Akurgerði 37, Austurstræti 17, Ármúli 29, Suðurlands, Ásgarður 34-40, Bankastræti 4, Barónsstígur 20, Borgartún 8-16, Engjavegur 7, Flókagata 29, Flókagata 31, Frakkastígur 7, Frakkastígur 7, Geirsgata 3a-7c, Grandagarður 1, Grjótháls 1-3, Háaleitisbraut 43, Heiðarbær 5, Hverfisgata 54, Kirkjustétt 24, Klapparstígur 17, Lambhagavegur 23, Laufásvegur 58, Laugavegur 23, Laugavegur 37, Laugavegur 4, Laugavegur 6, Lækjargata 8, Lækjargata 8, Lækjarmelur 4, Miðtún 60, Rauðarárstígur 27, Ránargata 6, Skildinganes 26, Skipasund 56, Snorrabraut 27-29, Sólheimar 27, Spöngin 9-31, Suðurlandsbraut 16, Sundlaugavegur 30, Tryggvagata 11, Tryggvagata 16, Vatnagarðar 6, Þingholtsstræti 2-4, Borgartún 26, Hverfisgata 125, Kleppsvegur 150-152, Ljósaland 1-25 2-24, Mímisvegur 4, Thorsvegur 1, Þingás 36,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

580. fundur 2010

Árið 2010, þriðjudaginn 23. mars kl. 09:40 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 580. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherbergi 2. hæð austur Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir, Eva Geirsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson og Bjarni Þór Jónsson Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 41149 (01.81.320.2)
090359-5099 Jón Ásgeir Einarsson
Akurgerði 37 108 Reykjavík
1.
Akurgerði 37, bílskúr, breyting
Sótt er um leyfi til að breyta þaki nýsamþykkts bílskúrs úr flötu steyptu í létt einhalla, sjá erindi BN040275 og BN040223 dags. 13. október 2009, við parhúsið á lóð nr. 37 við Akurgerði.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 15. mars 2010.
Stækkun 17,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.317
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41291 (01.14.030.8)
590902-3730 Eik fasteignafélag hf
Sóltúni 26 105 Reykjavík
2.
Austurstræti 17, breyta innra skipulagi á 2. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi skrifstofa á 2. hæð verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 17 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41292 (01.26.510.1)
590902-3730 Eik fasteignafélag hf
Sóltúni 26 105 Reykjavík
3.
Ármúli 29, Suðurlands, Suðurlandsbraut 32 breyting inni
Sótt er leyfi til breytinga innanhúss, sem felast í að innrétta rými fyrir pökkun matvæla, þar sem áður voru skrifstofur í rými 0101 á 1. hæð húss á lóð nr. 32 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41143 (01.83.420.5)
121175-3559 Guðbjörg Lilja Gunnarsdóttir
Völvufell 44 111 Reykjavík
4.
Ásgarður 34-40, nr. 38 breyting inni
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð í kjallara raðhússins nr. 38 á lóð nr. 34-40 við Ásgarð.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda í húsi dags. 22. febrúar 2010, lóðarleigusamningur dags. 19. janúar 1962, virðingargjörð dags. 6. mars. 1973, þinglýst skuldabréf dags. 24. mars og 14. apríl 1977, þinglýst afsöl dags. 27. september 1976, 10. júní 1988, 5. nóvember 1984, 2. apríl 1990, 1. mars 1993 og 1. nóvember 1996.
Einnig fylgir íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 17. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41127 (01.17.020.3)
190253-4579 Ásrún Lilja Petersen
Mávahlíð 36 105 Reykjavík
5.
Bankastræti 4, breytt innra skipulag
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi og opna á milli eininga í verslunarhúsi á lóð nr. 4 við Bankastræti.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40510 (01.19.011.8)
160753-4719 Þórhallur Hólmgeirsson
Barónsstígur 20 101 Reykjavík
6.
Barónsstígur 20, stækkun ofl.
Sótt er um leyfi til að stækka geymsluskúr, Mhl. 02 við einbýlishúsið á lóð nr. 20 við Barónsstíg.
Erindi fylgja samþykki sumra eigenda Grettisgötu 58A og 60 og Barónsstígs 22 dags. 12. maí 2008 árituð á uppdrátt.
Stækkun Mhl. 02: 2,75 ferm., 7,56 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 582


