Aðalstræti 6, Almannadalur 9-15, Austurbakki 2, Bergstaðastræti 37, Blikastaðavegur 2-8, Borgartún 26, Brúnavegur 13, Frakkastígur 8, Frostaskjól 13, Grandagarður 1, Grundarstígur 2A, Hafnarstræti 20/Læk5, Hátún 10-12, Hlíðarfótur 13, Hlíðarfótur 13, Hraunbær 115, Hringbraut 119, Klyfjasel 11, Langholtsvegur 115, Laugateigur 17, Laugavegur 19-19B, Laugavegur 50, Lyngháls 4, Mímisvegur 6, Rauðarárstígur 33, Reykás 1-11, Reykjafold 20, Síðumúli 34, Skipholt 15, Skútuvogur 8, Spítalastígur 2, Stórhöfði 29-31, Stuðlaháls 2, Stýrimannastígur 3, Tryggvagata 16, Vesturgata 16B, Vesturgata 2A, Vitastígur 12, Þórsgata 10, Austurberg 3, Bugðulækur 17, Efstasund 3, Langholtsvegur 181, Rauðarárst 31-Þverh18, Skildingatangi 1,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

567. fundur 2009

Árið 2009, þriðjudaginn 8. desember kl. 10:03 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 567. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherbergi 2. hæð austur Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Björn Kristleifsson, Bjarni Þór Jónsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 40772 (01.13.650.2)
510907-0940 Landic Ísland ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
1.
Aðalstræti 6, breyting úti og inni
Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN039321, samþykkt 27. janúar 2009, þar sem m. a. er hætt við endurbyggingu Héðinshúss og gerður útigarður þar í staðinn, fundarsalur er innréttaður í bakhús í stað veitingastaðar og innréttaður er morgunverðarsalur í kjallara ásamt öðrum minni háttar breytingum á hótelinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Erindi fylgir brunahönnun frá VSI dags. 16. desember 2008, endurskoðuð 1. desember 2009.
Nýjar stærðir: 5.742,6 ferm., 18.098,4 rúmm.
Minnkun: 97,5 ferm., 259,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40749 (05.86.550.1)
200970-4039 Guðrún Jóna Thorarensen
Garðsstaðir 44 112 Reykjavík
2.
Almannadalur 9-15, nr. 11, skipting á loftunargerði
Sótt er um leyfi til að skipta loftunargerði við hesthús nr. 11 á lóð nr. 9-15 við Almannadal samanber BN035853.
Jafnframt er erindi BN039689 dregið til baka.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 16. og 18. nóvember 2009 áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 38887 (01.11.980.1)
660805-1250 Eignarhaldsfélagið Portus ehf
Pósthólf 709 121 Reykjavík
3.
Austurbakki 2, tónlistarhús, br. BN034842
Sótt er um leyfi til þess að breyta sbr. erindi 34842, burðarveggjum og súlum, breyta stærðum palla, lögun svala og kaffibars milli vestur- og austurbyggingar, breyta innra skipulagi víða, fella niður stiga eða breyta ásamt breytingum á flóttaleiðum Tónlistar- og ráðstefnuhússins á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Bréf ÍAV dags. 17. júlí 2009, eldvarnarskýrsla Mannvits dags. júlí og sept. 2009, yfirlit yfir ófrágengin rými dags. sept. 2009, fundargerðir funda Batterísins við Vinnueftirlit Ríkisins og Heilbrigðiseftirlit dags. sept. 2009 og aðgengisáætlun Batterísins dags. 13. nóv. 2009 fylgja erindinu.
Stærð var: Tónlistar- og ráðstefnuhús neðri kjallari 3710,7 ferm., efri kjallari 3131,9 ferm., 1. hæð 6785,3 ferm., 2. hæð 7093,4 ferm., 3. hæð 2036,4 ferm., 4. hæð 2716 ferm., 5. hæð 1128,1 ferm., 6. hæð 665,4 ferm., 7. hæð 750,9 ferm., 8. hæð 358,8 ferm., samtals 28376,9 ferm., 232911,9 rúmm. Geymslur og vörumóttaka (B-rými) samtals 493,3 ferm., 2640,9 rúmm.
Stærðir verða: Tónlistar- og ráðstefnuhús neðri kjallari 4097,2 ferm., efri kjallari 3155,9 ferm., 1. hæð 6654,8 ferm., 2. hæð 7442,7 ferm., 3. hæð 2011,5 ferm., 4. hæð 2754,1 ferm., 5. hæð 1155,7 ferm., 6. hæð 605,8 ferm., 7. hæð 640,8 ferm., 8. hæð 310 ferm., samtals 28828,5 ferm., 244494,1 rúmm.
Hús hefur stækkað um 451,6 ferm., 8941,3 rúmm. og
B-rými hafa orðið A-rými.
Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 688.511
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 39795 (01.18.440.7)
131239-4679 Geirlaug Þorvaldsdóttir
Stigahlíð 80 105 Reykjavík
4.
Bergstaðastræti 37, breytingar vegna eldvarna
Sótt er um leyfi til að breyta brunavörnum og innihurðum í hótelbyggingu á lóð nr. 37 við Bergstaðarstræti.
Bréf frá hönnuði dags 21.maí 2009 og 17. nóv. 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40770 (02.49.610.1)
701205-2510 Stekkjarbrekkur ehf
Smáratorgi 3 201 Kópavogur
5.
Blikastaðavegur 2-8, gokart braut í rými L
Sótt er um leyft til að koma fyrir 400 metra langri akstursbraut fyrir go-kart í rými sem merkt er L í verslunarhúsinu á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 1. des.2009.
Jákvæð fyrirspurn BN040538 dags. 20. okt. 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40765 (01.23.000.2)
640809-0510 LF6 ehf
Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík
6.
Borgartún 26, breyting á 4. og 8. hæð
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi á 4. og 8. hæð verslunarhússins á lóð nr. 26 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40768 (01.35.100.1)
440377-0259 Fulltrúaráð Sjómannadagsins
Laugarási Hrafnistu 104 Reykjavík
7.
Brúnavegur 13, klæðning
Sótt er um leyfi til að klæða útveggi mhl. 42 að stórum hluta með flísum og panell álklæðningu sem fest er á burðarvirki með álleiðurum á hús sem hýsir endurhæfingu/sundlaug fyrir Hrafnistu á lóð nr.13 við Brúnaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vantar ástandsskýrslu burðarvirkishönnuðar sbr. leiðeiningar byggingarfulltrúa um útfyllingu á umsóknareyðublöðum.


