Aflagrandi 40, Austurstræti 18, Austurstræti 8-10, Austurv Póstur og Sím, Baldursgata 13, Barmahlíð 7, Barmahlíð 9, Barónsstígur 5, Bauganes 13, Bauganes 3A, Bíldshöfði 9, Bjarnarstígur 5, Borgartún 29, Bragagata 26A, Bröndukvísl 14, Bústaðavegur 101, Bústaðavegur 99, Dofraborgir 22-26, Eldshöfði 15, Fjölnisvegur 2, Flókagata 9, Flókagata 9, Fossaleynir 2, Friggjarbrunnur 2-4, Friggjarbrunnur 24-26, Glæsibær 2, Grandagarður 9, Guðríðarstígur 2-4, Gufunes Áburðarverksm, Hestháls 10, Holtavegur 8-10, Hraunberg 10, Hrísateigur 20, Hverafold 5, Höfðabakki 9, Keilufell 13, Kistumelur 10, Kistumelur 11, Klettagarðar 23, Lambasel 38, Laufásvegur 63, Laufásvegur 73, Laugarnesvegur104-110, Laugavegur 105, Lágholtsvegur 9, Litlagerði 5, Ljótaland, jörð, Lyngháls 2, Miklabraut 24, Miklabraut 28, Nökkvavogur 23, Ólafsgeisli 111, Reynimelur 26, Reynimelur 63, Sifjarbrunnur 3, Skaftahlíð 24, Sóltún 5-9, Suðurlandsbraut 4-4A, Suðurlandsbraut 58-62, Sæmundargata 4 (Háskólatorg), Úlfarsbraut 96, Úlfarsbraut 98, Vínlandsleið 1, Þingás 45, Hjarðarhagi 11, Klettagarðar 21, Klettagarðar 23, Mjölnisholt 12 og 14, Skarfagarðar 2, Blönduhlíð 35, Dalsel 6-22, Glaðheimar 16, Grensásvegur 3, Grettisgata 8, Krosshamrar 13-13A, Langholtsvegur 86, Laugarnesvegur 42, Mímisvegur 2, Mímisvegur 8, Nýlendugata 9, Nönnufell 1, Óðinsgata 15, Rauðarárstígur 24, Smábýli 15A, Þingholtsstræti 2-4,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

435. fundur 2007

Árið 2007, þriðjudaginn 13. mars kl. 09:53 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 435. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Hjálmar Andrés Jónsson, Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Reynisdóttir og Sigríður Kristín Þórisdóttir Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 35545 (01.52.230.1)
531205-0810 Nova ehf
Sætúni 8 105 Reykjavík
1.
Aflagrandi 40, loftnet
Sótt er um leyfi til að koma fyrir GSM loftnetum á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 40 við Aflagranda.
Málinu fylgir samþykki húsfélagsins í Aflagranda 40 dags. 20. febrúar 2007.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35003 (01.14.050.2 01)
610105-1060 B. Pálsson ehf
Dallandi 270 Mosfellsbær
2.
Austurstræti 18, br. og þak (B-rými)
Sótt er um breytingar á innra fyrirkomulagi (m.a. fækkun á salenum), á kjallara, 1. 2. og 3. hæð og færa til flóttaleið af þaki ásamt byggingu þaks yfir hluta bakports á lóð nr. 18 við Austurstræti.
Brunahönnun VSI endurskoðuð 4. janúar 2007 og samþykki f.h. eigenda Pósthússtrætis 11 dags. 8. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Stærðir: (B-rými) 16,1 ferm., 40,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.800 + 2.774
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 35475 (01.14.040.4)
420169-3889 Alþingi
Kirkjustræti 150 Reykjavík
3.
Austurstræti 8-10, notkun kjallara
Sótt er um leyfi til þess að breyta kjallararými (0001) úr geymslu í kennslusal fyrir Alþingi í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8-10 við Austurstræti.
Samþykki f.h. Fasteignafélagsins Stoðir dags. 2. mars 2007 og samþykki eigenda dags. 8. mars 2007 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 35396 (01.14.041.8)
560306-0830 Símahúsið ehf
Borgartúni 31 105 Reykjavík
4.
Austurv Póstur og Sím, lyfta og fl
Sótt er um leyfi til endurinnrétta 1. og 6. hæð og að stækka húsið til suðurs sem nemur lyftuhúsi á gaflinum, setja glugga í norðurgafl á 6. hæð ásamt nýjum svölum til austurs og hækka hliðarveggi sem nemur 1,2 m að hluta með því að minnka hallan á þaki hússins nr. 11 við Aðalstræti.
Meðfylgjandi er brunahönnun dags. 11. mars 2007 og staðfesting burðarvirkishönnuðar dags. 22. febrúar 2007.
Stærðir: 28,8 ferm., 192,3 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 13.076
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35553 (01.18.451.1)
130371-5239 Berta Finnbogadóttir
Höfðabraut 6 300 Akranes
5.
Baldursgata 13, sþ. íbúð 0102
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð 0102, en íbúð 0101 var samþykkt 1995 á 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 13 við Baldursgötu.
Gjald kr. 6.800
Synjað.
Uppfyllir ekki skilyrði fyrir áður gerðum íbúðum.


Umsókn nr. 35539 (01.70.110.9)
060149-6589 Bessi Gíslason
Barmahlíð 7 105 Reykjavík
6.
Barmahlíð 7, sameina efri hæð og ris í 1 íb.
Sótt er um leyfi til að sameina ósamþykkta íbúð í risi og íbúð 2. hæðar í eina íbúð með tilheyrandi tilfærslu á innveggjum, breyttu rýmisskipan og stiga milli hæða ásamt stækkun kvista á suður- og vesturhlið og fjarlæga svalaskýli á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 7 við Barmahlíð.
Stærðir: 4,8 ferm., 11,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 762
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1-4 dags. 18. febrúar 2007.


Umsókn nr. 35575 (01.70.201.0)
250762-4299 Kristjón Másson
Barmahlíð 9 105 Reykjavík
7.
Barmahlíð 9, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á bílskúrum á lóðinni nr. 9 við Barmahlíð.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 6. mars 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Lagfæra skráningu.


Umsókn nr. 35569 (01.15.441.2)
600105-0940 Rafvörn ehf
Framnesvegi 64 101 Reykjavík
8.
Barónsstígur 5, þakgl. og svalir
Sótt er um leyfi til þess að setja tvo þakglugga á geymsluris, stóran þakglugga yfir stigahús og svalir á austurhlið rishæðar atvinnuhússins á lóð nr. 5 við Barónsstíg.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.