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41278 (01.22.010.7)
681205-3220 Höfðatorg ehf
Skúlagötu 63 105 Reykjavík
7.
Borgartún 8-16, innrétta skrifstofu á 2. hæð suðurhluta
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofurými í hluta af suðurhluta 2. hæðar í H1 turni á Höfðatorgi á lóð nr. 8 - 16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á eldvarnaeftirlits umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41304 (01.37.220.2)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
8.
Engjavegur 7, skilti
Sótt eru leyfi til að setja merkingar/skilti utan á íþrótta/félagshús Ármanns /Þróttar á lóð nr. 7 við Engjaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41288 (01.24.440.4)
121258-2269 Sigbjörn Kjartansson
Kjartansgata 4 105 Reykjavík
540169-4119 Félagsmálaráðuneyti
Tryggvag Hafnarhúsi 150 Reykjavík
9.
Flókagata 29, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingu á innra fyrirkomulagi bílskúrs á lóð sambýlisins í einbýlishúsinu á lóð nr. 29 við Flókagötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skoðist á staðnum.


Umsókn nr. 41289 (01.24.440.3)
121258-2269 Sigbjörn Kjartansson
Kjartansgata 4 105 Reykjavík
540169-4119 Félagsmálaráðuneyti
Tryggvag Hafnarhúsi 150 Reykjavík
10.
Flókagata 31, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum, þar sem skráningu hefur verið breytt og húsið gert að einni eign og gerð er grein fyrir ýmsum minni háttar breytingum á innra fyrirkomulagi sambýlisins í einbýlishúsinu á lóð nr. 31 við Flókagötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skoðist á staðnum.


Umsókn nr. 41280 (01.17.303.0)
510809-0330 Ísar Nói ehf
Kríuási 33 221 Hafnarfjörður
620604-2830 101 hús ehf
Lokastíg 6 101 Reykjavík
11.
Frakkastígur 7, reyndarteikning af húðflúrstofu
Sótt er um leyfi, skv. tillögu eldvarnareftirlits, til að fella út kvöð um sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi í húðflúrstofu í mhl. 01 í kjallara húss á lóð nr. 7 við Frakkastíg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 41281 (01.17.303.0)
510809-0330 Ísar Nói ehf
Kríuási 33 221 Hafnarfjörður
430305-0180 Linda Mjöll ehf
Laugavegi 11 101 Reykjavík
12.
Frakkastígur 7, reyndarteikning af kaffihúsi
Sótt er um leyfi, skv. tillögu eldvarnareftirlits, til að fella út kvöð um sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi í kaffistofu í mhl. 03 á 1. hæð húss á lóð nr. 7 við Frakkastíg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 41302 (01.11.730.6)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
13.
Geirsgata 3a-7c, 7c - innrétta veitingastað
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II fyrir 92 gesti á 1. og 2. hæð og setja tvo nýja glugga á norðausturgafl verbúðar á lóð nr. 7C við Geirsgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40679 (01.11.520.8)
511185-0849 Slysavarnadeild kvenna í Rv
Grandagarði 1 101 Reykjavík
540999-2449 Björgunarsveitin Ársæll
Grandagarði 1 101 Reykjavík
14.
Grandagarður 1, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja við til vesturs á tveim hæðum úr forsteyptum einingum og þriðju hæðina inndregna úr léttum byggingarefnum ofan á nýbyggingu og núverandi byggingu á lóð nr. 1 við Grandagarð.
Meðfylgjandi: Greinargerð vegna burðarvirkis dags. 27. nóv. 2009, lóðablað og skipulagsuppdráttur.
Stækkun: 1. hæð bílageymsla 158,1 ferm., 2. hæð 81 ferm., 3. hæð 238 ferm.
Samtals stækkun: 477,1 ferm., 2094,9 rúmm.
Eftir stækkun samtals. 857,7 ferm., 3628,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 161,307
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41044 (04.30.240.1)
691204-2350 Grjót eignarhaldsfélag ehf
Lindarbergi 56 221 Hafnarfjörður
15.
Grjótháls 1-3, tengibygging milli Grjótháls 1-3 og 5
Sótt er um leyfi til að byggja léttan tengigang á 2. hæð að lóðamörkum við nr. 5, sbr. fyrirspurn BN040211, við hús á lóð nr. 1-3 við Grjótháls.
Stækkun 40,9 ferm., 118,5 rúmm.
Gjald kr 7.700 + 7.700 + 9.125
Frestað.
Lagfæra skráningu.