Umsókn nr. 40713 (01.17.210.9)
421001-2350 Vatn og land I ehf
Laugavegi 71 101 Reykjavík
441109-0670 Wissane Inson ehf
Frakkastíg 8 101 Reykjavík
8.
Frakkastígur 8, endurnýjun á starfsleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum vegna endurnýjunar á starfsleyfi fyrir veitingastað í flokki III á 1. hæð, norðurenda húss á lóð nr. 8 við Frakkastíg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 2. des. 2009, Hljóðvistarskýrsla dags. 30. nóv. 2009, uppáskrift burðarvirkishönnuðar, þjónustusamningur við Securitas dags 25. nóv. 2009, húsaleigusamningur dags. 16. nóv. 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40750 (01.51.550.6)
190936-4069 Sigurður Pálsson
Frostaskjól 13 107 Reykjavík
9.
Frostaskjól 13, sólstofa
Sótt er um leyfi til að byggja blómaskála á svölum/bílskúrsþaki 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 13 við Frostaskjól.
Erindi fylgir neikv. fsp. BN038906 dags. 30. september 2008.
Einnig fylgir samþykki meðeigenda dags. 6. júlí 2009 og samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða áritað á uppdrátt.
Stækkun: 23,6 ferm., 63,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.905
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40679 (01.11.520.8)
511185-0849 Slysavarnadeild kvenna í Rv
Grandagarði 1 101 Reykjavík
540999-2449 Björgunarsveitin Ársæll
Grandagarði 1 101 Reykjavík
10.
Grandagarður 1, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja við til vesturs á tveim hæðum úr forsteyptum einingum og þriðju hæðina inndregna úr léttum byggingarefnum ofan á nýbyggingu og núverandi byggingu á lóð nr. 1 við Grandagarð.
Meðfylgjandi: Greinargerð vegna burðarvirkis dags. 27. nóv. 2009, lóðablað og skipulagsuppdráttur.
Stækkun: 473,5 ferm., eftir hæðum xx ferm., bílageymsla xx ferm.,xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40351 (01.18.330.4)
640697-2459 Verslunin Þingholt ehf
Stakkahlíð 17 105 Reykjavík
11.
Grundarstígur 2A, breyta verslunarhúsnæði í íbúðarhúsnæði, byggja skúr á baklóð
Sótt er um leyfi til niðurrifs á þegar fjarlægðum bakskúr og fyrir endurbyggingu hans í sömu mynd sbr. fsp. BN039934 og breytinga á 1. hæð þar sem íbúð er innréttuð í stað verslunar sbr. fsp. BN039737 í íbúðarhúsi á lóð nr. 2A við Grundarstíg.
Meðfylgjandi er leyfisveiting flestra eigenda Grundarstígs 2 dags. 9. nóv. 2009, viljayfirlýsing eigenda Grundarstígs 2A dags. 3. nóv. 2009, viljayfirlýsing flestra eigenda Grundarstígs 4, dags. 9. nóv. 2009 og mótmæli Trausta Ottesen, eins eiganda Grundarstígs 2, dags. 2. des. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40740 (01.14.030.2)
540291-2259 Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv
Austurstræti 16 155 Reykjavík
12.
Hafnarstræti 20/Læk5, innri breytingar
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi kaffihús sem er í flokki ? með því að samnýta rými 0101, 0102, 0103 og 0105, fjarlægja hringstiga á milli hæða, innrétta ísbúð austan megin í húsinu og koma fyrir aðstöðu fyrir útiveitinga á lóð nr. 20 við Hafnarstræti.
Jákvæð fyrirspurn BN040589 dags. 27. okt. 2009.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðlsufundar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsækjandi skal tilgreina flokk þess veitingastaðar sem sótt er um, ekki er unnt að fjalla um umsóknina fyrr en þær upplýsingar liggja fyrir.