Umsókn nr. 35528 (01.67.210.7)
500303-2390 Skerjagarður ehf
Skildinganesi 43 101 Reykjavík
9.
Bauganes 13, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum þar sem kjallari er minnkaður og smávægilegar breytingar á innra fyrirkomulagi leikskólans á lóðinni nr. 13 við Bauganes.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35211 (01.67.201.1)
260565-4279 Magnús Bjarki Stefánsson
Bauganes 3a 101 Reykjavík
10.
Bauganes 3A, viðbygging og fl.
Sótt er um leyfi til að byggja tvöfaldan bílskúr og til að byggja við til norðurs og suðurs á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 3A við Bauganes.
Stærð: Stækkun 132,8 ferm. og 291,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 19.839
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35562 (04.06.200.1)
681290-2309 Byggingarfélag Gylf/Gunnars hf
Borgartúni 31 105 Reykjavík
11.
Bíldshöfði 9, breytingar
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi 3. til 6. hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 9 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 35505 (01.18.222.3)
300663-5329 Óskar Jónasson
Bjarnarstígur 5 101 Reykjavík
12.
Bjarnarstígur 5, þaksvalir, dyr
Sótt er um leyfi til þess að bæta við litlum þaksvölum með aðkomu frá 2. hæð nýsamþykktrar viðbyggingu á baklóð nr. 5 við Bjarnastíg.
Erindinu fylgir samþykkt eigenda Bjarnarstígs 3 mótt. 13. mars 2007.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35571 (01.21.810.3)
660804-3070 PH eignir ehf
Borgartúni 29 105 Reykjavík
13.
Borgartún 29, br á áður samþ. teikningum
Sótt er um leyfi til breytinga á eignaskiptum og innra skipulagi 3. hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 29 við Borgartún. Einnig er sótt um leyfi til að nýta þak 1. hæðar sem svalir.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35456 (01.18.663.9)
180657-2319 Vilborg Halldórsdóttir
Bragagata 26a 101 Reykjavík
100758-2299 Helgi Björnsson
Bragagata 26a 101 Reykjavík
14.
Bragagata 26A, svalir - skjólgirðing
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar svalir á austurgafl, koma fyrir þaksvölum og skjólgirðingu ofan á geymsluskúr og reisa skjólvegg á lóðamörkum við einbýlishúsið á lóðinni nr. 26A við Bragagötu.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35542 (04.23.510.4)
160556-4129 Höskuldur H Höskuldsson
Bröndukvísl 14 110 Reykjavík
050659-5859 Aðalheiður Ríkarðsdóttir
Bröndukvísl 14 110 Reykjavík
15.
Bröndukvísl 14, brjóta úr vegg - kjallara
Sótt er um leyfi til að gera gat í burðarvegg í kjallara einbýlishússins á lóðinni nr. 14 við Bröndukvísl.
Málinu fylgir yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags. 7. mars. 2006.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35474 (01.81.931.7)
140759-3339 Gunnar Guðlaugsson
Bústaðavegur 99 108 Reykjavík
260882-5549 Víglundur Piertew Mettinisson
Bústaðavegur 101 108 Reykjavík
16.
Bústaðavegur 101, garðstofa, br. anddyri
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu í suður á tveimur hæðum ásamt svölum á rishæð einnig að breyta anddyri til norðurs þannig að í stað burðarvirkis úr timbri frá nýlega samþykktum teikningum er viðbyggingin staðsteypt með með flötu þaki. Meðfylgjandi er samþykki nágranna dags. 7. febrúar 2007.
Stærðir: 62,8 ferm., 169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.546
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


Umsókn nr. 35501 (01.81.931.6)
140759-3339 Gunnar Guðlaugsson
Bústaðavegur 99 108 Reykjavík
150261-5899 Freyja María Þorsteinsdóttir
Bústaðavegur 99 108 Reykjavík
17.
Bústaðavegur 99, garðstofa
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu í suður á tveimur hæðum ásamt svölum á rishæð einnig að breyta anddyri til norðurs þannig að í stað burðarvirkis úr timbri frá nýlega samþ. teikningum er viðbyggingin staðsteypt með með flötu þaki. Meðfylgandi er samþ. nágranna dags. 7. febrúar 2007.
Stærðir: 62,8 ferm., 169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.546
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


Umsókn nr. 34917 (02.34.450.3)
121166-5939 Unnur Jónsdóttir
Dofraborgir 22 112 Reykjavík
260465-3259 Þórður Þórisson
Dofraborgir 22 112 Reykjavík
18.
Dofraborgir 22-26, endurnýjun á byggingarleyfi nr. 22 frá 22.5.2001
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi frá 22. maí 2001 þar sem sótt var um leyfi til að stækka fyrstu hæð hússins nr. 22 (matshl. 01) á lóðinni nr. 22-26 við Dofraborgir sem nemur óútgröfnu sökklarými. Jafnframt er sótt um leyfi til að bæta við glugga á norðausturhlið hússins nr. 22 á raðhúsalóðinni nr. 22-26 við Dofraborgir.
Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda dags. 12. febrúar 2007. Stækkun: 15,7 ferm., 42,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.666
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35561 (04.03.520.7)
101043-4369 Árni Hrafn Árnason
Steinagerði 10 108 Reykjavík
031166-5519 Árni Páll Árnason
Reyrengi 39 112 Reykjavík
101248-3569 Hörður Stefán Harðar
Sogavegur 18 108 Reykjavík
041053-5939 Sigurður Helgi Óskarsson
Sóleyjarimi 5 112 Reykjavík
19.
Eldshöfði 15, reyndarteikningar v. eignaskipta
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af fjögurra eininga atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 15 við Eldshöfða.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35530 (01.19.630.2)
080360-3639 Stephen M Christer
Fjölnisvegur 2 101 Reykjavík
140559-2459 Margrét Harðardóttir
Fjölnisvegur 2 101 Reykjavík
20.
Fjölnisvegur 2, endurnýjun á byggingarleyfi BN031822
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingaleyfi frá 8. nóvember 2005 þar sem sótt var um leyfi til þess að breyta kvisti í austurenda húss, stækka svalir á annarri hæð til austurs, breyta svalagluggum á suðurhlið annarrar og þriðju hæðar, koma fyrir þakgluggum á suðurþekju og jafnframt fjarlægja skorstein og lagfæra þak hússins á lóðinni nr. 2 við Fjölnisveg.
Einnig er sótt um leyfi til þess að byggja steinsteypta garðgeymslu austan hússins.
Málið var í kynningu frá 8. september til 6. október 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda dags. 25. júlí 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Garðgeymsla 15,3 ferm. og 42,9 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 2.910
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 34981 (01.24.370.5 01)
070955-5399 Hanna Þorbjörg Svavarsdóttir
Flókagata 9 105 Reykjavík
21.
Flókagata 9, svalir á suðurhlið
Sótt er um leyfi til þess að setja upp svalir við suðurhlið 2. hæðar tvíbýlishússins á lóð nr. 9 við Flókagötu.
Samþykki meðeigenda dags. 28. júní 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar 101 dags. 6. mars 2007.
Umsækjandi skal stytta svalir í báða enda um allt að 20 cm. á hvorum stað.


