2)
261236-7299 Grímur H Leifsson
Kleppsvegur 62 104 Reykjavík
040539-4419 Anna Jeppesen
Kleppsvegur 62 104 Reykjavík
42.
Fljótasel 1-17, (fsp) - 5 skipta í tvær íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að skipta í tvær íbúðir raðhúsi nr. 5 við á lóðinni nr. 1-17 við Fljótasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 27. september 2012.
Nei.
Samanber umsögn skipulagsstjóra dags. 27. september 2012.


Umsókn nr. 44483 (01.81.710.7)
100269-2959 Þórdís Ingadóttir
Háagerði 12 108 Reykjavík
101067-3519 Snorri Þorgeir Ingvarsson
Háagerði 12 108 Reykjavík
43.
Háagerði 12, (fsp) - Stækkun
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tveggja hæða viðbyggingu við austurhlið einbýlishúss á lóð nr. 12 við Háagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. maí 2012 og 28. september 2012 fylgja erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012
Einnig fylgja athugasemdir arkitekts við umsögn skipulagsstjóra dags. 27. ágúst 2012.

Jákvætt.
Með vísan til skilyrða í umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012. Byggingarleyfisumsókn sem unnin yrði í samræmi við umsögn yrði grenndarkynnt.


Umsókn nr. 45012 (01.13.921.7)
230971-3589 Katrín Ingjaldsdóttir
Hringbraut 106 101 Reykjavík
44.
Hringbraut 106, (fsp) - Bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr austan hússins á lóðinni nr.106 við Hringbraut.
Húsið er parhús á lóðunum nr. 106 og 108 við Hringbraut.)
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 45015 (01.17.200.5)
080171-4559 Dóra Takefusa
Hverfisgata 50 101 Reykjavík
45.
Hverfisgata 50, (fsp) - Þaksvalir
Spurt hvort leyft yrði að útbúa þaksvalir á þaki hússins á lóðinni nr. 50 við Hverfisgötu.
Samþykki meðeigenda (vantar einn af fjórum) dags. 14. júní 2012 fylgir erindinu.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 3. mars 2011 fylgir erindinu.
Eignaskiptayfirlýsing unnin í júní 2003 og samþykkt f.h. byggingarfulltrúa þann 6. ágúst 2003 fylgir erindinu.
Kaupsamningur dags. 25. júlí 2001 fylgir erindinu.

Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.


Umsókn nr. 44979 (01.83.201.6)
430889-1769 Sembygg ehf
Langagerði 32 108 Reykjavík
46.
Langagerði 32, (fsp)- Byggja ris
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja ris með kvistum á einbýlishúsið sem hefur skúrþak á lóð nr. 32 við Langagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 28. september 2012.
Nei.
Samanber umsögn skipulagsstjóra dags. 28. september 2012.


Umsókn nr. 45017 (01.34.520.5)
030354-2149 Þráinn Ómar Svansson
Laugarnesvegur 77 105 Reykjavík
47.
Laugarnesvegur 77, (fsp) - Kvistur stækkaður
Vegna fyrirhugaðra viðgerða á þaki er spurt um tvennt.
Í fyrsta lagi hvort leyft yrði að stækka kvist á suðausturþekju húss.
Í öðru lagi hvort leyft yrði að breyta þakformi þannig að rishæð hússins á lóðinni nr. 77 við Laugarnesveg yrði án kvista.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 44952 (01.17.221.1)
200362-6409 Hildur Bjarnadóttir
Hofteigur 20 105 Reykjavík
48.
Laugavegur 30, (fsp) - Partýtjald
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja tjald (partý tjald) þar sem fólk væri boðið að tylla sér til 22 á kvöldin á lóð nr. 30 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. september 2012.

Nei.
Samanber umsögn skipulagsstjóra dags. 24. september 2012.


Umsókn nr. 45014 (05.05.560.4)
151179-5339 Magnús Gunnar Erlendsson
Vesturbrún 35 104 Reykjavík
49.
Lofnarbrunnur 40-42, (fsp) - 42 - Breyting inni
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innra skipulagi á efri hæð og í kjallara, bæta við hurð og glugga í kjallara og innrétta gluggalaus rými í sökkli parhúss nr. 42 á lóð nr. 40-42 við Lofnarbrunn.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 45032 (01.37.-10.1)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
50.
Sundlaugavegur 30, (fsp) - Varðturn
Spurt er hvort byggja megi tveggja hæða varðturn úr steinsteypu ofan á núverandi búningsaðstöðu Laugardalslaugarinnar á lóð nr. 30 við Sundlaugarveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.