Umsókn nr. 41287 (01.29.110.1 02)
701199-2009 Háaleitisbraut 41 og 43,húsfél
Háaleitisbraut 43 108 Reykjavík
16.
Háaleitisbraut 43, endurnýja svalir
Sótt er um leyfi til að brjóta niður skemmdar svalir og steypa þær upp eins og eldri svalir skv. upphaflegum teikningum að viðbættri aukinni járnagrind á fjölbýlishúsi nr. 41-43 á lóð nr. 41-47 við Háaleitisbraut.
Meðfylgjandi eru skýringarteikningar burðarvirkishönnuðar.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41069 (04.35.110.3)
290650-7719 Arnaldur Valgarðsson
Heiðarbær 5 110 Reykjavík
091153-4679 Arndís Jónsdóttir
Heiðarbær 5 110 Reykjavík
17.
Heiðarbær 5, stækka sjónvarpsherbergi
Sótt er um leyfi til að byggja við úr staðsteypu og koma fyrir nýjum gluggum og rennihurð á suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 5 við Heiðarbæ.
Stækkun: 4,5 ferm., 65,3rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 5.028
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41232 (01.17.210.2)
421001-2350 Vatn og land I ehf
Laugavegi 71 101 Reykjavík
18.
Hverfisgata 54, breyting 2. hæð
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta skrifstofur á 2. hæð, koma fyrir lyftu og breyta aðgengi að 1. hæð með bílastæði merku fötluðum við götu og skábraut sbr. fyrirspurn BN041094 í húsi á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsögn um bílastæði og skábraut ókomin frá skrifstofu gatna- og eignaumsýslu.


Umsókn nr. 41273 (04.13.520.3)
130869-3359 Sigurður Hálfdán Leifsson
Kirkjustétt 24 113 Reykjavík
19.
Kirkjustétt 24, breytt (bn040186)
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri viðbyggingu, BN040186 dags. 11. ágúst 2009, við einbýlishúsið á lóð nr. 24 við Kirkjustétt.
Stækkun húss: 18 ferm., 46,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.565
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41158 (01.15.240.2)
110272-3169 Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson
Kjartansgata 10 105 Reykjavík
300848-3709 Marías Sveinsson
Langholtsvegur 132 104 Reykjavík
20.
Klapparstígur 17, nýbygging
Sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með utanáliggjandi stiga, kjallari og þrjár hæðir á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 8. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. mars 2010.
Stærðir: Kjallari 68,3 ferm., 1. hæð 138,3 ferm., 2. hæð 152 ferm., 3. hæð 152 ferm.
A-rými samtals: 510,6 ferm., 1.768,1 rúmm.
B-rými samtals: 59,6 ferm.
Samtals 570,2 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Minnka verður húsið þar sem nýtingarhlutfall er 1,35 en á að vera 1,25 mest.


Umsókn nr. 41313 (02.68.410.1)
010349-2659 Hafberg Þórisson
Vesturlbr Lambhagi 113 Reykjavík
21.
Lambhagavegur 23, breyting gjalds (bn039973)
Sótt er um leyfi til að byggja gróðurhús til bráðabirgða úr stálgrind á steyptum undirstöðum klæddri með gróðurhúsaplasti sbr. samþykkt erindi BN039973 á lóð nr. 25 við Lambhagaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal skilyrði um notkun gróðurhúsanna.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41322 (01.19.720.1)
700999-2119 Klettur-eignir ehf
Laufásvegi 49-51 101 Reykjavík
22.
Laufásvegur 58, breyta verslun í íbúðir
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi jarðhæðar, síkka glugga á suðurhlið, útbúa franskar svalir og innrétta tvær íbúðir í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 58 við Laufásveg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda ódagsett, staðfesting á starfsábyrgðartryggingu dags. 18. mars, umsögn burðarvirkishönnuðar og viljayfirlýsing eigenda efri hæða Laufásvegar 58 dags. 19. mars og samkomulag um framkvæmdir milli eigenda Laufásvegar 58 dags. 20. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Innsend gögn algjörlega ófullnægjandi.