Umsókn nr. 40755 (01.23.400.1)
570269-1199 Sjálfsbjörg höfuðborgarsvæðinu
Hátúni 12 105 Reykjavík
13.
Hátún 10-12, sameina 2 matshluta og mynda íbúð
Sótt er um leyfi til að sameina Mhl. 03 og Mhl. 06 í Mhl. 03 og breyta skilgreiningu hluta hjúkrunarheimilis í íbúð í húsi nr. 12 á lóðinni nr. 10-12 við Hátún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40648 (01.75.720.1)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
14.
Hlíðarfótur 13, gámur fyrir vagnstjóra Strætó
Sótt er um leyfi til að koma fyrir til bráðabirgða gám, sem nota á sem aðstöðu vagnstjóra strætó, á lóð Háskólans í Reykjavík nr. 13 við Hlíðarfót.
Samþykki lóðarhafa dags. 29. október 2009 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. nóv. 2009 fylgja erindinu.
Stærð: 14,7 ferm. 36 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 2.772
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 40763 (01.75.720.1)
601202-3280 Eignarhaldsfélagið Fasteign hf
Bíldshöfða 9 110 Reykjavík
15.
Hlíðarfótur 13, reyndarteikning
Sótt er um leyfi til breytinga á áður samþykktu erindi BN036377, þar sem byggingu 8 hefur verið frestað, byggingum 4 og 5 hefur verið frestað ofan kjallara, bygging 6 hefur verið stækkuð ásamt ýmsum breytingum á innra skipulagi, sjá fylgiskjal hönnuðar, Háskólans í Reykjavík á lóð nr. 13 við Hlíðarfót.
Erindi fylgir skýrsla um ferlimál frá Aðgengi ehf. dags. 22. apríl 2008, minnisblað um hljóðhönnun frá verkfr.st. Mannvit dags. 26. október 2009, greinargerð frá hönnuðum um breytingar, teikningaskrá, uppfærð brunahönnun frá verkfr.st. Mannvit dags. 1. desember 2009.
Nýjar stærðir: Kjallari 5035,1 ferm., 1. hæð 10304,6 ferm., 2. hæð 8406 ferm., 3. hæð 5855 ferm.
Samtals 29.600,7 ferm., 153,297,8 rúmm.
Minnkar um 6.182,8 ferm., 30502,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40743 (04.33.340.1)
550600-3580 Eignarhaldsfélagið Ögur ehf
Akralind 6 201 Kópavogur
580294-3599 Miðjan hf,Reykjavík
Hlíðasmára 17 201 Kópavogur
16.
Hraunbær 115, innrétta sjúkraþjálfun
Sótt er um leyfi til að innrétta sjúkraþjálfun í rými 0103 í heilsugæslustöðinni á lóð nr. 115 við Hraunbæ.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40711 (01.52.030.1)
230369-3729 Lovísa Sigurðardóttir
Básbryggja 15 110 Reykjavík
17.
Hringbraut 119, breyting inni
Sótt er um leyfi til að breyta innri skipan mhl 01, rými 0108 á rakarastofunni, og jafnframt verður rekstrarforminu breytt í hárgreiðslu- og snyrtistofu í verslunarhúsinu á lóð nr. 119 við Hringbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40782 (04.99.700.3)
220649-4589 Eyjólfur Ingimundarson
Klyfjasel 11 109 Reykjavík
18.
Klyfjasel 11, endurnýjað byggingaleyfi (BN038519)
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038519 dags 14. okt. 2008 sem er að gera steypta verönd með tröppum í stað timburverandar og fyrir bíslag úr álgluggaprófíl, glerjað að hluta, klætt með plötum og opið að hluta (B-rými) við aðalinngang við einbýlishús á lóð nr. 11 við Klyfjasel.
Stærðir: Bíslag, B-rými, 17,3 ferm., 53,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.119
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40058 (01.41.400.3)
431276-0629 Snæland Grímsson ehf
Laugarnesvegi 60 105 Reykjavík
19.
Langholtsvegur 115, svalaskýli
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr málmi og perlugleri og bæta við gluggum á 2. hæð á austurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 115 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. júní 2009 og 14. ágúst 2009 fylgja erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 7. ágúst 2009.
Stækkun: 16,6 fem. og 40,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.126
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40673 (01.36.410.9)
100843-2509 Jón Magngeirsson
Þykkvibær 14 110 Reykjavík
260470-3539 Ingibjörg Hanna Pétursdóttir
Laugateigur 17 105 Reykjavík
041051-4699 Sigríður Jónsdóttir
Laugateigur 17 105 Reykjavík
20.
Laugateigur 17, stækkun og breytingar á íbúð
Sótt er um leyfi til grafa frá suðurhlið kjallara, útbúa nýjan inngang í kjallaraíbúð, breyta innra skipulagi kjallara og stækka sorpgeymslu á lóð fjölbýlishússins á lóð nr. 17 við Laugateig.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa dags. 5. og 9. nóvember 2009.
Gjald kr. 7.700