Umsókn nr. 33636 (01.24.370.5)
060775-4869 Árni Heiðar Karlsson
Hrefnugata 7 105 Reykjavík
22.
Flókagata 9, íbúð í kjallara
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri kjallaraíbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 9 við Flókagötu.
Íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 20. september 2005 og endurskoðun 16. janúar 2007 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


Umsókn nr. 35254 (02.46.710.1)
491296-2839 Rafvirki ehf
Fossaleynir 2 112 Reykjavík
23.
Fossaleynir 2, breytingar
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhluta sem aðgreinir verslun frá verkstæði með tveimur nýjum gluggum á vesturhlið ásamt samþykki fyrir hækkun óbyggðrar viðbyggingar (2. áfanga) atvinnuhússins á lóð nr. 2 við Fossaleyni.
Jafnframt er erindi 23093 dregið til baka.
Stærð: Hús var 828,4 ferm. verður 827,1 ferm., var 4254 rúmm. verður 4388 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 9.112
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35538 (05.05.510.3)
030375-4249 Leifur Guðmundsson
Þorláksgeisli 47 113 Reykjavík
24.
Friggjarbrunnur 2-4, breyta í einingar - sökkull og skriðkj.
Sótt er um leyfi til að breyta um byggingaraðferð á parhúsinu á lóðinni nr. 2-4 við Friggjarbrunn. Í stað staðsteypu verða notaðar forsteyptar einingar.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35304 (05.05.330.2)
241149-2269 Einar Gunnarsson
Garðhús 14 112 Reykjavík
110475-4039 Þórður Karl Einarsson
Garðhús 14 112 Reykjavík
25.
Friggjarbrunnur 24-26, parhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvílyft parhús með innbyggðum bílgeymslum allt úr steinsteypu í einangrunarmót á lóð nr. 24-26 við Friggjarbrunn.
Stærð: Hús nr. 24 (matshluti 01) íbúð 1. hæð 77,5 ferm., 2. hæð 96 ferm., bílgeymsla 24,5 ferm., samtals 198 ferm., 651 rúmm. Hús nr. 26 (matshluti 02) er sömu stærðar og nr. 24 eða samtals 198 ferm., 651 rúmm.
Parhús samtals 396 ferm., 1302 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 88.536
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35573 (04.35.120.7)
190361-4549 Magnús Rúnar Guðmundsson
Glæsibær 2 110 Reykjavík
26.
Glæsibær 2, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við suðvesturhorn hússins, byggt úr gluggakerfi með timburþaki á lóðinni nr. 2 við Glæsibæ.
Stærðir: 20,9 ferm., xxxx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xxxxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35470 (01.11.520.5)
430806-0250 Grandagarður ehf
Sæviðarsundi 96 104 Reykjavík
27.
Grandagarður 9, matsölustaður
Sótt er um leyfi til að innrétta matsölustað á 1. hæð hússins á lóð nr. 9 við Grandagarð.
Meðfylgjandi er samþykki Faxaflóahafna dags 12. mars 2007 óundirritað.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað er til athugasemda heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 35297 (04.12.130.1)
590902-3730 Eik fasteignafélag hf
Sóltúni 26 105 Reykjavík
28.
7">Guðríðarstígur 2-4, breyting á rými 0301
Sótt er um leyfi til þess að breyta snyrtingu á 3. hæð (0301) atvinnuhússins á lóð nr. 2-4 við Guðríðarstíg.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35549 (02.22.000.1)
511002-3110 Neshamrar ehf
Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík
29.
Gufunes Áburðarverksm, br. á nýtingu
Sótt er um leyfi til að innrétta starfsmannaaðstöðu í fyrrum ammoníum- og nítrat- byggingu í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35558 (04.32.320.1)
640478-0209 Hópferðamiðstöðin Vestfjl ehf
Hesthálsi 10 110 Reykjavík
30.
Hestháls 10, br. innra fyririkomulagi, gluggum
Sótt er um breytingu á innra fyrirkomulagi loka opi milli hæða og setja opnanleg fög á nokkra glugga norðurhliðar.
Stærðir: Stækkun efri hæðar 42,9 ferm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35570 (01.40.810.1)
450599-3529 Fasteignafélagið Stoðir hf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
670492-2069 Landsafl hf
Pósthólf 709 121 Reykjavík
31.
Holtavegur 8-10, stækkun, bílapallur o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi í hluta húss í stóra verslun á 1. hæð og margar minni á stækkaðri 2. hæð, byggja tveggja hæða viðbyggingu við vesturhlið 1. og 2. hæðar Holtagarða og aðra viðbyggingu við norðurhlið ásamt tveggja hæða bílapalli vestan við verslunarhúsið á lóð nr. 8-10 við Holtaveg.
Stærð: Viðbyggingar 1. hæð 1109,3 ferm., viðbyggingar og gólf (milligólf) 2. hæð samtals 6559,4 ferm., samtals stækkun 7668,7 ferm., 11169,1 rúmm.
Bílapallur tæknirými xxx ferm., xxx rúmm., bílastæði (B-rými) xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.800 xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35520 (04.67.420.1)
570480-0149 Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga
Skúlatúni 2 105 Reykjavík
32.
Hraunberg 10, viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að byggja léttbyggða tengibyggingu milli núverandi leikskólabygginga og sameina byggingarnar í einn matshluta á lóð nr. 10 við Hraunberg.
Stærð: Stækkun leikskóla samtals 76,2 ferm., 318,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 21.651
Frestað.
Lagfæra skráningu.


Umsókn nr. 34876 (01.34.620.3)
200967-5779 Gauti Arnar Marinósson
Hrísateigur 20 105 Reykjavík
041167-3519 Hulda Sverrisdóttir
Hrísateigur 20 105 Reykjavík
33.
Hrísateigur 20, stækkun
Sótt er um leyfi til þess að byggja skála sem tengir mhl. 02 við 0101 í íbúðarhúsi (mhl. 01) og byggja viðbyggingu suðurhlið 1. hæðar mhl. 01 á lóð nr. 20 við Hrísateig.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. nóvember 2006 fylgir erindinu.
Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 5. mars 2007.
Stærð: Skáli framan við bílskúr 13,7 ferm., og viðbygging 10,0 ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.