Umsókn nr. 40890 (01.17.201.3)
240580-4469 Villy Þór Ólafsson
Seljavegur 9 101 Reykjavík
420409-1840 Dagbjartur ehf
Laugavegi 23 101 Reykjavík
680598-2589 Foldir fasteignaþróunarfél ehf
Klapparstíg 29 101 Reykjavík
23.
Laugavegur 23, breytingar á innra skipulagi
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi kjallara og 1. hæðar þar sem veitingasal er breytt í verslun og skrifstofurými breytt í veitingasal með kaffiveitingum í fl. II í húsi á lóð nr. 23 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41160 (01.17.211.6)
671005-1710 Basalt ehf
Pósthólf 806 121 Reykjavík
24.
Laugavegur 37, hótel og verslun
Sótt er um leyfi til að innrétta sex hótelíbúðir og tvö verslunarrými í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 37 við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN038559 dregið til baka.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 11. mars og Minjasafns Reykjavíkur dags. 15. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41072 (01.17.130.2)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
25.
Laugavegur 4, endurbygging friðaðs húss
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og endurgera verslunarhúsið á lóð nr. 4 við Laugaveg.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur báðar dagsettar 15. febrúar 2010 og gátlisti fyrir aðgengi í almenningsbyggingum dags. 22. febrúar 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41082 (01.17.130.3)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
26.
Laugavegur 6, viðbygging
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og byggja viðbyggingar úr timbri suðaustan og suðvestan megin við verslunarhúsið á lóð nr, 6 við Laugaveg.
Erindi fylgja umsagnir Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur báðar dagsettar 15. febrúar 2010, ásamt gátlista um aðgengi í almenningsbyggingum dags. 16. febrúar 2010.
Viðbyggingar: 40,2 ferm., 111,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.555
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 41293 (01.14.051.0)
450269-3609 Lækur ehf
Bæjarlind 6 201 Kópavogur
27.
Lækjargata 8, skilti á austur- og suðurhlið
Sótt er um leyfi til að komar fyrir tveimur skiltum, á austur- og suðurhlið veitingahússins á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 41309 (01.14.051.0)
450269-3609 Lækur ehf
Bæjarlind 6 201 Kópavogur
28.
Lækjargata 8, sleppa froðukerfi í eldhúsháf
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BN040957 dags. 9. mars 2010, og sleppa slökkvibúnaði í eldhúsháf veitingahússins á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 41163 (34.53.370.3)
610289-1349 Aðalmálun sf
Bræðraborgarstíg 13 101 Reykjavík
29.
Lækjarmelur 4, breyting inni/úti milliloft
Sótt er um leyft til að skipta eign 0105 í þrjár eignir, eignarhluta 0105, 0107 og 0108 og koma fyrir millilofti í atvinnuhúsinu á lóð nr. 4 við Lækjarmel.
Jákvæð fyrirspurn BN039617 dags. 17. mars 2009 og BN40995 dags. 9. feb. 2010, samþykki allra meðlóðarhafa dags. 8. mars 2010 fylgir á teikningu sem er fylgibréf.
Stækkun: 109,3 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40834 (01.23.501.2)
171079-5439 Knútur Örn Bjarnason
Miðtún 60 105 Reykjavík
30.
">Miðtún 60, breyting inni
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallaraíbúðar í tvíbýlishúsinu á lóð nr. 60 við Miðtún.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda áritað á uppdrátt dags. 9. mars 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