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40557 (01.17.111.0)
651007-1190 Glætan bókakaffi ehf
Hjallabraut 70 220 Hafnarfjörður
21.
Laugavegur 19-19B, reyndarteikningar (áður BN039135)
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningu á kaffihúsi í flokki I sem felur í sér að fjarlægja léttan vegg í kjallara , sbr. BN039135 dags. 25. nóv. 2008, í húsi á lóð nr. 19 við Laugaveg.
Samþykki eigenda ódags. fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40729 (01.17.310.7)
411206-0250 ELL-50 ehf
Bæjarlind 6 201 Kópavogur
22.
Laugavegur 50, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja við gamalt timburhús sem fellst í að steypa nýjan kjallara og 1. hæð, steypa ofan á hana tvær íbúðarhæðir á austurhluta og setja núverandi timburhús á vesturhluta 1. hæðar og breyta því með kvistum og útbyggingum á lóð nr. 50 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 fylgir erindinu.
Stærðir: Núverandi hús; kjallari xx ferm., 1. hæð xx ferm., Samtals xx ferm., xx rúmm.
Nýbygging; kjallari xx ferm., 1. hæð xx ferm., 2. hæð xx ferm., 3. hæð xx ferm., samtals xx ferm., xx rúmm.
Stækkun kjallari xx ferm., 1. hæð xx ferm. 2. hæð xx ferm., 3. hæð xx ferm.,samtals xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx rúmm. x 77 kr
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009.