Umsókn nr. 35568 (02.87.420.1 02)
471204-2180 Skrá ehf
Sveighúsum 11 112 Reykjavík
34.
Hverafold 5, skjólveggur
Sótt er um leyfi fyrir skjólvegg milli súlna við veitingastað á jarðhæð á suðausturenda hússins á lóðinni nr. 5 við Hverfold.
Samþykki stjórnar húsfélags dags. 7. mars 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35547 (04.07.500.1)
670492-2069 Landsafl hf
Pósthólf 709 121 Reykjavík
35.
Höfðabakki 9, skilti
Sótt er um leyfi til að koma fyrir skilti á jarðhæð austurhliðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 9 við Höfðabakka.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35503 (04.67.760.7)
081059-4469 Ólafur Gunnarsson
Keilufell 13 111 Reykjavík
36.
Keilufell 13, áhaldag., viðb. við bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja áhaldageymslu sem timburviðbyggingu við núverandi bílskúr (matshluta 02) á lóð nr. 13 við Keilufell.
Samþykki nágranna ódags. fylgir erindinu.
Stærð: Áhaldageymsla (matshluti 02) 16,4 ferm., 46,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 3.169
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35351 (34.53.360.1)
500998-2539 Húsbílahöllin ehf
Pósthólf 374 212 Garðabær
37.
Kistumelur 10, stálgrindarhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft stálgrindarhús klætt lituðum stálsamlokueiningum fyrir geymsluhúsnæði með tuttugu sjálfstæðum einingum á lóð nr. 10 við Kistumel.
Stærð: Geymsluhúsnæði samtals 1224 ferm., 7893,6 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 6.800 + 536.765
Frestað.
Vísað til athugasemda OR um kaldavatnsinntök.


Umsókn nr. 35485 (34.53.340.1)
700485-0139 Minjavernd hf
Pósthólf 1358 121 Reykjavík
38.
Kistumelur 11, atvinnuhúsnæði
Sótt er um leyfi til þess að byggja þrjár sambyggðar stálgrindarskemmur sem verkstæði og geymsluhúsnæði fyrir Minjavernd allt klætt með stálsamlokueiningum á lóð nr. 11 við Kistumel.
Jafnframt er erindi 35200 dregið til baka.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 2. janúar 2007 og umsögn brunahönnuðar dags. 20. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Verkstæði og geymsla samtals 1248,4 ferm., 7277 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 494.836
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skila skal vottun eininga fyrir úttekt á botnplötu.


Umsókn nr. 34670 (01.32.450.1)
411163-0169 John Lindsay hf
Skipholti 33 105 Reykjavík
39.
Klettagarðar 23, vöru og skrifstofuhúsnæði
Sótt er um leyfi til þess að byggja stálgrindarhús sem vöru- og skrifstofuhúsnæði að mestu á einni hæð ásamt steinsteyptum bílakjallara undir hluta húss á lóð nr. 23 við Klettagarða.
Brunahönnun VSI dags. 12. september og endurskoðuð 25. september 2006, umsögn brunahönnuðar dags. 7. janúar 2007, bréf hönnuðar dags. 12. og 26. september, samkomulag milli lóðarhafa Klettagarða 21 og 23 dags. 1. október 2006, minnisblað til lóðarhafa frá Reykjavíkurhöfn dags. 5. maí 2004 og útreikningur verkfræðings á U-gildi vegna óvenjulegrar einangrunar þaks dags. í september 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Vöru- og skrifstofuhús 1. hæð og millipallur 2306,9 ferm., 2. hæð 704,8 ferm., bílakjallari 489 ferm., samtals 3500,7 ferm., 27396,3 rúmm. Vörubryggjur (B-rými) samtals 58 ferm., 216 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.800 + 1.877.636
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Vottun eininga skal skila eigi síðar en við úttekt á botnplötu.


Umsókn nr. 33811 (04.99.870.9)
050744-3619 Sverrir Jóhannesson
Hagamelur 45 107 Reykjavík
40.
Lambasel 38, einbýlishús
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft steinsteypt einbýlishús einangrað að utan og klætt með múrkerfi ásamt bílskýli fyrir tvo bíla við austurhlið hússins á lóð nr. 38 við Lambasel.
Jafnframt er erindi 35535 dregið til baka.
Stærð: Einbýlishús 203,7 ferm., 771,8 rúmm., bílskýli (B-rými) 38,2 ferm., 105,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 53.528
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35554 (01.19.701.1)
120372-3789 Linda Jóhannsdóttir
Laufásvegur 63 101 Reykjavík
120269-2919 Ellert Finnbogason
Laufásvegur 63 101 Reykjavík
41.
Laufásvegur 63, svalir, pallur og setlaug
Sótt er um leyfi til að rífa svalir og byggja nýjar með tröppum niður í garð á framhlið einbýlishússins á lóðinni nr. 63 við Laufásveg. Einnig er sótt um leyfi til að gera nýjan hlaðinn pall, skjólgirðingu og til að koma fyrir setlaug og einu bílastæði innan lóðar.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35552 (01.19.711.1)
180263-3309 Þorsteinn M Jónsson
Laufásvegur 73 101 Reykjavík
42.
Laufásvegur 73, bílskúr, stækka kjallara, st. eldhús
Sótt er um leyfi til að rífa bílskúr við lóðarmörk í vestur, byggja nýjan tvöfaldan við lóðarmörk í austur og koma fyrir tveimur bílastæðum innan lóðar, að stækka kjallara til suðvesturs og útbúa verönd ofan á, stækka anddyri til norðvesturs, að byggja jarðhýsi austan og norðan megin, að stækka eldhús á 1. hæð og útbúa svalir á 2. hæð, innrétta rishæð og byggja tvo nýja kvisti í þak. Einnig er sótt um leyfi til að endurskipuleggja lóð, koma fyrir setlaug og skjólveggjum á suðausturhluta lóðar og skjólveggjum fyrir sorp og garðáhöld norðvestan megin á lóð.
Málinu fylgir samþykkki lóðarhafa Laufásvegar 75, skilyrt samþykki eigenda Laufásvegar 71, og skilyrt samþykki lóðarhafa Bergstaðastrætis 80 öll dags. 8. nóvember 2006.
Stækkun: Kjallari 143,3 ferm., 1. hæð 18,9 ferm., bílskúr 70,4 ferm.
Samtals 232,6 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 01-05 dags. 6. september 2006.


Umsókn nr. 35138 (01.34.100.1)
600401-2380 Laugarnesvegur 106-110,húsfélag
Laugarnesvegi 106 105 Reykjavík
43.
Laugarnesvegur104-110, svalir og handrið
Sótt er um leyfi fyrir að hækka og breyta svalahandriðum á suður- og vesturhliðum hússins á lóð nr. 104-110 við Laugarnesveg.
Bréf burðarvirkishönnuðar fylgir erindinu dagsett 6. mars 2007.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 33820 (01.24.000.5)
650796-2419 Fet ehf
Pósthólf 9223 129 Reykjavík
44.
Laugavegur 105, breyting a aðaluppdr. BN 033130 samþ. 10 janúar 2006
Sótt er um leyfi til breytinga á áður samþykktum uppdráttum, og á breyttri starfsemi á neðstu hæð og í kjallara hússins á lóðinni nr. 105 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. apríl 2006 fylgir erindinu. Erindinu fylgir bréf umsækjanda dags. 5. mars 2007.
Gjald kr. 6.100 + 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Í samþykkt byggingarfulltrúa er ekki tekin afstaða til opnunartíma enda er það ekki á valdsviði embættisins.