Umsókn nr. 41296 (01.24.400.2)
681086-1379 Sparisjóðabanki Íslands hf
Rauðarárstíg 27 105 Reykjavík
31.
Rauðarárstígur 27, 27-29 reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BNO411080 dags. 23. febrúar 2010, og koma fyrir gasgeymslu við bakhlið verslunar- og skrifstofuhússins nr. 27 við Rauðarárstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41306 (01.13.601.5)
210360-3879 Hulda Björk Georgsdóttir
Ránargata 6 101 Reykjavík
32.
Ránargata 6, endurnýjun og breyting byggingarleyfis (bn035419)
Sótt er um leyfi til að minnka áður samþykkta sólpalla/svalir , sjá erindi BN035419 dags. 20. febrúar 2007 og endurnýjað 18. nóvember 2008, byggja stoðvegg að lóðamörkum nr. 4A og breyta handriðum í gler á 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 6 við Ránargötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41303 (01.67.130.4)
230158-6149 Ögmundur Skarphéðinsson
Skildinganes 26 101 Reykjavík
33.
Skildinganes 26, hækka þök
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BN038945 dags. 22. september 2009, og hækka þök viðbygginga við einbýlishúsið á lóð nr. 26 við Skildinganes.
Stækkun: 22,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.763
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 41290 (01.35.731.2)
411171-0199 Rangá sf
Skipasundi 56 104 Reykjavík
34.
Skipasund 56, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri á steyptum sökkli á einni hæð með þaksvölum við hús á lóð nr. 56 við Skipasund.
Stækkun xx fer., xx rúm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.


Umsókn nr. 39410 (01.24.001.1)
471002-3130 Iceland 101 ehf
Snorrabraut 29 105 Reykjavík
35.
Snorrabraut 27-29, breyting inni
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, fjölga herbergjum úr sextán í átján og endurskoða eldvarnir í gistiheimilinu á lóð nr. 27-29 við Snorrabraut.
Jafnframt er erindi BN035643 dregið til baka.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Athygli umsækjanda er vakin á umsögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40522 (01.43.350.2)
610269-5759 Sólheimar 27,húsfélag
Sólheimum 27 104 Reykjavík
36.
Sólheimar 27, svalalokun
Sótt er um leyfi til endurnýjunar á handriðum á svölum og þaki og til að koma fyrir svalalokun á fjölbýlishúsi á lóð nr. 27 við Sólheima.
Meðfylgjandi er umsögn burðarvirkjahönnuðar dags. 16. 2. 2010
Stærðir: 480 ferm., 1.347 rúmm., einstaka svalir og samtals.
Gjald 7.700 + 7.700 + 103.720
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Sé ágreiningur uppi um samþykki allra fyrir lokun og yfirbyggingu svala á efstu hæð er bent á ákvæði 80. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús er varða ósk um álitsgerð.


Umsókn nr. 41225 (02.37.520.1)
510907-0940 Reitir I ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
37.
Spöngin 9-31, nr. 11 matsala flokkur 1
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I í mhl. 02 í rými 0102 í atvinnuhúsnæðinu nr. 11 á lóð nr. 9 - 31 við Spöngina.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41297 (01.26.310.2)
560609-1830 Vegmúli ehf
Borgartúni 31 105 Reykjavík
38.
Suðurlandsbraut 16, Vegmúli 2 - reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til breytinga á innra fyrirkomulagi á 5. hæð, ásamt samþykki fyrir þegar gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi annara hæða skrifstofuhússins Vegmúla 2 á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41217 (01.37.-10.1)
631098-2079 Laugar ehf
Sundlaugavegi 30A 105 Reykjavík
470802-2270 Laugahús ehf
Reykjavíkurvegi 74 220 Hafnarfjörður
39.
Sundlaugavegur 30, breyting inni 30A
Sótt er um leyfi til að flytja veitingasölu til aðalinngangs, koma fyrir lagerrými þar sem veitingasalan var og fjarlægja glervegg og lágan vegg í heilsumiðstöðinni í Laugardal á lóð nr. 30A við Sundlaugaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 1. mars 2010 og bréf frá brunatæknihönnuði dags. 1. mars 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 41285 (01.11.740.1)
580772-0139 BYGGÐARENDI ehf
Byggðarenda 1 108 Reykjavík
40.
Tryggvagata 11, veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað með eldhúsi á 1.hæð, sbr. fyrirspurn BN041086, í húsi á lóð nr. 11 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41305 (01.13.210.4)
570498-2669 AFA JCDecaux Ísland ehf
Vesturvör 30b 200 Kópavogur
41.
Tryggvagata 16, útisalerni við Tryggvagötu 21
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktri staðsetningu útisalernishúss, á horni Tryggvagötu og Nausta, í horn Tryggvagötu og Hafnarstrætis.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 16. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 41299 (01.33.770.2)
600269-1359 Skúlagata 30 ehf
Stigahlíð 60 105 Reykjavík
42.
Vatnagarðar 6, stækkun matvælavinnslu
Sótt er um leyfi til að opna húsnæði sem nú er í austurenda yfir í vesturenda með því að opna hurðargat í millivegg og innrétta þar og stækka matvælavinnsluna í húsi á lóð nr. 6 við Vatnagarða.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41298 (01.17.020.5)
501298-5069 Íslenska eignafélagið ehf
Suðurlandsbraut 46 108 Reykjavík
43.
Þingholtsstræti 2-4, stækka hurð og glugga
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN039133 dags. 11. nóvember 2008 og stækka aðaldyr 1. hæðar og gluggana sitt hvoru megin á verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 2-4 við Þingholtsstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 41301 (01.23.000.2)
640809-0510 LF6 ehf
Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík
44.
Borgartún 26, (fsp) staðsetja skilti
Spurt er hvort leyft verði að setja auglýsingaskilti við innkeyrslu á bílastæði fyrir framan hús á lóð nr. 26 við Borgartún.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar umferðardeildar framkvæmda- og eignasviðs.