Umsókn nr. 40509 (04.32.640.2)
711296-4929 Grjótháls ehf
Skúlagötu 63 105 Reykjavík
23.
Lyngháls 4, tæknirými í kjallara - reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að bæta tæknirými fyrir varaaflsstöð inn á millipall í bílageymslu ásamt reyndarteikningum af öllu húsinu á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 13. okt. 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vantar áritun brunahönnuðar á aðaluppdrátt.


Umsókn nr. 40645 (01.19.611.0)
210954-3339 Holberg Másson
Mímisvegur 6 101 Reykjavík
24.
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30. september 2009.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Samþykki meðeigenda vísað til skipulagsstjóra til að unnt sé að grenndarkynna málið.


Umsókn nr. 40710 (01.24.420.4)
280469-5809 Kristján H Kristjánsson
Strýtusel 7 109 Reykjavík
25.
Rauðarárstígur 33, breyting inni 1. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og skilgreina í flokk II veitingahúsi á 1. hæð í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 33 við Rauðarárstíg.
Erindi fylgir tölvubréf um skilgreiningu veitingahúss dags. 19. nóvember 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. nóvember 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40747 (04.38.300.1)
070351-8039 Kristján Ágústsson
Reykás 11 110 Reykjavík
180851-4889 Hjördís Hulda Jónsdóttir
Reykás 11 110 Reykjavík
26.
Reykás 1-11, viðbygging og stækkun glugga
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á 1. hæð sem kemur undir svalir og stækkun glugga á norðvesturhorni raðhússins nr. 11 á lóð nr. 1 til 11 við Reykás.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. des. 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: ?? ferm. og ?? rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ??
Frestað.
Vísað til útskriftar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 og athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40783 (02.87.070.4)
261150-4419 Sighvatur Sigurðsson
Reykjafold 20 112 Reykjavík
27.
Reykjafold 20, breytt útlit
Ofanritaður sækir um leyfi til að múrhúða húsið, Reykjafold 20, að utan með Wärmendämm systemblöndu og fiberneti 235 gr. sem festist við útvegg með dílum og síðan steinað með kvarsefni og ysta áferð skal vera mónósílan.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 3. desember 2009.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Nota skal vottað múrkerfi fyrir íslenskar aðstæður við verkið.


Umsókn nr. 40767 (01.29.520.1)
510907-0940 Landic Ísland ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
28.
Síðumúli 34, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að sameina mhl. 01, 02 og 04 í einn mhl. sem verður mhl. 01 og að auki reyndarteikng sem felur í sér að bæta við salerni, kaffiaðstöðu og færa til hurð í vegg í atvinnuhúsinu á lóð nr 34 við Síðumúla.
Tölvupóstur frá hönnuði dags. 2. des. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40769 (01.24.221.1)
291172-5989 Brynjar Smári Þorgeirsson
Skipholt 15 105 Reykjavík
29.
Skipholt 15, húðflúrstofa
Sótt er um leyfi til að innrétta húðflúrstofu í rými 0107 í verslunarrými í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 15 við Skipholt.
Jákvæð fyrirspurn BN040701 dags. 24. nóv. 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40074 (01.42.060.1)
510907-0940 Landic Ísland ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
30.
Skútuvogur 8, breyting á innra skipulagi
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, skyggni á suðurhlið fjarlægt, innkeyrsluhurðum á suðurhlið fækkað og stækkaðar og bætt við innkeyrslurampa fyrir bíla í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8 við Skútuvog.
Yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags 22. júní 2009, fylgiskjöl um lagnir í grunni vegna olíuskilju og bréf frá skipulags og byggingarsviði Reykjavíkur fylgir erindinu.
Bréf frá hönnuði dags. 27. nóv. 2009.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra og umfjöllunar skipulagsráðs.