Umsókn nr. 35526 (01.52.031.8)
310560-4489 Ragnheiður Júlíusdóttir
Lágholtsvegur 9 107 Reykjavík
020157-4619 Óli Ragnar Gunnarsson
Lágholtsvegur 9 107 Reykjavík
45.
Lágholtsvegur 9, byggja vindfang, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja vindfang úr timbri við norðausturhlið og einnar hæðar viðbyggingu einnig úr timbri ofan á steyptar svalir á suðvesturhlið einbýlishússins á lóðinni nr. 9 við Lágholtsveg.
Stækkun xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35541 (01.83.600.8)
050475-5579 Hans Heiðar Tryggvason
Bræðraborgarstígur 20 101 Reykjavík
46.
Litlagerði 5, Reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 5 við Litlagerði. Byggt hefur verið yfir anddyri, kvistur er byggður á norðurþekju ásamt minni háttar breytingum á innra skipulagi.
Áður gerð stækkun xx. ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35587 (05.0-.--9.8)
511170-0529 Skipulagssjóður Reykjavborgar
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
47.
Ljótaland, jörð, niðurrif
Sótt er um leyfi til niðurrifs á sumarrbústað og geymslu í Ljótalandi. Landnúmer 123802
Mhl. 01, sumarbústaður, fastanr. 208-2432, byggingarár 1945.
Mhl. 02, geymsla, matsnr. 208-2433, byggingarár 1945.
Gjald kr. 6.800


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35476 (04.32.640.1)
590658-0149 Freyr ehf
Lynghálsi 2 110 Reykjavík
48.
Lyngháls 2, viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja lager og skrifstofubyggingu, áfanga 3, sem hýsir á 1. hæð stiga og lyftuhús, á 2. hæð lager og skrifstofu og á 3. hæð fundaraðstöðu. Húsið er byggt úr steinsteypu og er með átta vöruafgreiðsluhurðum fyrir stóra bíla á suðurhlið.
Stærðir: 1.542,7 ferm., 10.191,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 693.022
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35447 (01.70.100.5)
261244-3659 Bragi Guðjónsson
Miklabraut 24 105 Reykjavík
49.
Miklabraut 24, endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN-31502
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr steyptan í plastkubbamót á austur lóðamörkum ásamt steinsteyptum stoðvegg á austur og vestur lóðamörkum lóðar nr. 24 við Miklubraut, samkv. uppdr. HP Hönnun, dags. 18. maí 2005.
Samþykki eigenda Miklubrautar 26 og 28 dags. 20. mars 2005 og samþykki f.h. eigenda Miklubrautar 22 dags. 22. maí 2005 fylgja erindinu. Málið var í kynningu frá 8. ágúst til 5. september 2005. Athugasemdabréf bárust frá 32 íbúum við Mjóuhlíð, dags. 1. september 2005. Lögð fram umsögn Framkvæmdasviðs, dags. 7. október 2005. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa og svör við athugasemdum, dags. 7. október 2005.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 202-9775 bílskúr 19,5 ferm.
Nýr bílskúr 23,4 ferm., 65,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 4.454
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 01-03 dags. síðast breytt 1. mars 2007.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35445 (01.70.100.7)
110563-2809 Birna Björg Berndsen
Miklabraut 28 105 Reykjavík
50.
Miklabraut 28, endurnýjun á byggingarleyfi nr. BN031504
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr steyptan í plastkubbamót á austur lóðamörkum ásamt steinsteyptum stoðvegg á lóð nr. 28 við Miklabraut samkv uppdr. HP Hönnun, dags. 18. maí 2005.
Samþykki eigenda Miklubrautar 24 og 26 dags. 20. mars 2005 og samþykki eigenda Miklubrautar 30 dags. 10. júní 2005 fylgja eindinu. Málið var í kynningu frá 8. ágúst til 5. september 2005. Athugasemdabréf bárust frá 32 íbúum við Mjóuhlíð, dags. 1. september 2005. Lögð fram umsögn
Framkvæmdasviðs, dags. 7. október 2005. Einnig lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa og svör við athugasemdum, dags. 7. október 2005.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 202-9777 bílskúr 22,6 ferm.
Nýr bílskúr 23,4 ferm., 65,5 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 4.454
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 01-03 dags. síðast breytt 1. mars 2007.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35564 (01.44.131.2)
290169-3139 Bragi Baldursson
Nökkvavogur 23 104 Reykjavík
51.
Nökkvavogur 23, lagnarými í kjallara
Sótt er um leyfi fyrir kjallara undir bílgeymslu á lóð nr. 23 við Nökkvavog.
Stærð: 60,8 ferm., 164,2 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.165
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Helga Guðmundsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 35560 (04.12.630.3)
110661-5929 Ingunn Stella Björnsdóttir
Ólafsgeisli 111 113 Reykjavík
050763-4719 Valdemar Sveinsson
Ólafsgeisli 111 113 Reykjavík
52.
60">Ólafsgeisli 111, pallur, pottur, girðing
Sótt er um leyfi til að koma fyrir setlaug, að byggja sólpall og skjólveggi vestan við einbýlishúsið á lóðinni nr. 111 við Ólafsgeisla.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 31717 (01.54.110.5)
210517-2789 Þórhallur Tryggvason
Hringbraut 50 107 Reykjavík
241110-3389 Ólafur Tryggvason
Reynimelur 26 107 Reykjavík
53.
Reynimelur 26, reyndarteikningar
Vegna eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 26 við Reynimel.
Gerð er grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara, áður gerðum hringstiga milli kjallara og fyrstu hæðar og áður gerðum millivegg í bílskúr.
Skýrsla Rafmagnsveitu Reykjavíkur dags. 10. janúar 1947 fylgir erindinu. Virðingargjörð dags. 21. apríl 1947 fylgir erindinu. Afsalsbréf innfært 3. febrúar 1977 fylgir erindinu.
Málinu fylgir íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 20. september 2005 og samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt dags. 20. október 2006.
Gjald kr. 5.700 + 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


Umsókn nr. 35537 (01.52.430.2)
150956-5959 Jón Ólafur Skarphéðinsson
Reynimelur 63 107 Reykjavík
040859-3309 Hólmfríður Jónsdóttir
Reynimelur 63 107 Reykjavík
54.
Reynimelur 63, endurnýjun á byggingarleyfi BN030617
Sótt er um leyfi til endurnýjunar á byggingaleyfi nr. BN030617 frá 4. mars 2005 þar sem sótt var um leyfi til þess að gera tröppur af svölum efri hæðar niður á þak bílgeymslu, koma fyrir girðingu á þaki bílgeymslu og setja tröppur af þaki bílgeymslu niður í garð hússins á lóðinni nr. 63 við Reynimel.
Jafnframt eru matshlutar 01, 02 og 03 á lóðinni sameinaðir í einn matshluta.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vantar samþykki meðlóðarhafa og lóðarhafa lóðarinnar nr. 65 við Reynimel. Að þeim fengnum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.