Umsókn nr. 41295 (01.22.211.8)
150657-2539 Díana Vera Jónsdóttir
Kristnibraut 9 113 Reykjavík
45.
Hverfisgata 125, (fsp) innri breytingar fyrir skyndibitastað
Spurt er hvort minnka megi hársnyrtistofu og innrétta í staðinn Piri skyndibitastað á 1. hæð í húsi á lóð nr. 125 við Hverfisgötu.
Neikvætt.
Miðað við framlögð gögn.


Umsókn nr. 41282 (01.35.850.1)
200384-2379 Stefán Þór Sigfússon
Austurbrún 23 104 Reykjavík
46.
Kleppsvegur 150-152, (fsp) nr. 152 bílaþvottastöð
Spurt er hvort innrétta og reka megi bílaþvottastöð í húsi á lóð nr. 152 við Kleppsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. mars 2010 fylgir erindinu.
Samræmist ekki deiliskipulagi og ekki verður fallist á breytingu þess.

Umsókn nr. 41300 (01.87.060.1)
120160-2069 Hans Olav Andersen
Hávallagata 21 101 Reykjavík
47.
Ljósaland 1-25 2-24, (fsp) stækka íbúð
Spurt er hvort leyft yrði að stækka íbúð til suðurs eins og sýnt er á meðfylgjandi skissum af raðhúsi nr. 6 á lóðinni nr. 1-25/2-24 við Ljósaland.

Frestað
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 41284 (01.19.610.9)
250166-5249 Rögnvaldur Guðmundsson
Mímisvegur 4 101 Reykjavík
48.
Mímisvegur 4, (fsp) spurt um samþykki íbúðar
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta heimagistingu í kjallara og hvort leyfð yrði íbúðargisting á 2. hæð tvíbýlishússins á lóð nr. 4 við Mímisveg.
Frestað
Í kjallara eru ekki samþykkt íbúðarherbergi. Heimilt er að leiga út íbúð á annarri hæð að fengnu starfsleyfi heilbirgðiseftirlits og rekstrarleyfi lögreglu.


Umsókn nr. 41314 (02.3-.--9.9)
580169-7409 Golfklúbbur Reykjavíkur
Pósthólf 12067 132 Reykjavík
49.
Thorsvegur 1, (fsp) bráðabirgðabreyting
Spurt er hvort byggja megi verönd til bráðabirgða í suður fyrir framan austasta gaflinn og opna inn í húsið með því að saga niður úr glugga í rými Golfklúbbs Reykjavíkur á Korpúlfsstöðum á lóð nr. 1 Við Thorsveg.
Frestað
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 41294 (04.72.120.7)
170563-2479 Haukur Þór Þorgrímsson
Þingás 36 110 Reykjavík
50.
Þingás 36, (fsp) viðbygging og stækkun á bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem fer út fyrir byggingareit við suðvesturhlið og stækka bílskúr til suðausturs við einbýlishúsið á lóð nr. 36 við Þingás.

Frestað
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.