Umsókn nr. 40685 (01.18.400.7)
150649-3829 Trausti Ólafsson
Spítalastígur 2 101 Reykjavík
31.
Spítalastígur 2, reyndarteikningar mhl 01, 02 og 03
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki mhl. 02, innrétta vinnustofu þar og byggja svalir, að byggja svalir á mhl. 03 jafnframt því sem gerð er grein fyrir áður gerðu anddyri og útitröppum á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 2 við Spítalastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. nóvember 2009 fylgir erindinu sem og samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt ásamt umsögn Húsafriðunarnefndar
dags. 3. des. 2009.
Áður gerð stækkun: ?? ferm., ?? rúmm.
Stækkun: 23,1 ferm., 72 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 5.544
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40771 (04.08.480.1)
430269-0389 Stafir lífeyrissjóður
Stórhöfða 31 110 Reykjavík
680599-3359 200 þúsund naglbítar ehf
Stórhöfða 31 110 Reykjavík
440472-1099 Rafiðnaðarsamband Íslands
Stórhöfða 31 110 Reykjavík
32.
Stórhöfði 29-31, nr. 31 breyting 1.hæð
Sótt er um leyfi til að sameina þrjár skrifstofur í eina opna skrifstofu á 1. hæð í mhl. 02 í atvinnuhúsinu nr. 31 á lóð nr. 29 - 31 við Stórhöfða.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40716 (04.32.540.1)
410169-4369 Áfengis-/tóbaksverslun ríkisins
Pósthólf 10120 130 Reykjavík
33.
Stuðlaháls 2, breyting inni
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum í mhl 06 á 1. hæð sem fela í sér að hluta af vörugeymslu er breytt í bjórkælir, verslun stækkuð og söludeild breytt í kennslustofu og skrifstofu í verslunarhúsnæðinu á lóð nr. 2 við Stuðlaháls.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40640 (01.13.511.0)
251046-4849 Daníel Sigurðsson
Stýrimannastígur 3 101 Reykjavík
34.
Stýrimannastígur 3, breyting á geymslu í risi
Sótt er um leyfi til að skipta geymslu á hanabjálka í tvo hluta með vegg og eignarhlutanum skipt jafnt milli 0301 og 0401 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 3 við Stýrimannastíg.
Samþykki meðeiganda fylgir erindinu ódags.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


Umsókn nr. 38842 (01.13.210.4)
541207-1710 Vestur Indía Félagið ehf
Tryggvagötu 16 101 Reykjavík
35.
Tryggvagata 16, veitingasala
Sótt er um leyfi til að innrétta kaffisölu og koma fyrir tveimur borðum á gangstétt fyrir framan atvinnuhúsið á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Tölvupóstur frá eigenda um samþykki fyrir breytingum fylgir ásamt umsögn gatna- og eignaumsýslu dags. 22. september 2008.
Tölvupóstur frá hönnuði dags. 2 des. 2009.
Gjöld kr. 7.300 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40781 (01.13.211.1 02)
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
36.
Vesturgata 16B, flutningur á Gröndalshúsi
Sótt er um leyfi til að flytja yfir á lóð nr. 23-25 við Fiskislóð til viðgerða Gröndalshús, sem nú stendur á lóð nr. 16B við Vesturgötu.
Erindi fylgir húsaleigusamningur v/lóðar dags. 23. nóvember 2009 og útdráttur úr fundargerð 685 frá Húsafriðunarnefnd, ásamt bréfi Húsafriðunarnefndar
dags. 9. nóvember 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40759 (01.14.000.1)
700485-0139 Minjavernd hf
Pósthólf 1358 121 Reykjavík
37.
Vesturgata 2A, skyggni
Sótt er um leyfi til að byggja skyggni úr gleri og stáli ofan við inngang veitingastaðar á austurhlið kjallara hússins á lóð nr. 2A við Vesturgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt að notað verði samlímt öryggisgler.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40599 (01.17.311.9)
630998-2639 Búðarvík ehf
Vitastíg 12 101 Reykjavík
38.
Vitastígur 12, breyta í íbúðarhúsnæði
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í kjallara og á 1. hæð í framhúsi og atvinnuhúsnæði í íbúð í bakhúsi á lóð nr. 12 við Vitastíg.
Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda dags. 6. okt. og 10. nóv. 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40764 (01.18.420.5)
120262-5729 Alda Lóa Leifsdóttir
Þórsgata 10 101 Reykjavík
39.
Þórsgata 10, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga á erindi, BN039311 dags. 31. mars. 2009, sem er vinnustofa Mhl. 02, á baklóð einbýlishússins á lóð nr. 10 við Þórsgötu.
Mhl. 02: 78,7 ferm., 287,8 rúmm.
Minnkun: 13,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um samruna eigna.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40742 (04.66.710.1)
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
40.
2">Austurberg 3, (fsp) breytt notkun kjallara
Spurt er um mismunandi nýtingarmöguleika kjallara sundlaugarbyggingar á lóð nr. 3 við Austurberg.
Erindi fylgir greinargerð umsækjanda dags. 24. nóvember 2009.
Jákvætt.
Með vísan til umsagna á fyrirspurnarblaði.
Sækja ber um byggingarleyfi.