Umsókn nr. 35133
250464-2319 Valgeir Berg Steindórsson
Vættaborgir 144 112 Reykjavík
55.
Sifjarbrunnur 3, nýbygging einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tvílyft einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 3 við Sifjarbrunn.
Málinu fylgir brunahönnun frá VSI dags. 6. febrúar 2007.
Stærð: Íbúð 1. hæð 107,7 ferm., 2. hæð 137,7 ferm., bílgeymsla 36,3 ferm.
Samtals 281,7 ferm. og 852,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 51.978
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 35436 (01.27.420.1)
450599-3529 Fasteignafélagið Stoðir hf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
56.
Skaftahlíð 24, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir núverandi innra skipulagi allra hæða beggja húsa ásamt leyfi til þess að breyta opum á vesturhlið kjallara norðurhúss og setja nýjar hurðir í aðalinngang á austurhlið 1. hæðar norðurhúss á lóð nr. 24 við Skaftahlíð.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26. febrúar 2007 og viðauki við eldri brunahönnun dags. 27. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35132 (01.23.160.1)
520701-2220 Sóltún 5,húsfélag
Sóltúni 5 105 Reykjavík
57.
2">Sóltún 5-9, nr.5 - svalask.
Sótt er um leyfi til þess að setja upp glerlokun á allar svalir fjölbýlishúss nr. 5 á lóð nr. 5-9 við Sóltún.
Málinu fylgir fundargerð húsfélagsins frá 29. nóvember 2006.
Stæð: Svalaskýli samtals 144 ferm., 403,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 27.418
Frestað.
Fjarlægja stærðir fyrir og eftir breytingu á uppdrætti 01.


Umsókn nr. 35565 (01.26.200.1)
480394-2329 Húseigendafélagið Suðurlbr 4a
Suðurlandsbraut 4a 108 Reykjavík
58.
Suðurlandsbraut 4-4A, br. v. eignaskiptayfirlýsingar
Sótt er um samþykki fyrir leiðréttingu grunnmyndar og skráningar 5. hæðar vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar fyrir atvinnuhús nr. 4A á lóð nr. 4-4A við Suðurlandsbraut.
Bréf hönnuðar dags. 6. mars 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35491 (01.47.140.1)
620705-1520 Mörkin eignarhaldsfélag ehf
Reykjavíkurvegi 74 220 Hafnarfjörður
59.
Suðurlandsbraut 58-62, br.svalask.,svölum, gl.,stærð o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að breyta byggingarlýsingu, breyta bílageymslu aðallega við aðkomu, breyta svalaskýlum, svölum, gluggum og innra skipulagi fjölbýlishúsa nr. 58, 60 og 62 á lóð nr. 58-64 við Suðurlandsbraut.
Bréf hönnuða dags. 15. janúar og 6. mars 2007 ásamt yfirlýsingu brunahönnuðar dags. 6. mars 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Leiðréttar stærðir kjallari 857,7 ferm., 1. hæð 2028,9 ferm., 2. hæð 2085 ferm., 3. hæð 1812,3 ferm., 1829,7 ferm., samtals 8613,6 ferm., 29012,1 rúmm., en var 8625,3 ferm., 29159 rúmm.
Svalagangar (B-rými) verða samtals 1380 ferm., 7015,5 rúmm., en voru 1209,3 ferm., 5204,1 rúmm.
Opin bílageymsla (B-rými) verður 3668,4 ferm., 14823,3 rúmm., en var 3663,3 ferm., 14802,7 rúmm.
Svalaskýli eru nú samtals 492 ferm., 1467 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 214.397
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35572
600169-2039 Háskóli Íslands
Suðurgötu 101 Reykjavík
60.
Sæmundargata 4 (Háskólatorg), byggja 3. hæðina
Sótt er um leyfi til þess að byggja léttbyggða 3. hæð fyrir skrifstofur og vinnuaðstöðu kennara ofan á suðurhluta Háskólatogs og breyta lítillega nýsamþykktum neðri hæðum þ.e. Sæmundagötu 10 á lóð Háskóla Íslands við Suðurgötu.
Brunahönnun endurskoðuð 5. mars 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun samtals 1114,8 ferm., 4567,9 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 310.617
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Skipulagsferli ólokið.


Umsókn nr. 35376 (02.69.860.5)
660504-3030 Fasteignafélagið Hlíð ehf
Lágmúla 6 108 Reykjavík
61.
Úlfarsbraut 96, fjölbýlishús m. 7 ib og 6 bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með sjö íbúðum og innbyggðri bílageymslu fyrir sex bíla allt einangrað að utan og klætt með hvítri málmklæðningu á lóð nr. 96 við Úlfarsbraut.
Stærð: Íbúð 1. hæð 242,7 ferm., 2. hæð 239,7 ferm., 3. hæð 351,3 ferm., bílgeymsla 116,6 ferm., samtals 950,3 ferm., 2980,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 202.667
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35375 (02.69.850.5)
660504-3030 Fasteignafélagið Hlíð ehf
Lágmúla 6 108 Reykjavík
62.
Úlfarsbraut 98, fjölbýlish. m. 6 íb. og 6 bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með sex íbúðum og innbyggðri bílgeymslu fyrir sex bíla allt einangrað að utan og klætt með hvítri málmklæðningu á lóð nr. 98 við Úlfarsbraut.
Stærð: Íbúð 1. hæð 242,7 feerm., 2. hæð 239,7 ferm., 3. hæð 351,3 ferm., bílgeymsla 116,6 ferm., samtals 950,3 ferm., 2980,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 202.667
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35489 (04.11.140.1)
520171-0299 Húsasmiðjan hf
Holtavegi 10 104 Reykjavík
540291-2259 Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv
Austurstræti 11 155 Reykjavík
63.
Vínlandsleið 1, banki
Sótt er um leyfi til að innrétta bankaútibú með tilheyrandi starfsmanna- og vinnuaðstöðu ásamt snyrtingum, ræstiklefa og geymslum í mhl. 02 í húsi Húsasmiðjunar á lóðinni nr. 1 við Vínlandsleið.
Umsögn brunahönnuðar dags. 6. mars 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 35555 (04.72.100.1 04)
060153-2219 Gils Friðriksson
Þingás 45 110 Reykjavík
64.
Þingás 45, milliloft
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu millilofti, stiga og tveimur þakgluggum í raðhúsi nr. 45 við Þingvað.
Stærðir: Stækkun 52,6 ferm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 35589 (01.55.300.7)
570480-0149 Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga
Skúlatúni 2 105 Reykjavík
65.
Hjarðarhagi 11, lóðamarkabreyting
Óskað er eftir breytingu á lóðamörkum lóðarinnar nr. 11 við Hjarðarhaga samkvæmt meðfylgjandi tillögu landupplýsingadeildar Framkvæmdasviðs dags. 12. mars 2007.
Lóðin er talin 373 ferm., sbr. yfirlýsingu dags. 10. júní 1964 (óþinglesin).
Lóðin er talin hjá sýslumanni 260 ferm.
Lóðin reynist 371 ferm.
Bætt við lóðina spildu, sem áður tilheyrði Smyrilsvegi 28, sbr. samþykki byggingarnefndar 25. febrúar 1999, sbr. og þinglesinn lóðarsamning um Smyrilsveg 28 dags. 8. október 1999 nr. B-020927/1999, 2 ferm.
Lóðin verður 373 ferm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.


Umsókn nr. 35592 (01.32.440.1)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
66.
Klettagarðar 21, breyting á mæliblaði
Lagt fram mæliblað Faxaflóahafna dags. mars 2007 vegna lóðarinnar nr. 21 við Klettagarða.
Lóðin er 11.326 ferm.
Mæliblaði er breytt vegna breytinga á deiliskipulagi þar sem húsi er snúið á lóð og sett inn samkomulag um afnotarétt milli lóðarhafa nr. 21 og 23, á mæliblað fyrir klettagarða 23 er sett inn sama kvöð um afnotarétt.
Með erindinu fylgir bréf Faxaflóahafna dags. 12. mars 2007.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35591 (01.32.450.1)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
67.
Klettagarðar 23, breyting á mæliblaði
Lagt fram mæliblað Faxaflóahafna dags. mars 2007 vegna lóðarinnar nr. 23 við Klettagarða.
Lóðin er 5402 ferm.
Sett er inn kvöð vegna afnotaréttar milli lóðarhafa nr. 21 og 23 við Klettagarða, á mæliblað fyrir Klettagarða 21 er sett inn sama kvöð.
Með erindinu fylgir bréf Faxaflóahafna dags. 12. mars 2007.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35590 (01.24.110.1)
180544-4299 Gunnar Sveinbjörn Óskarsson
Laugavegur 8 101 Reykjavík
68.
Mjölnisholt 12 og 14, lóðarsameining
Ofanritaður óskar eftir, f.h. lóðarhafa, sameiningu lóðanna nr. 12 og 14 við Mjölnisholt, samkvæmt meðfylgjandi tillögu landupplýsingadeildar Framkvæmdasviðs dags. 8. mars 2007.
Mjölnisholt 12: Lóðin er talin 784 ferm. Lóðin reynist 789 ferm.
Mjölnisholt 14: Lóðin er talin 716 ferm. Lóðin reynist 734 ferm.
Sameinaðar lóðir 1523 ferm., og verður skráð nr. 12-14 við Mjölnisholt.
Deiliskipulagið var samþykkt í skipulagsráði 23. janúar 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.


Umsókn nr. 35593 (01.32.170.1)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
69.
Skarfagarðar 2, breyting á mæliblaði
Lagt fram breytt mæliblað Faxaflóahafna dags. mars 2007 vegna lóðarinnar nr. 2 við Skarfagarða, þar sem sett er inn kvöð um lagnir Orkuveitu Reykjavíkur sem ekki var á fyrra mæliblaði sem samþykkt var 16. janúar 2007.
Með erindinu fylgir bréf Faxaflóahafna dags. 12. mars 2007.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 35556 (01.71.302.2)
200851-4209 Lovísa Fjeldsted
Blönduhlíð 35 105 Reykjavík
70.
Blönduhlíð 35, (fsp) hurð út úr geymslu
Spurt er hvort leyft yrði að opna að núverandi geymslu undir útitröppum frá kjallararými í eigu íbúðar 1. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 35 við Blönduhlíð.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi viðeigandi samþykki meðeigenda.


Umsókn nr. 35536 (04.94.870.1)
230171-4679 Magnús Sverrir Ingibergsson
Dalsel 16 109 Reykjavík
71.
Dalsel 6-22, (fsp) byggja yfir svalir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja yfir svalir við hús nr. 16 sambærilega og gert hefur verið við hús nr. 14 og 18 sama raðhúss á lóð nr. 6-22 við Dalsel.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.


Umsókn nr. 35478 (01.43.500.8)
220472-3539 Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Háaleitisbraut 119 108 Reykjavík
72.
Glaðheimar 16, (fsp) ofanábygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja hæð ofan á núverandi fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Glaðheima.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. mars 2007 ásamt umsögn hverfisarkitekts dags. 7. mars 2007 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, enda verði sótt um byggingarleyfi sem samþykki allra eigenda fylgi.


Umsókn nr. 35566 (01.46.100.1 01)
410288-1689 Raftæknistofan hf
Pósthólf 8175 128 Reykjavík
73.
Grensásvegur 3, (fsp) byggja ofaná hús ofl.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ofan á hluta austurhliðar 1. hæðar Grensásvegar 3 fyrir kaffistofu starfsmanna og útbúa svalir sunnan við ofanábyggingu á þaki 1. hæða Grensásvegar 5 á lóð nr. 3-7 við Grensásveg.
Bréf f.h. fyrirspyrjanda dags. 15. febrúar 2007 og samþykki meðlóðarhafa fylgja erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35477 (01.18.210.7)
180654-5859 Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir
Grettisgata 8 101 Reykjavík
090253-2399 Egill Ólafsson
Grettisgata 8 101 Reykjavík
74.
Grettisgata 8, (fsp) stækkun og br.
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir stækkun á bakhúsi lóðarinnar nr. 8 við Grettisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. mars 2007 fylgir erindinu.
Ekki er gerð athugasemd við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem síðan verður grenndarkynnt sbr. útskrift úr gerðarbók skipulagsfulltrúa. Byggingarleyfisumsókn fylgi samþykki lóðarhafa Njálsgötu 7.