Umsókn nr. 40778 (01.34.331.8)
130574-5649 Sævar Smári Þórðarson
Bugðulækur 17 105 Reykjavík
41.
Bugðulækur 17, (fsp) handrið á bílskúr
Spurt er hvort endurnýja megi handrið á þaki bílskúrs við hús á lóð nr. 17 við Bugðulæk.
Meðfylgjandi er söluyfirlit dags. 22. des. 2005, bréf skilmálafulltrúa dags. 12. ágúst 2009, svar frá eigendum dags. 19. ágúst 2009, bréf frá byggingarfulltrúa dags.
12. sept. 2009 og bréf frá fyrirspyrjanda (eigendum) dags. 2. des. 2009,
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna grenndaráhrifa frá útivistarsvæði á þaki bílgeymslu.


Umsókn nr. 40752 (01.35.510.6)
260657-3999 Rafnkell Sigurðsson
Efstasund 3 104 Reykjavík
42.
Efstasund 3, (fsp) bílastæði
Spurt er hvort leyft yrði að útbúa tvö bílastæði/innkeyrslur eins og sýnt er á meðfylgjandi skissu sem og hvort Reykjavíkurborg muni standa undir kostnaði við breytingarnar við fjölbýlishúsið á lóð nr. 3 við Efstasund.
Jákvætt.
Að útbúa tvö bílastæð á lóðinni í samræmi við deiliskipulag. Kostnaður á breytingu á mannvirkjum Reykjavíkurborgar skal greiddur af umsækjanda. Sækja verður um byggingarleyfi.


Umsókn nr. 40730 (01.47.040.4)
031086-3379 Ásgeir Arnór Stefánsson
Langholtsvegur 181 104 Reykjavík
43.
Langholtsvegur 181, (fsp) innkeyrsla og 3 bílastæði
Spurt er hvort brjóta megi fyrir einfaldri innkeyrslu frá götu og útbúa þrjú bílastæði á lóð, þar af eitt vegna fyrirhugaðs bílskúrs, á lóð nr. 181 við Langholtsveg.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna en samþykki meðlóðarhafa vantar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulgsstjóra frá 4. desember 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. desember 2009.
Nei.
Vegna þriggja bílastæða á lóð samanber umsögn skipulagsstjóra.
Jákvætt að gera eitt bílastæði enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki meðlóðarhafa.


Umsókn nr. 40766 (01.24.400.1)
691003-2560 Hýði ehf
Kríunesi 1 210 Garðabær
44.
66">Rauðarárst 31-Þverh18, (fsp) breyting á 1. hæð
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta 1. hæð í skammtímaleiguíbúðir í íbúðar- og verslunarhúsinu á lóð nr. 31 við Þverholt.
Bréf frá eiganda dags. 1. des. 2009
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40724 (01.67.510.1)
250336-2929 Gunnar I Hafsteinsson
Skildinganes 58 101 Reykjavík
45.
Skildingatangi 1, (fsp) bílastæði, rampi á lóð
Spurt er hvort leyft yrði að staðsetja bílastæði og niðurkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af einbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.