Umsókn nr. 35500 (02.29.470.7)
140748-4399 Jóhann Egill Hólm
Krosshamrar 13a 112 Reykjavík
75.
Krosshamrar 13-13A, (fsp) sólstofa
Spurt er hvort leyft yrði að byggja um 16 ferm. sólstofu framan við stofur við vesturhlið parhúss á lóð nr. 13-13A við Krosshamra.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. mars 2007 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2007 fylgir erindinu.
Ekki er gerð athugasemd við að fyrirspyrjarndi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem síðan verður grenndarkynnt.
Vísað til fyrirvara sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35444 (01.43.020.1)
230861-2349 Jóhann Steinar Guðmundsson
Langholtsvegur 86 104 Reykjavík
76.
Langholtsvegur 86, (fsp) hækka ris, kvistir
Spurt er hvort leyft yrði að hækka ris með kvistum á hvorri langhlið íbúðarhússins á lóð nr. 86 við Langholtsveg.
Samþykki meðeiganda ódags. fylgir erindinu.
Einnig lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá
9. mars 2007.
Ekki er gerð athugasemd við hækkun hússins enda sé hún innan ramma deiliskipulags hverfisins. Sækja skal um byggingarleyfi.

Umsókn nr. 35527 (01.36.010.1)
160969-3429 Sigríður Brynjarsdóttir
Laugarnesvegur 42 105 Reykjavík
77.
Laugarnesvegur 42, (fsp) lyfta þaki
Spurt er hvort leyft yrði að stækka kvist sem nú er á miðju þaki yfir alla austurhlið og lengja svalir við suðurhlið þakhæðar að austurhorni fjölbýlishússins á lóð nr. 42 við Laugarnesveg.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar er ekki unnt að byggja kvist í líkingu við það sem óskað er eftir.


Umsókn nr. 35551 (00.00.000.0)
150169-5779 Auður Gná Ingvarsdóttir
Hvassaleiti 34 103 Reykjavík
78.
Mímisvegur 2, (fsp) norðurkvistur og úb. á suðurkvist
Spurt er hvort leyft yrði að hækka kvist á norðausturhlið og stækka kvist á suðvesturhlið á efri rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 2 við Mímisveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður. Byggingarleyfisumsókn skal fylgja samþykki meðeigenda í samræmi við fjöleignarhúsalög.


Umsókn nr. 35567 (01.19.611.1)
280853-3059 Ragnhildur Hjaltadóttir
Mímisvegur 8 101 Reykjavík
141131-6059 Magnús Karlsson
Mímisvegur 8 101 Reykjavík
560279-0199 Kirkja Jesú Kr h síð daga heil
Ásabraut 2 210 Garðabær
79.
Mímisvegur 8, (fsp) svalir
Spurt er hvort leyft yrði að reisa svalir við 1., 2. og 3. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 8 við Mímisveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35559 (01.13.200.9)
640805-0480 Fasteignafélagið Nýfasteign ehf
Miðbraut 36 170 Seltjarnarnes
80.
Nýlendugata 9, (fsp) gluggar ofl.
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir gluggum á norður- og austurhlið steinbæjarins Hlíðarhús B sem er á lóðinni nr. 9 við Nýlendugötu.
Nei.
Samræmist ekki ákvæðum byggingarreglugerðar vegna glugga í lóðarmörkum.


Umsókn nr. 35262 (04.68.550.1 01)
171160-3249 Magnús Ingvarsson
Kvistahlíð 3 550 Sauðárkrókur
81.
Nönnufell 1, (fsp) sjólgirðing og dúkkuhús
Spurt er hvort leyfi byggingarfulltrúa þurfi fyrir uppsetningu 1,5-1,8m hárrrar skjólgirðingar á mörkum sérnotaflatar íbúðar á 1. hæð húss nr. 1 við Nönnufell og uppsetningu 3,1 ferm. dúkkuhúss með vegghæð 1,55 og mænishæð 1,95 þar innanvið á lóð nr. 1-15 við Mörðufell.
Samþykki meirihluta meðeigenda dags. 4. júlí 2006, bréf formanns húsfélags Nönnufelli 1 dags. 16. júlí 2006, ljósrit af eignaskiptayfirlýsingu og ljósmyndir fylgja erindinu.
Neikvætt.
Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir smáhýsi, en það er ekki heimilað á þeim stað sem sýndur er sbr. umsögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.


Umsókn nr. 35546 (01.18.451.9)
250648-3839 Gunnar Þór Geirsson
Óðinsgata 15 101 Reykjavík
82.
Óðinsgata 15, (fsp) br. geymslum í íbúð
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta einsherbergja íbúð í geymsluhúsnæði (hluta matshluta 02) á baklóð nr. 15 við Óðinsgötu.
Ljósrit af eignaskiptayfirlýsingu innfærðri 24. janúar 2005, ljósrit úr íbúaskrá (1950 og 1960) frá Hagstofu Íslands, yfirlýsing meðeigenda dags. 9. janúar 2007 og bréf fyrirspyrjanda ódags. fylgja erindinu.
Einnig fylgir íbúðarskoðun byggingafulltrúa dags. 9. mars 2007.
Nei.
Húsnæðið uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til íbúða í byggingarreglugerð nr. 441/1998.


Umsókn nr. 35498 (01.24.310.6)
210384-3919 Ólafur Sölvi Pálsson
Bergþórugata 27 101 Reykjavík
83.
Rauðarárstígur 24, (fsp) samþ. geymslu sem íbúð
Spurt er hvort samþykki fengist til að breyta geymsluhúsnæði á lóð fjölbýlishússins á lóðinni nr. 24 við Rauðarárstíg í íbúð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. mars 2007 fylgir erindinu.
Nei.
Samræmist ekki byggðamynstri sbr. útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 9. mars 2007.


Umsókn nr. 35577 (52.00.010.0)
100873-5679 Jóhannes Birgir Jóhannesson
Nýbýlavegur 26 200 Kópavogur
84.
Smábýli 15A, (fsp) lagerhúsnæði
Spurt er hvort leyft yrði að byggja lagerhúsnæði skv. samþykkt frá 16. júlí 1982 á lóðinni nr. 15 við Smábýli.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


Umsókn nr. 35583 (01.17.020.5)
060454-7019 Bjarni Hákonarson
Sólheimar 27 104 Reykjavík
85.
Þingholtsstræti 2-4, (fsp) niðurrif og nýbygging
Spurt er hvort leyfi fengist til að rífa bygginguna á lóðinni og byggja nýtt hús með dýpri kjallara og með einni hæð ofan á þar sem kjallari og 1. hæð yrði til verslunarreksturs og 2. og 3. hæð til íbúðar.
Meðfylgjandi er bréf fyrirspyrjanda dags. 10. mars 2007.
Frestað.
Til að unnt sé að taka afstöðu til erindisins vantar umsagnir Minjasafns Reykjavíkur og Húsafriðunarnefndar ríkisins.